Bændablaðið - 16.05.2019, Page 32
Bændablaðið | Fimmtudagur 16. maí 201932
Í síðasta tölublaði Bændablaðsins
gerir Ari Teitsson frændi minn
tilraun til að svara spurningu Árna
Bragasonar landgræðslustjóra um
hvað felist í sjálfbærri landnotkun,
eða öllu heldur dregur hann fram
eitt atriði sem hann telur ekki felast
í sjálfbærni, þ.e. að friða einstaka
afréttir fyrir beit.
Í samtali fyrir skemmstu spurði
Árni mig hvort ég gæti skilgreint
sjálfbæra landnýtingu og svaraði
ég um hæl „já já, ekki málið“ en
bætti svo við að ég gæti það hvorki
án umhugsunar né í stuttu máli.
Það er nefnilega ekki rétt sem Ari
skrifar í pistli sínum að hugtakið
sjálfbær þróun hafi fyrst komið
fram í Brundtland-skýrslunni árið
1987, sama hvað Wikipedia segir.
Hugtakið og hugmyndafræðin um
sjálfbærni er mun eldri, eða frá því
snemma á 18. öld, og er fengin að
láni frá skógrækt, þar sem hún hefur
verið leiðarstef í skógfræðimenntun
í 300 ár. Ef skógfræðingur getur ekki
skilgreint sjálfbæra landnotkun, hver
getur það þá?
Grunnstefið eins og Ari ritar
það, „landnýting sem mætir þörfum
þeirra sem nýta landið nú, án þess
að skerða möguleika þeirra sem
landið munu nýta í framtíðinni“ er
í samræmi við upphaflega hugmynd
Carls von Carlowitz sem fyrst setti
hana á blað fyrir 300 árum. Hún
var hagfræðilegs eðlis og fjallaði
um það hvernig hægt væri að rækta
skóg á ný þar sem skógur hafði
verið felldur svo komandi kynslóðir
gætu einnig notið gæða skógarins.
Hún snerist upphaflega eingöngu
um þann hag sem mannkynið gæti
haft af skógum, líkt og orðalag
Ara um landnotkun. Í millitíðinni
hefur hugmyndafræðin hins vegar
þróast heilmikið með skrifum og
samfélagsumræðu skógfræðinga. Það
er ekki von til þess að almenningur
fylgist með þróun hugmyndafræði
í einni faggrein og því heldur fólk
gjarnan að hugmyndafræði sjálfbærni
hafi sprottið fullmótuð úr höfði Gro
Harlem Brundtland. Það gerði hún
að sjálfsögðu ekki.
Án þess að rekja alla söguna, þá
fjallar sjálfbærni um aðferðir við
nýtingu auðlinda. Hugmyndafræðin
samanstendur nú af tugum þátta
sem falla undir þrjá meginflokka,
hagræna, umhverfislega og
félagslega. Voru þessir þættir flestir
orðnir til í skógfræði og kenndir
verðandi skógfræðingum löngu
fyrir 1987. Auðlindanýting telst ekki
sjálfbær nema kröfum allra þriggja
flokka og þorra undirþátta þeirra
sé mætt. Mæta þarf ýmsum kröfum
um stöðuga arðsemi eða a.m.k. með
reglulegu millibili, nýtingin má
ekki skemma eða eyðileggja loft-
eða vatnsgæði eða búsvæði lífvera
í stórum stíl, samfélagið þarf að
vera sátt við nýtinguna og hún má
ekki ganga á lífsgæði fólks um of. Á
undanförnum 40 árum hefur almenna
samfélagsumræðan um sjálfbærni
einkum snúist um umhverfisflokkinn
og innan hans um flokkun sorps. Það
er svo gróf einföldun að hún á í raun
varla nokkuð skylt við sjálfbærni í
heild.
Innan umhverfisflokksins
hefur nýr mælikvarði á sjálfbærni
nýtingar bæst við á síðustu áratugum,
þ.e. binding koltvísýrings úr
andrúmsloftinu og varðveisla kolefnis
í skógi, öðrum gróðri og mold. Sem
fyrr hefur sú umræða mótast að miklu
leyti innan skógræktargeirans og er
komin lengst þar vegna órjúfanlegra
tengsla skógfræði við sjálfbærni.
Þess vegna er öll þessi áhersla á
mikilvægi verndar regnskóganna og
aukna skógarþekju yfirleitt.
