Bændablaðið - 16.05.2019, Side 42

Bændablaðið - 16.05.2019, Side 42
Bændablaðið | Fimmtudagur 16. maí 201942 Hið árlega og þekkta danska fagþing nautgriparæktarinnar var haldið á dögunum og venju samkvæmt voru þar flutt mörg áhugaverð og framsækin erindi og þó svo að mörg þeirra lúti sér í lagi að danskri nautgriparækt eru alltaf margir fyrirlestrar sem eiga ekki síður erindi við alla þá sem stunda nautgriparækt í Evrópu. Fer hér þriðji og síðasti hluti umfjöllunar um þetta þekkta fagþing sem innihélt 68 erindi í 10 ólíkum málstofum. 7. Vinna á kúabúum Þessi málstofa er ný á danska fagþinginu en hún er sérstaklega ætluð erlendu starfsfólki á dönskum kúabúum. Hugmyndin með þessari málstofu er að þarna geti erlent starfsfólk sótt sér sérhæfðan fróðleik sem er sérstaklega sniðinn að hefðbundinni daglegri vinnu á kúabúum eins og t.d. umhirðu kálfa, mjöltum og eftirliti með júgurheilbrigði, beiðslisgreiningu og fleira mætti nefna. Í málstofunni var einnig gerður sérstakur gaumur að því hvernig best sé að samlagast dönsku samfélagi, hvað erlendir borgarar þurfi að læra og skilja varðandi danskt samfélag. Hvernig gott sé að standa að því að læra málið og þar fram eftir götunum. Virkilega gott skref sem þarna var tekið enda er erlent vinnuafl í dönskum landbúnaði afar mikilvægt og framlag þessa góða fólks eitt af því sem heldur þarlendum landbúnaði í fremstu röð. 8. Búrekstur Í þessari málstofu voru haldin 7 erindi en flest þeirra sneru að málefnum sem sérstaklega varða danskan landbúnað. Það voru þó tvö erindi sem eiga einnig beint erindi til íslenskra bænda og sneri annað þeirra að þeirri staðreynd að rekstur kúabús og rekstur heimilis er oftar en ekki nátengt. Fyrir vikið er heimilið oft undir ef t.d. heilsan brestur eða ef alvarleg slys verða. Það var ráðgjafarfyrirtækið Centrovice sem fór yfir þessi málefni og var þar m.a. komið inn á það að kúabændur þurfi og eigi að velta því fyrir sér hvernig yrði séð fyrir búrekstrinum t.d. ef hjón skilja, alvarleg slys verða eða ef um jafn hörmulegan atburð og andlát væri að ræða. Þetta sögðu ráðgjafar Centrovice oft erfitt að ræða við bændur enda eru alvarleg áföll oft ansi fjarræn, en vissulega er möguleikinn til staðar og ábyrgðarfullir kúabændur þurfi að vera búnir að gera ráðstafanir sem tryggja bæði búskapinn og heimilið. Í Danmörku er t.d. frekar óalgengt að bændur geri erfðaskrár, nokkuð sem allir í rekstri ættu umsvifalaust að gera. Þá sýnir dönsk reynsla að ef eitthvað alvarlegt kemur upp á, þá fer reksturinn oft á hliðina af því að búrekstur-inn var í raun ekki búinn undir það að lenda í neinu áfalli. Það væru hins vegar til tilfelli þar sem bændurnir hafi gert áætlun sem yrði virkjuð ef eitthvað kæmi upp á og í þeim tilfellum sér mikinn mun á rekstrinum eins og t.d. við skilnað hjóna en ef kaupmáli hefur verið gerður reynist oftast mun auðveldara að halda áfram búrekstri svo dæmi sé tekið. Hitt erindið var sérlega áhugavert en það sneri að því hvernig bæta megi rekstur kúabúa með því að horfa fyrst og fremst á allt sem flokkast undir sóun á búinu. Þetta getur t.d. verið sóun á tíma, þ.a. léleg nýting dagvinnunnar, sóun á fóðri, aðföngum og margt mætti taka til. Þetta erindi var flutt af reynslumiklum héraðsráðunautum sem lögðu það til að ef kúabændur hafa raunverulegan áhuga á því að bæta reksturinn hjá sér þá þurfi þeir að horfa alvarlega á allt sviðið sem búreksturinn nær yfir og greina það hvar megi bæta