Bændablaðið - 16.05.2019, Side 45

Bændablaðið - 16.05.2019, Side 45
Bændablaðið | Fimmtudagur 16. maí 2019 45 Hreinræktaðir Aberdeen Angus- nautkálfar til sölu Eins og áður hefur komið fram fæddust 11 hreinræktaðir Angus kálfar í einangrunarstöðinni á Stóra Ármóti síðastliðið haust og þar af voru 5 naut. Stöðin er í eigu og rekin af Nautgriparæktarmiðstöð Íslands ehf (Nautís) en það félag er að jöfnu í eigu Bændasamtaka Íslands, Landssambands Kúabænda og Búnaðarsambands Suðurlands. Nautin hafa vaxið og dafnað vel og er meðal þungaaukning þeirra tæp 1500 g á dag fyrstu 8 mánuðina, en kynningu á hverju nauti fyrir sig má sjá hér í blaðinu. Hugmyndin hefur alltaf verið að taka sæði úr þessum nautum þegar þau hafa aldur til og frysta og selja svo nautin til bænda en nota kvígurnar til að byggja upp hreinræktaðan holdakúastofn á stöðinni. Skv reglugerð þurfa nautin að vera í 9 mánaða einangrun á stöðinni áður en leyfi fæst til að flytja þau til bænda. Þessari einangrun lýkur í byrjun júlí í sumar og þá þarf að taka úr nautunum sýni til staðfestingar á að þau séu laus við alla sjúkdóma. Þegar það liggur fyrir hefst sæðistaka og frysting sæðis. Ef allt gengur að óskum má reikna með að nautin verði tilbúin til afhendingar til nýrra eigenda í lok ágúst eða byrjun september. Söluferli nautanna Á fundi forsvarsmanna Nautís með holdanautabændum og aðilum úr stjórn LK kom fram að mikilvægt væri að flýta sem kostur er ráðstöfun nautanna svo bændur gætu gert áætlanir um val á undaneldisgripum heima á sínum búum. Til greina komu tvær leiðir við sölu á gripum frá Nautís þ.e. annars vegar opið uppboð og hinsvegar útboð þ.e. að óska eftir skriflegum tilboðum og nú hefur stjórn Nautís ákveðið að fara þá leið, þó með fyrirfram ákveðnu lágmarksverði. Við samningu á regluverki í kringum þetta ferli var aðallega horft til þess að tryggja dreifingu nautanna til sem flestra aðila svo þau myndu nýtast sem víðast. Stjórn Nautís hefur falið Bændabókhaldi ehf á Selfossi að sjá um framkvæmd útboðsins. Hverjir mega bjóða í kálfana? Rekstraraðilar í nautgriparækt - bæði einstaklingar og lögaðilar - geta sent inn tilboð uppfylli þeir eftirfarandi skilyrði: 1. Séu skráðir eigendur eða leigjendur lögbýlis og með lögheimili á Íslandi. 2. Stundi nautgriparækt og reki nautgripabú á lögbýlinu með virkt virðisaukaskattsnúmer og starfsemi þeirra falli undir atvinnugreinanúmer 01 og 02 í atvinnuvegaflokkun Hagstofu Íslands, sbr. ÍSAT2008, þó ekki starfsemi í undirflokkum 01.61, 01.62, 01.63, 01.64, 01.70 og 02.40. 3. Séu þáttakendur í afurða skýrslu- haldi Bænda samtaka Íslands og hafi sinnt fullnægjandi skilum á skýrslum fyrir framleiðsluárið 2018, sbr 4 gr. Reglugerðar nr 1261 / 2018. Tilboðsferill Tilboð verða að berast á þar til gerðu eyðublaði sem aðgengilegt verður á heimasíðu Búnaðarsambands Suðurlands (bssl.is) en þeir sem ekki geta nálgast eyðublaðið á þann hátt geta haft samband við skrifstofu BSSL (480-1800) og fengið blaðið sent til sín. Á eyðublaðinu er tilgreint í hvaða grip eða gripi er verið að gera tilboð en bjóða má í eins marga gripi og hver vill, en tilgreina skal hversu hátt er boðið í hvern þeirra. Ef sami aðili sendir inn fleiri en eitt tilboð gildir nýjasta tilboðið, en hver tilboðsgjafi getur bara haft eitt gilt tilboð í hvern grip. Lágmarksboð í hvern grip er 800.000 kr – áttahundruð þúsund kr - og verða lægri tilboð ekki tekin gild. Tilboðið á þar til gerðu eyðublaði þarf að senda í ábyrgðarpósti á: Nautgriparæktarmiðstöð Íslands, Pósthólf 35, 802 Selfoss Tilboðið þarf að vera póstlagt í síðasta lagi föstudaginn 31. maí 2019 en tilboðin verða síðan opnuð og unnið úr þeim þriðjudaginn 11. júní 2019. Ráðstöfun nautanna eftir opnun tilboða 1. Fyrst skal ganga úr skugga um að tilboð sem borist hafa séu gild þ.e. þau uppfylli öll þau skilyrði sem sett hafa verið. 