Bændablaðið - 16.05.2019, Blaðsíða 26

Bændablaðið - 16.05.2019, Blaðsíða 26
Bændablaðið | Fimmtudagur 16. maí 201926 Opnað var á kynbótasýningar vorsins í apríl og var það nánar auglýst á heimasíðu RML. Skráningu lauk 10. maí á fyrstu sýninguna á Sörlastöðum í Hafnarfirði sem fram fer 20.–24. maí. Á morgun, 17. maí, lýkur svo skráningu á sýningar sem fram fara í Borgarnesi og á Selfossi 27.–31. maí. Skráning og greiðsla fer fram í gegnum netið á síðunni www. worldfengur.com þar sem valið er „skrá hross á kynbótasýningu“. Einnig er hægt að skrá hross til sýningar á heimasíðu RML www.rml.is í gegnum flýtihnapp á forsíðunni. Þar má auk þess finna leiðbeiningar um hvernig eigi að skrá á kynbótasýningu undir kynbótastarf/hrossarækt/ kynbótasýningar. Í töflunni hér að neðan má sjá síðasta skráningardag á hverja og eina sýningu en skráningu þarf að vera lokið á miðnætti þess dags. Ef sýning fyllist lokast sjálfkrafa á sýninguna þó svo skráningarfrestur sé ekki útrunninn. Eigandi/umráðamaður hrossins verður þá að velja aðra sýningu. Til að fá aðstoð er hægt að hringja í síma 516-5000, eða senda tölvupóst á netföngin halla@rml og hross@ rml.is. Við bendum á að utan dagvinnutíma eru starfsmenn RML ekki til staðar til að svara síma eða tölvupósti og því hvetjum við eigendur/umráðamenn til að hafa tímann fyrir sér frekar en hitt þegar kemur að skráningum á sýningarnar. RML áskilur sér fullan rétt til að fækka dögum á sýningum ef skráningar eru færri en búist er við. Sýning verður ekki haldin nema lágmarksfjöldi skráninga náist sem eru 30 hross. Gerð er undantekning á þessu fyrir sýninguna á Stekkhólma á Fljótsdalshéraði en þar verða að nást 15 skráningar svo sýning verði haldin. Hér að neðan má sjá sýningar vorsins og hvenær er síðasti skráningar- og greiðsludagur. Allar upplýsingar um röðun niður á daga munu birtast á heimasíðunni www.rml.is, þegar þær eru klárar sem verður nokkrum dögum fyrir sýningu. Sýningargjöld og fleira Gjald fyrir fullnaðardóm er 26.000 kr. en fyrir byggingadóm/ hæfileikadóm 20.500 kr. Ganga þarf frá greiðslu um leið og hrossið er skráð. Hægt er að greiða með debet- eða kreditkortum, ekki er hægt að greiða með millifærslu. Um leið og hrossið hefur verið skráð birtist það strax inn á viðkomandi sýningu. Ef það gerist ekki er rétt að kanna hvort eitthvað hafi farið úrskeiðis við skráninguna. Aðeins þau hross sem hlotið hafa fullnaðardóm á sama sýningarári eru gjaldgeng í einfaldan reiðdóm. Endurgreiðslur á sýningargjöldum koma því aðeins til greina að látið sé vita um forföll fyrir kl. 16.00 síðasta virka dag fyrir upphaf sýningarviku í síma 516-5000 en einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið hross@rml.is. Endurgreitt er 14.000 kr. fyrir hross sem skráð hefur verið í fullnaðardóm og 11.000 kr. fyrir hross sem hefur verið skráð í sköpulags- eða hæfileikadóm. Slasist hross eftir að sýning hefst er sama hlutfall endurgreitt gegn læknisvottorði. Endurgreiðslukrafa vegna slasaðra hrossa þarf að hafa borist fyrir 1. júlí. Skipti knapi út hrossi í sýningu og velji að sýna annað hross en það sem skráð er, ber sá hinn sami fulla ábyrgð gagnvart þeim sem greiddi fyrir plássið. Greiðsla fyrir það hross sem skipt var út verður notuð til greiðslu á hrossinu sem kom í staðinn. Minnum á eftirfarandi: • Ekki er hægt að skrá hryssur eða geldinga til sýningar nema búið sé að taka úr þeim stroksýni til DNA-greiningar og staðfesting á því liggi fyrir í WF. • Allir stóðhestar verða að vera DNA greindir svo og foreldrar þeirra. • Úr öllum stóðhestum fimm vetra og eldri þarf að liggja fyrir í WF að búið sé að taka blóðsýni og röntgenmynda vegna spatts. • Ekki er hægt að skrá hross á kynbótasýningu nema þau séu örmerkt • Ef örmerki finnst ekki í hrossi sem mætir til dóms ber að örmerkja það á staðnum og taka stroksýni úr nös til DNA- greiningar á ætterni, með þeim kostnaði sem af því hlýst fyrir eiganda/forráðamann. Örmerki og DNA-sýni þurfa ávallt að fylgjast að. Ekki er hægt að skrá hross til sýningar nema ofantaldar kröfur séu uppfylltar. Hross sem koma inn á sýningu í stað annarra skráðra hrossa og uppfylla ekki þessi skilyrði verður vísað frá sýningu strax hjá mælingarmanni án undantekninga. Nánari upplýsingar um reglur og annað sem viðkemur kynbótasýningum má finna á heimasíðunni www.rml.is eða hringja í síma 516-5000 hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið hross@rml.isSmiðjuvegi 66 • 580 5800 • landvelar.is Loftpressur af öllum stærðum og gerðum STIMPILPRESSUR Mikið úrval af aukahlutum Dags. 20.5 - 24.5 Sörlastaðir Hafnarfirði Lauk föstudaginn 10. maí 27.5 - 31.5 Borgarnes 27.5 - 31.5 Brávellir, Selfossi 03.6 - 07.6 Sprettur, Kópavogi Föstudagur 24. maí 03.6 - 07.6 Gaddstaðaflatir, Hellu Föstudagur 24. maí 03.6 - 07.6 Hólar, Hjaltadal Föstudagur 24. maí 03.6 - 04.6 Fljótsdalshérað Föstudagur 24. maí 11.6 - 14.6 Sprettur, Kópavogi Föstudagur 24. maí 11.6 - 14.6 Gaddstaðaflatir, Hellu Föstudagur 24. maí 18.6 - 21.6 Akureyri Föstudagur 7. júní Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins Halla Eygló Sveinsdóttir ráðunautur hjá RML halla@rml.is Skráningar á kynbótasýningar vorsins – Fyrstu sýningar verða á Sörlastöðum í Hafnarfirði 20.–24. maí og í Borgarnesi og á Selfossi 27.–31. maí
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.