Bændablaðið - 16.05.2019, Page 35

Bændablaðið - 16.05.2019, Page 35
Bændablaðið | Fimmtudagur 16. maí 2019 35 BÆKUR& MENNING – Steinsagir, kjarnaborvélar, gólf- og vegsagir MHG Verslun ehf | | 20 Kópavogi | Sími 544-4656 | www.mhg.is ALLT FYRIR ATVINNUMANNINN HUSQVARNA FS 400 LV Sögunardýpt 16,5 sm HUSQVARNA K 7 0 Sögunardýpt 12,5 sm HUSQVARNA K 2500 Sögunardýpt 14,5 sm HUSQVARNA DM 230 HUSQVARNA K 3600 MK II Sögunardýpt 27 sm HUSQVARNA Steinsagarblöð og kjarnaborar Lely Center Ísland Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600 HAUGHRÆRUR EAST ICELAND – Top Peaks – Ensk útgáfa á bókinni 101 Austurland – tindar og toppar Bókstafur hefur undanfarna mánuði unnið að endurútgáfu bókarinnar 101 Austurland – tindar og toppar eftir Skúla Júlíusson, í enskri þýðingu Philips Vogler. Íslenska útgáfan kom út vorið 2016 og hafa selst á þriðja þúsund eintök. Ferðamannastaðir hafa töluvert spurt eftir enskri útgáfu sem hentar erlendum gestum þar sem aðsókn gönguferðafólks fer vaxandi og Ísland er að verða þekktur áfangastaður víða um lönd. Freistar landið ekki síst þeirra sem vilja skoða óspillta náttúru og anda að sér fersku fjallalofti. Á Austurlandi er nóg af slíku og umferð ferðafólks er hófleg miðað við aðra landshluta. Í bókinni er lýst miserfiðum leiðum á 101 fjall á Austurlandi og gefur höfundur þeim erfiðleikastig frá 1 upp í 5. Við hvert fjall er sýnt kort þar sem leiðin á toppinn er sýnd. Þar eru enn fremur myndir af viðkomandi fjalli og glögg leiðarlýsing. Til að auðvelda fjallgöngufólki ferðina er svonefndur QR-kóði við hvert fjall sem hægt er að skanna með farsíma og finna þannig gps-feril sem vísar fólki rétta leið. Bókin verður til sölu í bókabúðum og á öllum helstu ferðamannastöðum á Austurlandi og víðar um land. Þá hefur verið spurt eftir henni erlendis meðal gönguferðafólks sem fyrirhuga slík ferðalög um Ísland. Verður að vona að bókin bæti úr sárum skorti á aðgengilegri kynningu á því sem landið hefur að bjóða öllum þeim fjölda sem hyggjast sækja landið heim og njóta hinnar óspilltu og fjölbreyttu náttúru. Þegar þetta er ritað er verið að leggja lokahönd á útlit bókarinnar og er stefnt að útkomu hennar í júnímánuði næstkomandi. Í framhaldinu er fyrirhugað að gefa út aðra bók sem lýsir léttari gönguleiðum á Austurlandi og mun hún koma út samtímis á íslensku og ensku. Skúli Júlíusson og gönguskórnir. LESENDABÁS „Að draga rangar ályktanir“ Talsmaður heildsala, Ólafur Stephensen, framkvæmda- stjóri Félags atvinnurekenda (FA), sakar afurðastöðvar um tvískinnung í afstöðu gegn innflutningi á kjöti þar sem þær flytji inn kjöt og því geti innflutt kjöt ekki verið hættulegt eins og haldið er fram. Þessi ályktun er röng Fullyrða má að það sé hagur afurðastöðva og innlends landbúnaðar að Ísland sé sjálfu sér nægt og ekki sé flutt inn kjöt. En svona er staðan ekki. Ísland hefur gert tollasamninga við Evrópusambandið sem leyfir verulegan innflutning á kjöti. Þetta kjöt verður flutt inn hvort sem mönnum líkar betur eða verr. Afurðastöðvar, margar hverjar, hafa því ákveðið að bjóða í tollkvótana þar sem þær eru í þessum rekstri og hafa kerfi til að meðhöndla innflutt kjöt. En innflutt kjöt er ekki allt eins. Það er mikill munur á lyfjanotkun og aðstæðum til kjötframleiðslu innan Evrópusambandsins, en tollasamningur Íslands við ESB gerir engan greinarmun á því hvaðan kjötið kemur. Þær afurðastöðvar sem undir- ritaður þekkir til, stunda ábyrgan innflutning og velja að flytja inn kjöt frá löndum þar sem lyfjanotkun er í lágmarki og því heilnæmara kjöt en hægt væri að kaupa annars staðar innan ESB á lægra verði. Það er staðreynd sem ekki verður haggað að sýklalyfjaónæmi er ein helsta heilsufarsógnun mannkyns. Átakinu „Öruggur matur“, sem margir innlendir aðilar standa að, er ætlað öðru fremur að vekja athygli á þessari staðreynd og hvetja fólk til að setja matvælaöryggi í fyrsta sæti þegar það kaupir inn. Á næstu árum er mikilvægt að innlend stjórnvöld móti stefnu á þessu sviði og gerðar verði kröfur um hámark lyfjanotkunar gagnvart erlendum aðilum sem hingað vilja flytja kjöt. Eftir því sem fólk neytir meira af kjöti eða annarri matvöru sem inniheldur sýklalyfjaónæmar bakteríur, þeim mun líklegra er að viðkomandi þrói með sér slíkt ónæmi. Það er því ástæða til að hafa áhyggjur af auknum innflutningi kjöts. Steinþór Skúlason, forstjóri Sláturfélags Suðurlands Steinþór Skúlason.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.