Bændablaðið - 16.05.2019, Síða 41
Bændablaðið | Fimmtudagur 16. maí 2019 41
Fæst hjá dýralæknum og í
hesta- og búvöruverslunum
um allt land
www.primex.is
s. 460 6900
Mjög græðandi og bakteríudrepandi
Hefur reynst vel við hnjóskum á hrossum
Dregur úr blæðingu
Íslenskt
hugvit, hráefni
& framleiðsla
Íslenskt sárasprey
fyrir öll dýr, stór og smá
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
LESENDABÁS
Innflutningur á ófrosnu
hráketi og öðru hrámeti
Góðu alþingismenn og embættis-
menn! Standið gegn frumvarpi
landbúnaðarráðherra um leyfi
til innflutnings á ófrosnu hráketi
og hrámeti öðru. – Það er í bráð
og lengd hættulegt mönnum og
dýrum, ef gefið verður eftir.
Ástæðan er sú að íslenskir
dýrastofnar hafa verið lengi
einangraðir og því varnarlitlir gegn
smitefnum, sem ekki hafa borist
hingað áður. Margoft hafa áður
óþekktir smitsjúkdómar borist
til landsins með ógætilegum og
óþörfum innflutningi og valdið
stórfelldu tjóni og erfiðleikum.
Frumvarp ráðherrans um breytingar
á lögum um dýrasjúkdóma hefur
auk þess í för með sér aukna hættu
á innflutningi sýklastofna, sem engin
lyf vinna á. Það er hættulegt heilsu
manna og dýra.
Viðnámsaðgerðir og varúðar-
ráðstafanir til að draga úr eða
koma í veg fyrir slíka hættu hafa
fæstar komið að nokkru gagni. Svo
mun vera um viðnámsaðgerðir og
tryggingar, sem teflt hefur verið fram
nú. Þær eru sýnist mér að mestum
hluta hjóm eða blekkingaleikur.
Menn virðast hrekjast undan
þrýstingi hagsmunaafla innanlands
og reglum erlendis frá, sem ekki eru
heilagar. Þær eiga sumar alls ekki
við hér á landi, hægt að mótmæla
og verjast og berjast fyrir rétti okkar.
Landbúnaðarráðherra á sjálfur
að standa í fararbroddi í vörninni
en ekki ýta ábyrgðinni yfir á aðra
eins og hann hefur gert. Af hverju
er hann að bregðast í stað þess að
berjast?
Dýralæknar virðast láta blekkjast
Mér virðist að nokkrir dýralæknar,
meira segja dýralæknar í hæstu
stöðum, séu, svo ótrúlegt sem það
er, um það bil að láta blekkjast til
fylgis við þetta ógæfulega viðhorf
og geti með afstöðu sinni svikið
skjólstæðinga okkar, dýrin, og
bregðast í vörninni í stað þess að
berjast fyrir rétti dýra og landsmanna
eins og þeim er skylt. Sjáið að
ykkur, góðir kollegar, standið á vakt
og bilið ekki. Vörnin er til, ef viljann
skortir ekki. Fellið þetta frumvarp.
Það þarf að standa í fæturna
Það er hræðsluáróður og ósæmileg
ógnun, að fullyrða að óreyndu að
spillt verði fyrir sölu á fiski frá
Íslandi, ef við samþykkjum ekki
þetta mál.
Orkumálin og sala á sjávar-
afurðunum eru lífsgrunnur okkar
nú og í framtíðinni. Svo slæmir eru
viðsemjendur okkar ekki og vinir að
fornu og nýju, að þeir vilji taka fyrir
kverkar okkar. Þeim er skylt að sýna
skilning samkvæmt samningum,
en til þess má heimavarnarliðið
ekki bregðast. Það þarf að standa í
fæturna, rökstyðja okkar málstað og
berjast fram í rauðan dauðann. Grípið
til duglegra varna, stjórnmálamenn
og dýralæknar. Herðið bein í nefi.
Þar er varla eintómt brjósk.
Tryggingar dugðu ekki
þegar á reyndi
Meira en hálfa ævina hef ég ásamt
fleirum verið að berjast gegn
afleiðingum óviturlegra ákvarðana
stjórnvalda, m.a. um innflutning af
ýmsu tagi, sem allar áttu að hafa
bestu tryggingar gegn hugsanlegum
hættum en dugðu ekki, þegar á
reyndi. Barátta hefur samt skilað
árangri. Mörgum innfluttum
smitsjúkdómum hefur verið útrýmt
á löngum tíma með ærnum kostnaði
og fórnum.
Ég hef margra áratuga reynslu
í þessum efnum og vil ekki að við
þurfum að heyja mörg fleiri stríð af
sama tagi. Hver er nauðsyn þess að
samþykkja þetta nú?
Hættan blasir við, ef slegið er
undan og stjórnvöld sýna kæruleysi
við varnir eins og nú virðist vera. Ég
hef ekki séð rök fyrir því annað en
ótta við illskeyttar hefndaraðgerðir
stofnana Evrópubandalagsins, sem
hægt er að verjast eins og í Icesave-
málinu, ef vilji og staðfesta er fyrir
hendi hjá stjórnmálamönnum.
5, maí 2019
Sigurður Sigurðarson
dýralæknir frá Keldum
Sigurður Sigurðarson.
EXPLORE WITHOUT LIMITS
NÝ VEFVERSLUN!
Búnaður fyrir jeppann og ferðalagið.
Arctic Trucks
Kletthálsi 3
110 Reykjavík
sími 540 4900
info@arctictrucks.is
www.arctictrucks.isEXPLORE WITHOUT LIMITS
®
www.arctictrucks.is
Kíktu á vöruúrvalið!
Frír sendingarkostnaður
ef verslað er fyrir 5.000
krónur eða meira!
Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300
Næsta blað kemur út 29. maí
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
DRIFSKÖFT
OG DRIFSKAFTAEFNI