Bændablaðið - 16.05.2019, Side 29
Bændablaðið | Fimmtudagur 16. maí 2019 29
Lely Center Ísland
Til sölu GEA Monobox – mjaltaþjónn
Reykjavík Krókháls 5f – Sími 414 0000 // Akureyri Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
Selst óuppsettur
Kaupandi verður að semja við Lífland, umboðsaðila GEA á Íslandi
um uppsetningu og niðurtöku
Einungis 19 mánaða gamall
Hægri mjaltaþjónn, með sýnatökukassa, blautfóðurdælu,
tveimur fóðurskömmturum og G5 myndavél
Gangsettur nýr í október 2017 – Til afhendingar í byrjun september 2019
Upplýsingar gefur Sverrir í síma 896-2866
Baskaland heitir Euskal Herria,
eða Euskadi á basknesku og País
Vasco, eða Vasconia á spænsku,
en Pays Basque á frönsku,
þaðan sem við þekkjum nafnið.
Óformleg höfuðborg Baskalands
heitir Vitoria-Gasteiz og er í
Álava-héraði, en aðrar stórar
borgir eru Bilbao eða Bilbo á
basknesku og San Sebastián,
sem heitir Donostia á basknesku.
Baskaland skiptist í raun í
sjö héruð Álava, eða Araba-
hérað, Biscay, eða Bizkaia-hérað,
Gipuzkoa-hérað, Nafarroa Garaia
og frönsku héruðin þrjú, Lapurdi,
Nafarroa Beherea og Zuberoa.
Í heild er Baskaland 20.947
ferkílómetrar, en suðurhéraðið
Nafarroa Garaia, eða Hegoalde,
sem er þeirra stærst, er þó
ekki alltaf nefnt sem hluti af
Baskalandi, enda er það að öllu
leyti talið vera innan eiginlegra
landamæra Spánar. Þá tilheyrir
norðausturhlutinn Frakklandi.
Baskalandi var tryggð ákveðin
staða sjálfstjórnarsvæðis í spænsku
stjórnarskránni 29. desember 1978
og var gjörningurinn kenndur við
bæinn Guernica þar sem er eitt af
elstu þingum Evrópu. Var þetta
fullgilt í kosningum 25. október
1979. Þar var viðurkennt að
Baskalandi tilheyri héruðin Álava,
Biscay og Gipuzkoa, sem ná yfir
7.234 ferkílómetra svæði og þar
búa um 2,2 milljónir manna.
Baskneska þingið er í borginni
Vitoria-Gasteiz þar sem forseti
Baska er einnig með aðsetur.
Höfuðstöðvar stjórnarinnar eru
svo í San Sebastián, en hæstiréttur
Baska er með aðsetur í Bilbao.
Bærinn Guernica hefur mikla
sérstöðu í sjálfstæðisbaráttu
Baska. Þar var upphaf og endir
mótspyrnunnar í borgarastríðinu
við hersveitir Francos einræðis-
herra og þýskra nasista. Eru
mikilvægir táknrænir fundir
stjórnar og þings Baska enn haldnir
í þinghúsinu í Guernica sem er
jafnframt þinghús Biscay-héraðs.
Nafarroa-hérað eða Navarre
var svo veitt sérstök staða innan
spænska ríkisins árið 1982.
Baskaland innan landamæra
Frakklands kallast einu nafni á
spænsku País Vasco francés, en
Pays basque français á frönsku
og Iparralde eða Norðursvæðið á
basknesku. Þar búa um 240.000
Baskar. Að auki búa nær 58
þúsund Baskar í Bandaríkjunum
og tæplega 7.000 í Kanada.
Baskaland – Euskadi
frá mæðrum sínum sem þá eru
mjólkaðar með mjaltavélum og er
mjólkin nýtt að einhverju leyti til
drykkjar en þó einkum í ostagerð,
sem er helsta stolt bænda á þessu
svæði.
Lömbum, sem ekki eru sett
á, er slátrað þegar þau hafa náð
um 12 kílóa fallþunga, sem þætti
frekar lítið í samanburði við þyngd
íslenskra lamba við slátrun.
Stöðugur straumur ferðamanna
er á þetta bú, sem þykir til
fyrirmyndar í ostagerðinni auk
þess að starfrækja smalaskólann.
