Bændablaðið - 16.05.2019, Page 26
Bændablaðið | Fimmtudagur 16. maí 201926
Opnað var á kynbótasýningar
vorsins í apríl og var það nánar
auglýst á heimasíðu RML.
Skráningu lauk 10. maí á fyrstu
sýninguna á Sörlastöðum í
Hafnarfirði sem fram fer 20.–24.
maí. Á morgun, 17. maí, lýkur svo
skráningu á sýningar sem fram
fara í Borgarnesi og á Selfossi
27.–31. maí.
Skráning og greiðsla fer fram
í gegnum netið á síðunni www.
worldfengur.com þar sem valið
er „skrá hross á kynbótasýningu“.
Einnig er hægt að skrá hross
til sýningar á heimasíðu RML
www.rml.is í gegnum flýtihnapp
á forsíðunni. Þar má auk þess
finna leiðbeiningar um hvernig
eigi að skrá á kynbótasýningu
undir kynbótastarf/hrossarækt/
kynbótasýningar. Í töflunni hér að
neðan má sjá síðasta skráningardag
á hverja og eina sýningu en
skráningu þarf að vera lokið á
miðnætti þess dags.
Ef sýning fyllist lokast
sjálfkrafa á sýninguna þó svo
skráningarfrestur sé ekki útrunninn.
Eigandi/umráðamaður hrossins
verður þá að velja aðra sýningu.
Til að fá aðstoð er hægt að hringja í
síma 516-5000, eða senda tölvupóst
á netföngin halla@rml og hross@
rml.is.
Við bendum á að utan
dagvinnutíma eru starfsmenn RML
ekki til staðar til að svara síma
eða tölvupósti og því hvetjum við
eigendur/umráðamenn til að hafa
tímann fyrir sér frekar en hitt þegar
kemur að skráningum á sýningarnar.
RML áskilur sér fullan rétt til
að fækka dögum á sýningum ef
skráningar eru færri en búist er við.
Sýning verður ekki haldin nema
lágmarksfjöldi skráninga náist sem
eru 30 hross. Gerð er undantekning
á þessu fyrir sýninguna á
Stekkhólma á Fljótsdalshéraði en
þar verða að nást 15 skráningar
svo sýning verði haldin. Hér að
neðan má sjá sýningar vorsins og
hvenær er síðasti skráningar- og
greiðsludagur.
Allar upplýsingar um röðun
niður á daga munu birtast á
heimasíðunni www.rml.is, þegar
þær eru klárar sem verður nokkrum
dögum fyrir sýningu.
Sýningargjöld og fleira
Gjald fyrir fullnaðardóm er
26.000 kr. en fyrir byggingadóm/
hæfileikadóm 20.500 kr. Ganga þarf
frá greiðslu um leið og hrossið er
skráð. Hægt er að greiða með debet-
eða kreditkortum, ekki er hægt að
greiða með millifærslu. Um leið
og hrossið hefur verið skráð birtist
það strax inn á viðkomandi sýningu.
Ef það gerist ekki er rétt að kanna
hvort eitthvað hafi farið úrskeiðis
við skráninguna.
Aðeins þau hross sem hlotið hafa
fullnaðardóm á sama sýningarári eru
gjaldgeng í einfaldan reiðdóm.
Endurgreiðslur á sýningargjöldum
koma því aðeins til greina að látið
sé vita um forföll fyrir kl. 16.00
síðasta virka dag fyrir upphaf
sýningarviku í síma 516-5000 en
einnig er hægt að senda tölvupóst á
netfangið hross@rml.is. Endurgreitt
er 14.000 kr. fyrir hross sem skráð
hefur verið í fullnaðardóm og 11.000
kr. fyrir hross sem hefur verið skráð
í sköpulags- eða hæfileikadóm.
Slasist hross eftir að sýning hefst
er sama hlutfall endurgreitt gegn
læknisvottorði.
Endurgreiðslukrafa vegna
slasaðra hrossa þarf að hafa borist
fyrir 1. júlí. Skipti knapi út hrossi í
sýningu og velji að sýna annað hross
en það sem skráð er, ber sá hinn sami
fulla ábyrgð gagnvart þeim sem
greiddi fyrir plássið. Greiðsla fyrir
það hross sem skipt var út verður
notuð til greiðslu á hrossinu sem
kom í staðinn.
Minnum á eftirfarandi:
• Ekki er hægt að skrá hryssur eða
geldinga til sýningar nema búið
sé að taka úr þeim stroksýni til
DNA-greiningar og staðfesting
á því liggi fyrir í WF.
• Allir stóðhestar verða að vera
DNA greindir svo og foreldrar
þeirra.
• Úr öllum stóðhestum fimm
vetra og eldri þarf að liggja fyrir
í WF að búið sé að taka blóðsýni
og röntgenmynda vegna spatts.
• Ekki er hægt að skrá hross á
kynbótasýningu nema þau séu
örmerkt
• Ef örmerki finnst ekki í hrossi
sem mætir til dóms ber að
örmerkja það á staðnum og
taka stroksýni úr nös til DNA-
greiningar á ætterni, með þeim
kostnaði sem af því hlýst fyrir
eiganda/forráðamann. Örmerki
og DNA-sýni þurfa ávallt að
fylgjast að.
Ekki er hægt að skrá hross til
sýningar nema ofantaldar kröfur
séu uppfylltar. Hross sem koma
inn á sýningu í stað annarra
skráðra hrossa og uppfylla ekki
þessi skilyrði verður vísað frá
sýningu strax hjá mælingarmanni
án undantekninga.
Nánari upplýsingar um
reglur og annað sem viðkemur
kynbótasýningum má finna á
heimasíðunni www.rml.is eða
hringja í síma 516-5000 hjá
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins.
Einnig er hægt að senda tölvupóst
á netfangið hross@rml.isSmiðjuvegi 66 • 580 5800 • landvelar.is
Loftpressur af öllum
stærðum og gerðum
STIMPILPRESSUR
Mikið úrval af aukahlutum
Dags.
20.5 - 24.5 Sörlastaðir Hafnarfirði Lauk föstudaginn 10. maí
27.5 - 31.5 Borgarnes
27.5 - 31.5 Brávellir, Selfossi
03.6 - 07.6 Sprettur, Kópavogi Föstudagur 24. maí
03.6 - 07.6 Gaddstaðaflatir, Hellu Föstudagur 24. maí
03.6 - 07.6 Hólar, Hjaltadal Föstudagur 24. maí
03.6 - 04.6 Fljótsdalshérað Föstudagur 24. maí
11.6 - 14.6 Sprettur, Kópavogi Föstudagur 24. maí
11.6 - 14.6 Gaddstaðaflatir, Hellu Föstudagur 24. maí
18.6 - 21.6 Akureyri Föstudagur 7. júní
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Halla Eygló Sveinsdóttir
ráðunautur hjá RML
halla@rml.is
Skráningar á kynbótasýningar vorsins
– Fyrstu sýningar verða á Sörlastöðum í Hafnarfirði 20.–24. maí og í Borgarnesi og á Selfossi 27.–31. maí