úr. Sérlega gott sé að bera saman sambærileg bú og skoða þannig hvar aðrir eru að standa sig betur, það auðveldi leitina að sóuninni en auðvitað má finna hvar sóun verður líka með því einfaldlega að opna augun fyrir sóuninni. Þau tóku sem dæmi um sóun mikinn fóðurslæðing eða mikið magn af moði sem sýndi fyrst og fremst að fóðrunin væri röng. Annað dæmi var um uppeldi á kvígum og fyrsta burðaraldur en sumir láta kvígurnar bera fyrsta sinni þegar þær eru 25 mánaða eða eldri. Þetta er hrein og klár sóun enda löngu þekkt að ef þær bera 23–24 mánaða þá skila þær meiri hagnaði á lífsleiðinni en hinar sem bera eldri. Þær þurfi þó að vera vel við vöxt og þroska og það beinir spjótunum að sóun á vaxtargetu kálfa og svona er lengi hægt að halda áfram. Fleiri dæmi mætti nefna eins og sóun á framleiðslugetu kúa með því að láta þær standa og bíða eftir mjöltum, vinnu bænda við að sækja kýr í mjaltir í mjaltaþjónafjósum og þar fram eftir götunum. Í Danmörku hafa kúabændur sérlega gott aðgengi að gagnagrunni um eigin búrekstur og geta þeir borið saman ýmsa þætti við önnur kúabú eins og t.d. sæðingar- og burðaraldur, þroska á kvígum og ýmsa fleiri þætti sem hjálpa þeim að ná betri árangri. Í þessum sama gagnagrunni geta bændur séð afar skýrt hvað sóunin kostar þá í raun og veru en oft kemur það bændum á óvart hvað það er í rauninni dýrt að fá dauðfæddan kálf, hvað ótímabær slátrun er í raun kostnaðarsöm, hvað röng fóðrun er í raun dýr eða hvað það kostar í raun að láta kýr standa og bíða eftir einhverju í stað þess að nýta tímann í að éta eða framleiða mjólk. Þessi kostnaður er auðvitað misjafn á milli landa en t.d. í Danmörku er dauðfæddur kálfur metinn sem kostnaður upp á um 40 þúsund íslenskar krónur og hver klukkutími sem við látum kýrnar standa og bíða eftir t.d. mjöltum eða hverju öðru sem er þá tapast 1,5 lítrar af mjólk á hverja kú. 9. Heilbrigðismál Málstofan um heilbrigðismál í dönskum kúabúskap sneri mikið til að sérstökum málum sem mest varða danska bændur en þó komu nokkur af hinum 7 erindum inn á atriði sem beint má heimfæra á íslenskar aðstæður. Þannig sneri eitt erindið að júgurbólu af völdum E. coli en sumir hafa verið að bólusetja kýrnar gegn þessari vá sem veldur skæðum tilfellum af júgurbólgu og jafnvel dauða. Reynslan frá Danmörku sýnir að bólusetning getur haft jákvæð áhrif og dregið úr áhrifum júgurbólgu vegna E. coli en þó ekki nema að hluta til. Þá mæla danskir dýralæknar með því að bólusetja einungis kýr í áhættuhópi og ekki sóa bólusetningunni á allar kýr. Í raun er besta ráðið gegn þessu skæða júgurbólgusmiti að breyta vinnubrögðum og bæta þau. E. coli er baktería sem er víða í umhverfinu og það er ástæða fyrir því að sumir bændur ná að halda smitinu algjörlega niðri en aðrir ekki og skýringuna má finna í bústjórninni. Kýr eru t.d. viðkvæmar fyrir þessu smiti þegar afurðasemi þeirra er mest og þær sjálfar á ákveðnu aldursbili ef þær eru þá einnig á sama tíma í neikvæðu orkujafnvægi og jafnvel samhliða með slaka vítamína- og steinefnastöðu. Þá eru kýr í meiri áhættu ef þeirra nánasta umhverfi er óhreint, júgurhárum ekki haldið niðri né halahár klipt. Afar mikilvæg er að vinnubrögðin séu kórrétt ef kýr veikjast af E. coli og þær á t.d. alltaf að setja í einangrun og þar sem þær missa oft lystina þarf að tryggja vatnsbúskap þeirra með því að dæla í þær vatni og í Danmörku er mælt með allt að 80 lítrum af orkubættu vatni á dag. Þá þarf að snúa kúnni á þriggja