Auðlindin sem um ræðir verður
fyrst að vera til og í sæmilegu ástandi
til þess að taka megi upp aðferðir
sjálfbærni. Hugmyndin er að við sem
notum auðlindina nú gerum það á
þann hátt að komandi kynslóðir geti
það einnig. En hvað ef fyrri kynslóðir
hafa gengið svo hart að auðlindinni
og gæði hennar rýrnað svo mjög að
hún er vart svipur hjá sjón? Hvað
ef við sjálf erum þessar „komandi
kynslóðir“ og stöndum frammi fyrir
auðlind sem búið er að nota upp til
agna, ónýtri auðlind í orðsins fyllstu
merkingu? Er einu sinni hægt að tala
um nokkuð í líkingu við sjálfbæni
þegar svo er komið?
Nei, auðvitað ekki. Þegar því
sem næst allir skógar eru eyddir,
helmingur alls jarðvegs fokinn á
haf út og gróðurinn sem eftir er svo
rýr og aumur að hann vex varla, þá
er of seint í rassinn gripið. Nýting
þeirra auðlindaleyfa getur ekki verið
sjálfbær. Af henni er engan arð að
hafa nema með mikilli meðgjöf, hún
veldur áfram skaða á umhverfinu og
hún leiðir til félagslegra erfiðleika og
fátæktar, sem sjá má á því að fólk
yfirgefur dreifbýlið sem aldrei fyrr.
Þegar svo er komið verður að
endurheimta auðlindina áður en
hægt er að tala um sjálfbæra nýtingu
hennar. Í skógrækt felst þróun í átt
að sjálfbærni í því að byggja upp
skógarauðlind og á meðan verði
nýting hennar svo takmörkuð að
auðlindin eflist eins og kostur
er. Í annarri landnotkun gildir
svipað. Byggja þarf upp gróður- og
jarðvegsauðlindirnar og á meðan þarf
nýting þeirra að vera svo takmörkuð
að þær eflist eins og kostur er. Ég
endurtek að í þessu felst þróun í átt
að sjálfbærni en ekki sjálfbær nýting.
Í nýjum landgræðslulögum er
kveðið á um að tryggja skuli að
landnýting sé sjálfbær. Svipað
ákvæði er í nýjum skógræktarlögum
um nýtingu skóga. Hvort tveggja
ber að túlka sem svo að það sé vilji
löggjafans að unnið skuli að þróun í
átt að sjálfbærni í þeim málaflokkum.
Innan þess ramma þarf síðan að setja
markmið, t.d. um aukið flatarmál
skóga eða aukna gróðurþekju á
afréttum, og að á meðan sé nýtingin
svo takmörkuð að markmiðin
náist á ásættanlegum tíma. Í ljósi
loftslagsröskunar og þarfarinnar
fyrir að binda koltvísýring úr
andrúmsloftinu höfum við ekki
mikinn tíma. Í sumum tilvikum þarf
að takmarka nýtingu svo mikið að
hún verði engin.
Þröstur Eysteinsson
skógræktarstjóri
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
LESENDABÁS
HAFNIÐ ORKUPAKKA ÞRJÚ – elskulegu alþingismenn
Í Morgunblaðinu 1. maí sl. er
athyglisverður leiðari með yfirskrift-
inni ,,BYLMINGSHÖGG“. Þar
segir frá umsögn, sem Alþýðu-
samband Íslands sendi utanríkis-
málanefnd Alþingis. ASÍ varar við
samþykkt þingsályktunartillögu
utanríkisráðherra á orkupakka
3. Þar segir að ríkisstjórnin hafi
lítið gert til að kynna málið fyrir
almenningi en gefið loðnar og
villandi upplýsingar. Þar segir
einnig að ríkisstjórnin hafi ætlað
sér að læða málinu í gegn sem
smámáli.
Sagt er, að það sé feigðarflan
að stefna að markaðsvæðingu á
rafmagni, en tekin yrðu skref í þá
átt með samþykkt orkupakka 3 og
því sem á eftir kemur. Svo virðist
sem ætlun stjórnvalda hafi verið
að blekkja saklausan almenning
af ásettu ráði – ódrengilegt væri
það, ef satt er. Ég trúi því vart, að
ASÍ fari með fleipur með þessum
yfirlýsingum. Þær eru bylmingshögg
á stjórnvöld.
