Bændablaðið - 16.05.2019, Page 41

Bændablaðið - 16.05.2019, Page 41
Bændablaðið | Fimmtudagur 16. maí 2019 41 Fæst hjá dýralæknum og í hesta- og búvöruverslunum um allt land www.primex.is s. 460 6900 Mjög græðandi og bakteríudrepandi Hefur reynst vel við hnjóskum á hrossum Dregur úr blæðingu Íslenskt hugvit, hráefni & framleiðsla Íslenskt sárasprey fyrir öll dýr, stór og smá Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300 LESENDABÁS Innflutningur á ófrosnu hráketi og öðru hrámeti Góðu alþingismenn og embættis- menn! Standið gegn frumvarpi landbúnaðarráðherra um leyfi til innflutnings á ófrosnu hráketi og hrámeti öðru. – Það er í bráð og lengd hættulegt mönnum og dýrum, ef gefið verður eftir. Ástæðan er sú að íslenskir dýrastofnar hafa verið lengi einangraðir og því varnarlitlir gegn smitefnum, sem ekki hafa borist hingað áður. Margoft hafa áður óþekktir smitsjúkdómar borist til landsins með ógætilegum og óþörfum innflutningi og valdið stórfelldu tjóni og erfiðleikum. Frumvarp ráðherrans um breytingar á lögum um dýrasjúkdóma hefur auk þess í för með sér aukna hættu á innflutningi sýklastofna, sem engin lyf vinna á. Það er hættulegt heilsu manna og dýra. Viðnámsaðgerðir og varúðar- ráðstafanir til að draga úr eða koma í veg fyrir slíka hættu hafa fæstar komið að nokkru gagni. Svo mun vera um viðnámsaðgerðir og tryggingar, sem teflt hefur verið fram nú. Þær eru sýnist mér að mestum hluta hjóm eða blekkingaleikur. Menn virðast hrekjast undan þrýstingi hagsmunaafla innanlands og reglum erlendis frá, sem ekki eru heilagar. Þær eiga sumar alls ekki við hér á landi, hægt að mótmæla og verjast og berjast fyrir rétti okkar. Landbúnaðarráðherra á sjálfur að standa í fararbroddi í vörninni en ekki ýta ábyrgðinni yfir á aðra eins og hann hefur gert. Af hverju er hann að bregðast í stað þess að berjast? Dýralæknar virðast láta blekkjast Mér virðist að nokkrir dýralæknar, meira segja dýralæknar í hæstu stöðum, séu, svo ótrúlegt sem það er, um það bil að láta blekkjast til fylgis við þetta ógæfulega viðhorf og geti með afstöðu sinni svikið skjólstæðinga okkar, dýrin, og bregðast í vörninni í stað þess að berjast fyrir rétti dýra og landsmanna eins og þeim er skylt. Sjáið að ykkur, góðir kollegar, standið á vakt og bilið ekki. Vörnin er til, ef viljann skortir ekki. Fellið þetta frumvarp. Það þarf að standa í fæturna Það er hræðsluáróður og ósæmileg ógnun, að fullyrða að óreyndu að spillt verði fyrir sölu á fiski frá Íslandi, ef við samþykkjum ekki þetta mál. Orkumálin og sala á sjávar- afurðunum eru lífsgrunnur okkar nú og í framtíðinni. Svo slæmir eru viðsemjendur okkar ekki og vinir að fornu og nýju, að þeir vilji taka fyrir kverkar okkar. Þeim er skylt að sýna skilning samkvæmt samningum, en til þess má heimavarnarliðið ekki bregðast. Það þarf að standa í fæturna, rökstyðja okkar málstað og berjast fram í rauðan dauðann. Grípið til duglegra varna, stjórnmálamenn og dýralæknar. Herðið bein í nefi. Þar er varla eintómt brjósk. Tryggingar dugðu ekki þegar á reyndi Meira en hálfa ævina hef ég ásamt fleirum verið að berjast gegn afleiðingum óviturlegra ákvarðana stjórnvalda, m.a. um innflutning af ýmsu tagi, sem allar áttu að hafa bestu tryggingar gegn hugsanlegum hættum en dugðu ekki, þegar á reyndi. Barátta hefur samt skilað árangri. Mörgum innfluttum smitsjúkdómum hefur verið útrýmt á löngum tíma með ærnum kostnaði og fórnum. Ég hef margra áratuga reynslu í þessum efnum og vil ekki að við þurfum að heyja mörg fleiri stríð af sama tagi. Hver er nauðsyn þess að samþykkja þetta nú? Hættan blasir við, ef slegið er undan og stjórnvöld sýna kæruleysi við varnir eins og nú virðist vera. Ég hef ekki séð rök fyrir því annað en ótta við illskeyttar hefndaraðgerðir stofnana Evrópubandalagsins, sem hægt er að verjast eins og í Icesave- málinu, ef vilji og staðfesta er fyrir hendi hjá stjórnmálamönnum. 5, maí 2019 Sigurður Sigurðarson dýralæknir frá Keldum Sigurður Sigurðarson. EXPLORE WITHOUT LIMITS NÝ VEFVERSLUN! Búnaður fyrir jeppann og ferðalagið. Arctic Trucks Kletthálsi 3 110 Reykjavík sími 540 4900 info@arctictrucks.is www.arctictrucks.isEXPLORE WITHOUT LIMITS ® www.arctictrucks.is Kíktu á vöruúrvalið! Frír sendingarkostnaður ef verslað er fyrir 5.000 krónur eða meira! Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300 Næsta blað kemur út 29. maí Lely Center Ísland Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600 DRIFSKÖFT OG DRIFSKAFTAEFNI

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.