Bændablaðið - 16.05.2019, Page 31

Bændablaðið - 16.05.2019, Page 31
Bændablaðið | Fimmtudagur 16. maí 2019 31 nokkrar ungar aðstoðarkonur. Þegar skoðuninni á mér var lokið kom ein af þessum konum til mín og baðst afsökunar á að gera sig heimakomna við mig og sagði: – Þannig er mál með vexti að ég á tíu ára son sem er algjörlega upptekinn af Íslandi. Hann er alltaf að skoða ýmislegt er viðkemur Íslandi, eins og kort. Núna er hann sérstaklega upptekinn af Vestfjörðum og er mikið að velta fyrir sér plássi sem heitir Flateyri. Ég var alveg gáttaður á þessu erindi, en eftir stutt samtal sagði ég við hana að ég væri þarna í hópi fólks sem væri að skoða sig um og líta á landshagi í hennar landi. Heimsækja fólkið og drekka ykkar ágæta vín og borða ykkar ágæta mat. Við erum hér á Hotel Russia og sonur þinn er velkominn á hótelið ef það væri hægt að tína til einhverja íslenska peninga eða annað sem fólk gæti fært honum frá Íslandi. Nefndi ég við hana tíma sem væri heppilegur. Nú, ég bjóst ekki við að neitt yrði úr hans heimsókn. Svo vildi til að ég þurfti að bregða mér í burtu af hótelinu á þeim tíma sem ég hafði tiltekið, en þarna voru nokkrir ferðafélagar mínir í anddyrinu. Auðvitað birtist svo pilturinn í fylgd föður síns og áttu þeir mjög góða stund með Íslendingunum. Fékk strákurinn þarna íslenska peninga og ýmsa gripi sem fólk hafði í fórum sínum og Þorleifur fararstjóri gaf honum firna fallega íslenska ljósmyndabók. Þá hafði einn haft með sér í þessa ferð sem lestrarefni eintak af Bændablaðinu. Dró hann það fram og afhenti drengnum sem hélt himinlifandi á braut með þennan „feng“ sinn,“ sagði Hinrik. Vill kynnast íslenskum jafnöldrum Í framhaldinu komu boð frá föður hans um að strákurinn hafi strax daginn eftir sagt félögum í skólanum sínum frá þessari för sinni til að hitta Íslendinga á Hotel Russia. Vakti það feikna athygli og þeir munir sem hann hafði meðferðis. Var tekin mynd af pilti með skólafélögunum með munina alla, bókina góðu og Bændablaðið. Fylgdi skilaboðum föðurins síðan ósk drengsins um að fá að komast í tengsl og kunningsskap við jafnaldra sína á Íslandi. Gaman væri ef einhverjir íslenskir krakkar á hans reki hefðu samband við hann og þætti honum þá örugglega fengur í að fá skeyti frá Vestfjörðum og þá ekki síst Flateyri. /HKr. Nafn og heimilisfang þessa áhugasama Íslandsvinar er: Bogdan Belyi Gogol 82 Tiraspol Pridnestrovie R. Moldava 3300 Þegar velja skal vinnuvéla- og landbúnaðar- tæki skipta gæði, ending og áreiðanleiki höfuðmáli. • Hestöfl 142 • Lyftigeta 3,5 tonn • Lyftihæð 9,8 m • Keyrsluhraði 40km/klst • Vökvaúrtök og krókur fyrir 12 tonna vagn Gerðu kröfur — hafðu samband við Snorra í síma 590 5130 eða sendu fyrirspurn á sa@klettur.is og kynntu þér þína möguleika. KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10 / 104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is Caterpillar TH3510D skotbómu- lyftari Landbúnaðarútfærsla Þorleifur Friðriksson, fararstjóri hjá Söguferðum, áritar bók um Ísland sem hann gaf Íslandsvininum Bogdan Belyi. Með þeim á myndinni er faðir Bogdans og á innfelldu myndinni er hann með pabba sínum og litlu systur. Eiríkur Benjamínsson læknir var með í símanum myndir af Geysi í Haukadal Harpa Ágústsdóttir. PÓLLAND-KALININGRAD 10. TIL 17. ÁGÚST (7 NÁTTA FERÐ) - Flogið til og frá Gdansk - Söguferð um slóðir seinni heimsstyrjaldar. Við förum til Gdansk og Kaliningrad, rekjum sögu Fríborgarinnar Danzig og Austurprússlands, kynnumst samtíð og sögu Königsberg-Kaliningrad. Við skoðum Mamerki (Mauerwald) aðalstjórnstöð SS á Austurvígstöðvunum og Úlfsgreni Hitlers (Wolfsschanze), Westerplatte og Stutthof. Að loknum töðugjöldum er þessi ferð kjörin fyrir bændur og búalið og alla hina sem hafa áhuga á sögu 20. aldar. Verð: 250.000 kr. Möguleiki er að framlengja dvöl í Gdansk til 20. ágúst. Fararstjóri: Þorleifur Friðriksson, sagnfræðingur Sími: 564 30 31 / 611 4797 Netfang: soguferdir@soguferdir.is Nánari dagskrá: www. soguferdir.is

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.