Skref til ófarnaðar
Elskulegu fulltrúar okkar á Alþingi,
og þið aðrir sem hafið hugsað um
að styðja þingsályktunartillögu
utanríkisráðherra og samþykkja
orkupakka 3 á grundvelli aðildar
að EES. Ég bið ykkur um að
gera það ekki. Ég óttast að það sé
skref til ófarnaðar, fyrsta skref til
að veikja íslenska stjórn á eigin
orku. Hugsið málið betur og lítið
til framtíðarinnar, sjáið hvað felst í
orkupökkum 4 og 5, sem samþykkja
á næst og lítt eða ekki er farið að
kynna almenningi ennþá. Þar verður
gengið enn lengra í að veikja stjórn
Íslendinga á orkumálunum með
það takmark að ná henni undir
sameiginlega stjórn erlendis. Það
er markmið Evrópubandalagsins.
Fyrsta skref í þá átt er samþykkt
orkupakka þrjú.
Í nafni allra góðra vætta – ekki
troða þessu máli í gegnum Alþingi
Haldið ekki áfram á sömu
braut. Styðjið þá, sem vilja fella
þingsályktunartillöguna, frestið
þessu máli eða það sem best væri;
fáið varanlega undanþágu frá
orkupakkanum fyrir Ísland. Það
ætti að vera hægt, ef vilji er fyrir
hendi og nægilegur bitkraftur í
stjórnmálamönnum okkar. Annað
væru svik við okkur, sem ekki fáum
að kjósa um þetta stórmál. Í nafni
allra góðra vætta – ekki troða þessu
máli í gegnum Alþingi.
Ég trúi að það verði tekið vel eftir
því, hvaða alþingismenn samþykkja
orkupakkann, ef til atkvæðagreiðslu
kemur. Slíkt samþykki gæti orðið
þeim dýrkeypt. Lesið leiðarann og
rökin þar og annars staðar gegn
samþykkt orkupakkans. Nú er
ögurstund.
Föllum ekki fyrir þessu máli
Ég heiti á landvættina að styrkja
okkur öll til að standast pólitískan
og fjárhagslegan þrýsting. Föllum
ekki fyrir þessu máli. Hugsið
um auðlindir okkar, sem eru
í hættu fyrir sölumönnum og
niðurrifsöflum, innlendum sem
erlendum. Auðlindir okkar eru
hreint umhverfi, heilbrigðara
búfé og heilnæmari afurðir en
annars staðar eru til. Þetta segi
ég sem dýralæknir eftir 50 ára
starf og baráttu gegn innfluttum
smitsjúkdómum í búfé.
Auðlindirnar eru fyrst og fremst
orkan í vatnsföllum, jarðhitinn,
lífið í sjónum og krafturinn í
sjávarföllum, vindurinn, sem knúið
getur vindmyllurnar og landið sjálft.
Hugsið með kærleik til íbúanna,
sem þið megið ekki svíkja og
hugsið til föðurlandsins, sem við
eigum að mestu leyti óselt ennþá
útlendum auðjöfrum, sem margir
eru óbundnir af íslenskum lögum
og greiða ekki sanngjarna skatta.
Stöðvið með lagasetningu allt það
sem aflaga fer í þessum efnum.
Stöndum keik með framtíðinni
og börnum okkar
Við skulum standa keik með
framtíðinni, með börnunum okkar,
óskoruðu fullveldi landsins og verja
lífsgrundvöll okkar af alefli, svo að
við getum aðstoðað betur þá sem
eiga bágt á Íslandi og þá sem til
okkar leita erlendis frá í neyð.
7. maí 2019,
Sigurður Sigurðarson,
dýralæknir frá Keldum
Eftirfarandi kviðlingur verður ásamt lagi á geisladadisk, sem út kemur í haust. Lagið er sungið af þrumubassa frá Akureyri. Þar er vísað
til Njálu og draums Flosa á Svínafelli eftir Njálsbrennu.
Við Lómagnúp stendur hann stafkarlinn gamli og starir út yfir haf.
Hann skyggnir þá Evrópubandalagsöldu, sem allt gæti fært hér í kaf.
Ótrauður stendur hann áfram á verði og eflir á fullveldið trú,
en kuldaleg röddin kallar þá alla, sem kæfðu í skuldum vor bú.
Járnstafinn láttu á lend þeirra falla, sem lögðu í rúst okkar bú
og læðast að okkur nú.
Sigurður Sigurðarson.
Hluti svars um sjálfbæra landnýtingu
Þröstur Eysteinsson.