2. Komi jöfn hæstu tilboð í einhvern grip frá tveimur eða fleiri aðilum skal hlutkesti ráða í hvaða röð tilboðin raðast. 3. Gengið skal frá sölu nautanna á þann hátt að fyrst er tekin fyrir sá gripur sem hæst er boðið í, þá sá sem næst hæst er boðið í og svo koll af kolli. Komi jafn hátt boð í tvo eða fleiri gripi skal hlutkesti ráða um röð þeirra nauta við sölu. 4. Hver tilboðsgjafi getur einungis fengið keyptan einn grip. Ef sami aðili á hæsta boð í fleiri en einn grip skal hann velja hvaða tilboði hann vill halda og dettur hann þá út sem tilboðsgjafi í önnur naut. 5. Kaupandi skal ganga frá greiðslu fyrir nautið inn á bankareikning Nautís í síðasta lagi 13 júní 2019. Litið er á greiðslu á þessum tímapunkti sem fyrirframgreiðslu en nautin verða áfram í eigu og á ábyrgð Nautís fram að afhendingardegi. 6. Sé ekki greitt inn á banka á réttum tíma fellur tilboðið úr gildi og sá sem átti næst hæsta boð í viðkomandi naut fær kaupréttinn. Hafi sá aðili þegar fengið keyptan annan grip getur hann valið hvorn gripinn hann vill taka. Við svona breytingar á einum grip getur því kaupréttur breyst á fleiri nautum. 7. Ef gripur stenst ekki dýralæknisskoðun varðandi almennt heilsufar eða sæðisgæði að lokinni sæðistöku fellur sá gripur út úr sölumeðferð og fær kaupandi þá endurgreitt kaupverð. Þetta hefur þó ekki áhrif á röð tilboða eða kauprétt á öðrum nautum. 8. Berist ekki gilt tilboð í einn eða fleiri af gripunum mun stjórn Nautís ákveða hvernig með þá gripi verður farið í framhaldinu. 9. Fh. hönd stjórnar Nautgriparæktarmiðstöðvar Íslands Sveinn Sigurmundsson framkvæmdastjóri Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins Smiðjuvegi 44-46 | 200 Kópavogur | Sími 414 2700 | idnvelar@idnvelar.is | www.idnvelar.is • 130 ltr stáltunna • slær ekki aftur inn eftir straumrof • stórt stillanlegt stýrihjól • steypujárns tannhringur • rafmagn 230 V / 50 Hz • mótorafl 550 W • 130 lítrar • hraði á tunnu 26 rpm • stærð 1200x710x1450 mm • þyngd 48 kg 53.600,- TILBOÐ VOR Öll verð eru í íslenskum krónum með vsk. og birtast með fyrirvara um innsláttar- og prentvillur. Tilboð gilda á meðan að birgðir endast. Sérpöntunarverð miðast við gengi hvers tíma. Sérpöntunarverð í bæklingnum miðast við gengið 1 EUR = 136 ISK. Tilboðin gilda til 31.05.2019 brettatjakkur HUB25T 64.500,- fræsivél BF16V 159.500,- hjólsög HKS210L 19.800,- Pokasog ABS3880 ABS3880 soggeta 3000 m³/h stærð á poka 2x200 l sogtengi 3x100 mm þrýstingur 1750 Pa mótorafl s1/s6 2200 / 3300 W mótorhraði 2950 min-1 rafmagn 230 V þyngd 52 kg 82.500,- rennibekkur járn ED1000NDIG & ED1000KDIG ED1000NDIG 1.650.000,- 950.000,- ED1000KDIG ED1000NDIG Skoðið fleiri vortilboð á heimasíðu Iðnvéla: www.idnvelar.is bandsög járn BS712PRO 281.000,- steypuhrærivél ZI-BTM130 bandsög HBS230HQ 54.800,- • 230V / 50 Hz • 300W • borð 300x300 mm; 0°-45° • hámarks skurðarhæð við 90° 90 mm • blaðlengd 1575 mm • blaðvíddir 3-10 mm • blaðhraði 635 rpm • heildarhæð 790 mm • 20 kg • 400 V • 1,1 kW • sagarblað 2362x20x0,9 mm • 24/41/61/82 m/min • sagar í +/-45° Bænda bbl.is Facebook

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.