Bændablaðið - 16.05.2019, Side 30

Bændablaðið - 16.05.2019, Side 30
Bændablaðið | Fimmtudagur 16. maí 201930 Tíu ára drengur, Bodgan Belyi, frá borginni Tiraspol í landi sem fáir Íslendingar kannast við og heitir Transnjestría, [Transnistria – Pridnestrovian Moldavian Republic] vill ólmur komast í kynni við Íslendinga. Hann hefur af eigin frumkvæði viðað að sér margvíslegum fróðleik um Ísland og hefur sérstakan áhuga á Vestfjörðum. Ástæða þess að nafn þessa pilts birtist á síðum Bændablaðsins er að Hinrik Bjarnason, fyrrverandi deildarstjóri innkaupa- og markaðsdeildar Sjónvarpsins, fór fyrir skömmu í ferð með Þorleifi Friðrikssyni sagnfræðingi og fyrirtæki hans, Söguferðum. Var ferðin farin til þessa framandi lands, Transnjestríu, sem fáir hafa heyrt getið en er í raun eins konar sjálfstjórnarsvæði í Moldóvu. Transnjestría er 4.163 km2 landræma á vinstri bakka árinnar Dniester við austurlandamæri Moldóvu og liggur að Úkraínu. Nafn landsins þýðir; handan Dniester [Trans-Dniestr]. Íbúar eru um 469.000 og höfuðborgin heitir Tiraspol [ . Íbúar hafa lýst yfir sjálfstæði þessa svæðis en engar sjálfstæðar þjóðir viðurkennir það í raun sem sjálfstætt ríki. Þó viðurkenndu þrjár þjóðir sjálfstæði Transnjestríu 2. september 1990, en það eru Abkhazia, Artsakh og Suður-Ossetia, sem sjálf njóta ekki viðurkenningar. Hinrik segir ferðina hafa verið mjög lærdómsríka og áhugaverða, en Þorleifur velur gjarnan að fara með fólk á framandi slóðir. Hefur hann m.a. skrifað bók sem heitir hulduþjóðir Evrópu, þar sem fjallað er um þjóðarbrot sem litla athygli fá í umræðunni. Transnjestría er eitt þeirra. „Það var farið austur til Moldóvu og farið um það land sem var mjög athyglisvert, ekki síst út frá búskaparlegu sjónarmiði. Við sem lærðum landafræði í skóla minnumst þess að hafa lært um svörtu moldina í Austur-Evrópu og á sléttum þess sem þá voru Sovétríkin. Þarna vorum við einmitt á þeim slóðum,“ segir Hinrik. „Við vorum þarna í Tiraspol í þrjár nætur og fórum um svæðið í kring sem var mjög eftirminnilegt og ánægjulegt, þrátt fyrir misjafnt veður. Þarna er einstaklega alúðlegt og huggulegt fólk heim að sækja. Veran þarna minnti suma á gömlu Sovétríkin og sáu menn ýmsar bílategundir sem þeir höfðu ekki séð í langan tíma. Það kom svo fyrir mig þann 16. apríl austur í Tiraspol að ég fór að finna til óþæginda í auga. Það ágerðist og þorði ég ekki annað en að fá okkar ágæta leiðsögumann til að fara með mig á klíník sem er hluti af hinu opinbera heilbrigðiskerfi. Það var svolítið með hálfum huga að ég fór í þá ferð, en þar fékk ég þá bestu þjónustu sem hugsast gat. Þarna var öndvegisfólk og þessi ferðamaður frá framandi slóðum norður í höfum fékk fyrirmyndar fyrirgreiðslu. Þarna gerði enginn athugasemd þótt hann væri dreginn fram fyrir alla aðra og afgreiddur með hraði. Vandkvæði augans reyndust þó ekki alvarleg og hurfu á nokkrum dögum.“ Ótrúlegur Íslandsáhugi 10 ára drengs „Á stofunni hjá augnlækninum voru UTAN ÚR HEIMI Bogdan Belyi fyrir miðri mynd í annarri röð, himinlifandi með bekkjarfélögum sínum í borginni Tiraspol í Transnjestríu, með bók um Ísland, íslenska peninga og Bændablaðið sem hann fékk að gjöf frá íslenskum ferðamönnum sem staddir voru í heimabæ hans fyrir skömmu. Tiraspol í Transnjestríu: Tíu ára drengur í framandi landi með óbilandi áhuga á Íslandi – Datt fyrir tilviljun í lukkupottinn þegar hann komst í kynni við íslenska ferðalanga í heimaborg sinni Hinrik Bjarnason fékk afar óvenju- móður 10 ára drengs sem gaf sig á tal við hann á læknastofu í Tiraspol í Transnjestríu þegar hann var þar að vitja læknis. Transnjestría er ekki stórt land en á svæði sem er þekkt fyrir mjög frjósama gróðurmold. Innfellda myndin er af fána Transnjestríu. Bogdan Belyi hugfanginn að skoða myndir frá Íslandi í síma íslensks ferðamanns og kominn með Bændablaðið í hendur og tvo íslenska peningaseðla að auki.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.