tíma fresti og tryggja að hún fái ferskt fóður mörgum sinnum á dag. Auk þess þarf að sjálfsögðu að kalla til dýralækni! Annað erindi sneri að bættri mjólkurfóðrun smákálfa en þessa aðferð mætti etv. kalla þrepafóðrun og hún hefur nú verið til í rúman áratug. Hefðbundin aðferð í Danmörku, við mjólkurfóðrun Holstein kálfa, er að gefa þeim 5-6 lítra af mjólk í 50-60 daga og draga svo úr magninu niður í ekkert á fimm dögum. Þrepafóðrunin byggir hins vegar á því að gefa kálfunum frjálst aðgengi að mjólk fyrstu 25 dagana, en draga þá úr magninu um fjórðung á 6 dögum þannig að kálfar sem eru 31 daga gamlir myndu fá u.þ.b. 6 lítra og héldu því magni nokkurnveginn fram að 45 degi er þeir eru vandir af mjólk á fimm dögum. Kálfarnir fengu því einungis mjólk í 50 daga! Rannsókn á þrepafóðrun kálfa sýnir að þeir læra betur að éta og meta fóðurbæti, en hinir sem eru á föstu magni af mjólk, og skilar það sér Á FAGLEGUM NÓTUMUTAN ÚR HEIMI Snorri Sigurðsson snsig@arlafoods.com Norður-Kórea: Lakasta uppskera í áratug og fæðuskortur í landinu Uppskera í Norður-Kóreu hefur verið lítil undanfarinn tíu ár en var með allra minnsta móti á síðasta ári. Talið er að hátt í tíu milljón manns í landinu sem lifi við skort þurfi enn að herða sultarólina. Samkvæmt nýlegri skýrslu Sameinuðu þjóðanna segir að viðvarandi matvælaskortur í Norður-Kóreu sé kominn á hættulegt stig og að útlit sé fyrir að íbúar landsins þurfi enn að draga úr neyslu. Talin er hætta á að birgðir í landinu dugi ekki til að framfleyta þjóðinni fram yfir næsta uppskerutíma. Hitar og þurrkar Uppskera undanfarin tíu ár hefur verið með lakasta móti og var með afbrigðum léleg á síðasta ári vegna hita og þurrka í landinu. Í skýrslunni segir að skortur á eldsneyti, áburði og varahlutum í landbúnaðartæki hafi einnig letjandi áhrif á möguleika íbúa landsins til að auka uppskeruna. Auk þess sem slæmar aðstæður til geymslu á uppskerunni valdi því að mikið af henni skemmist. Lágmarksskammtur af hrísgrjónum Ástandið er talið verst þegar kemur að kornabörnum og ófrískum konum, sem í mörgum tilfellum þjást þegar af næringarskorti og sagt er að stór hluti þjóðarinnar dragi fram lífið á lágmarksskammt af hrísgrjónum frá degi til dags. Í skýrslunni er mælt með að íbúum Norður-Kóreu verði veitt matvælaaðstoð sem fyrst og að átak verði gert í að vélvæða landbúnað í landinu til að ýta undir aukna matvælaframleiðslu. /VH Hitar og þurrkar ollu því að uppskera í Norður-Kóreu var með allra minnsta móti á síðasta ári. Fagþing nautgriparæktarinnar í Danmörku – þriðji hluti Skógareyðing á heimsvísu 2018: Milljónir hektara felldir af hitabeltisskógum Gervihnattamyndir sýna að milljónir hektara af hitabeltis- regnskógum voru felldir á síðasta ári til þess að ala nautgripi og rækta kakó og olíupálma. Mest var skógareyðingin í Brasilíu þar sem skógar á friðlandi og á landi frumbyggja voru felldir ólöglega. Eyðing skóga var einnig gríðarleg í Kongó og Indónesíu. Góðu fréttirnar eru að gervihnattamyndirnar sýna að skógareyðingin hefur dregist saman miðað við árin 2017 og 2016. Þrátt fyrir það segja fulltrúar Global Forest Watch að ástandið sé grafalvarlegt og að setja verði náttúrulega skóga í gjörgæslu til að sporna við áframhaldandi eyðingu þeirra. Tallið er að alls hafi 3,6 milljónir hektara af ósnertum frumskógi í hitabeltinu orðið keðjusöginni að bráð á síðasta ári. /VH Sláttu- CODE ALARM PIN

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.