Erfitt hefur reynst að festa
sauðaostagerð í sessi á Íslandi
Áhugavert er að skoða þetta
með hliðsjón af íslenskum
sauðfjárbúskap. Einhvern
veginn hefur ekki tekist að
festa framleiðslu á íslenskum
sauðaostum í sessi sem gæti
örugglega hjálpað þessari grein.
Framleiðsla sauðaostanna
var þó rannsóknarverkefni sem
Bændaskólinn á Hvanneyri,
Mjólkursamlagið í Búðardal
og Osta- og smjörsalan stóðu
saman að á tíunda áratug síðustu
aldar að frumkvæði Sveins
Hallgrímssonar, kennara við
Bændaskólann. Á Hvanneyri var
gerð tilraun með fráfærur sumarið
1996 og ærnar mjólkaðar. Mjólkin,
alls um 1.000 lítrar, var lögð inn
í Mjólkursamlagið í Búðardal og
voru gerðir ostar úr henni, alls um
480 kg. Komu þeir sauðaostar á
markað í febrúar 1997. Lítið hefur
þó farið fyrir slíkri framleiðslu
síðan og hún ekki náð að festa
sig í sessi. Sérstakt átaksverkefni
um nýtingu sauðamjólkur var þó
í gangi á árunum 2004 til 2010
og tóku nokkrir bændur þátt í því.
Bændur í Akurnesi við Hornafjörð
mjólkuðu um 50 tvílembur í tvö
sumur 2013 og 2014 samkvæmt
heimildum Ráðgjafarmiðstöðvar
landbúnaðarins, RML. Þeir fengu
tilskilin leyfi til að gera ost úr
mjólkinni heima á búinu og sáu
sjálfir um söluna. Hlé var svo gert
á sauðamjöltum í Akurnesi vegna
anna við önnur bústörf en áform
um að taka aftur upp þráðinn aftur
þegar tími gæfist.
Reglugerðir ESB vernda
villidýr en eyða aldagamalli
menningu
Það er þó ekki tóm himnasæla
að stunda sauðfjárbúskap uppi í
fjöllunum í Baskalandi. Otaegi
bóndi segir að bændur á þessu
svæði horfi nú fram á mikla
erfiðleika vegna sérkennilegs
regluverks Evrópusambandsins.
Þarna er búskapurinn rekinn í
miðju friðlandi og hafa bændurnir
heimild til að stunda þar búskap
gegn því að passa upp á friðlandið.
Gallinn er bara sá, að sögn Otaegi,
að úlfar og villisvín eru þar líka
algjörlega friðuð og fjölgar því
ört og fyrir þessi dýr eru kindur
fyrirtaks bráð. Því treysta bændur
sér vart lengur til að vera með sauðfé
utandyra vegna ágengni þessara
dýra. Sagði hann að af þessum
sökum væru bændur að flosna upp
og tilneyddir að hætta búskap.
Um leið og búum fækkar
verður svo til nýtt vandamál sem
er þvert á þau markmið að vernda
svæðið. Reglugerðir ESB eru
einfaldlega að leiða til verndunar
og offjölgunar villidýra, sem
drepa allt kvikt sem þau ná sér í
til matar. Það þýðir að fuglum og
smádýrum fækkar líkt og íslenskir
bændur hafa bent á að hafi gerst
við friðun refs á Hornströndum. Þá
leiða friðunarreglugerðirnar einnig
til þess að farið er að fjara undan
aldagamalli menningu baskneskra
bænda sem þar hafa lifað í sátt og
samlyndi við náttúruna.
Batis Otaegi bendir einnig á, að
um leið og búskapur leggst af, þá
hætti öll umhirða á jörðunum. Tún
safna sinu sem verður svo hættulegur
eldsmatur þegar eldingum slær
niður. Því hafi skógareldar á
þessu svæði orðið stöðugt tíðari
með tilheyrandi eyðileggingu á
friðlandinu. Reglurnar sem áttu
að vernda náttúru landsins séu því
í raun að stórskaða þessa sömu
náttúru.
Bóndinn Batis Otaegi lýsir osta-
framleiðslunni fyrir baskneskum
fararstjóra og ferðamönnum frá
Íslandi.
Að sjálfsögðu var gestum boðið
upp á ostasmakk af framleiðslu
Gomiztegi-bænda og Upainberri
Txakolina-hvítvín úr héraði frá 2017.