Bændablaðið - 16.05.2019, Side 27
Bændablaðið | Fimmtudagur 16. maí 2019 27
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Stóðhestaskýrslur /
fyljunarvottorð
Ágætu stóðhestahaldarar og
hryssueigendur. Nú fer í hönd
enn eitt spennandi hrossa-
ræktarsumar og mikill fjöldi
áhugaverðra stóðhesta í boði
fyrir ræktendur.
Minnt er á þá áhvílandi
skyldu að stóðhestahaldarar
(umsjónarmaður eða eigandi
hests) skili samviskusamlega
útfylltum stóðhestaskýrslum til
starfsstöðva RML fyrir árslok,
31. desember 2019. Þar komi
fram allar hryssur sem voru
leiddar undir viðkomandi hesta,
hvort heldur sónarskoðun er
notuð til að staðfesta fyljun eður
ei og hvort sem hryssur reynast
fyljaðar eða ekki.
Þá geta hryssueigendur, eða
stóðhestahaldarar, einnig tryggt
þessa mikilvægu skráningu með
því að skila inn vel útfylltum og
undirrituðum fyljunarvottorðum
sem þjóna sama tilgangi.
Stóðhestaskýrslur má
m.a. nálgast á heimasíðu
RML, hér: https://www.rml.
is/static/files/Hrossaraekt_
RML/eydublod/2018/rml-
stodhestaskyrsla_vefur-2.pdf
Fyljunarvottorð má nálgast
hér: https://www.rml.is/static/
files/Hrossaraekt_RML/2017/
fyljunarvottord-fosturvisir17v2.
pdf
Samkvæmt ákvæðum Reglu-
gerðar um uppruna og ræktun
íslenska hestsins nr. 442 / 2011, 5.
grein, er óheimilt að nýskrá folöld
í upprunaættbókina WorldFeng
ef fyljunarskráning móður
liggur ekki fyrir, nema til komi
ætternisgreining með DNA-sýni.
Við minnum sérstaklega á
valpörun í WorldFeng sem er
kjörið verkfæri ræktenda til að
átta sig á innbyrðis skyldleika
hrossa við mismunandi
pörunarkosti.
Í því sambandi er vert að
hafa í huga, sem almenna
leiðbeiningu og varnagla
í búfjárrækt, að reiknaður
skyldleikaræktarstuðull (táknað
sem F%) mögulegs afkvæmis
fari ekki yfir 5%. Það er sérstakt
og mikilsvert keppikefli í litlum
hrossastofni, svo sem íslenski
hesturinn er, að viðhalda sem
mestum erfðafjölbreytileika og
vinna markvisst gegn mikilli
innbyrðis skyldleikaaukningu
í stofninum. Fjölbreytnin
er forsenda alls úrvals og
ræktunarstarfs, eldsneytið inn í
langa framtíð.
Þá hvetjum við alla þá sem
eignast folöld í vor og sumar
til að láta örmerkja þau strax,
þar er ekki eftir neinu að bíða.
Enn fremur að engin ómerkt
folöld fylgi mæðrum inn í
stóðhestagirðingar. Allir vilja
fara með sitt folald heim í lok
tímabils, en ekki annarra.
Hrossaræktarsvið RML
Stóðhesturinn GLÚMUR frá
Dallandi IS2010125110
verður til afnota að Hestamiðstöðinni DAL,
Mosfellsbæ bæði á húsmáli og fyrra gangmáli í sumar.
Eftir 15. júlí tekur Glúmur á móti hryssum í Héraðsdal
Skagafirði þar sem hann verður fram á haust.
Glúmur var efstur í flokki stóðhesta 7 vetra og eldri á
Landsmóti í Reykjavík 2018. Glúmur hefur fengið
í kynbótadómi 10 níur, eina 9,5, 10 fyrir
prúðleika og aðaleinkunn 8.81.
Faðir hans er Glymur frá Flekkudal
og móðir Orka frá Dallandi.
Verð kr 150.000 með vsk.
Frekari upplýsingar gefa og móttaka pantana er hjá :
halldor@dalur.is sími 8962772
gunnar@dalur.is sími 8222010
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
RÚÐUR Í
DRÁTTARVÉLAR
FRÁBÆR VERÐ
John Deere
Zetor
Case IH
McCormick
Steyr
Claas
Ford
Fiat
New Holland
Deutz-Fahr
Massey Ferguson
Stóðhestar á vegum
Hrossaræktarsambands Vesturlands
Bygging: Bygging: