Bændablaðið - 16.05.2019, Qupperneq 48
Bændablaðið | Fimmtudagur 16. maí 201948
MATARKRÓKURINN
LÍF&LYST – BÆRINN OKKAR
Á bænum Kornsá búa Harpa
Birgisdóttir og Birgir Þór
Haraldsson. Þau tóku við búskap
af foreldrum Hörpu vorið 2017.
Býli: Kornsá.
Staðsett í sveit: Í Vatnsdal, fegurstu
og veðursælustu …
Ábúendur: Harpa Birgisdóttir og
Birgir Þór Haraldsson.
Fjölskyldustærð (og gæludýra): Við
erum tvö með tvo fjárhunda, Kappa
og Lottu.
Stærð jarðar? 650 ha.
Gerð bús? Sauðfjárbú.
Fjöldi búfjár og tegundir? 600
kindur og 30 hross.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Það er árstíðabundið eins og gengur
og gerist á sauðfjárbúum. Harpa fer
til vinnu á Blönduósi en hún starfar
sem ráðunautur hjá RML.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin? Ætli okkur finnist
ekki skemmtilegast í sauðburði og
fjárragi á haustin. Engin sérstök
bústörf leiðinleg en alltaf leiðinlegt
þegar vélar bila og skepnur veikjast.
Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir
ykkur á jörðinni eftir fimm ár?
Með svipuðu sniði, vonandi meiri
afurðir og betri hross.
Hvaða skoðun hafið þið á
félagsmálum bænda? Við teljum
að þeir sem þar starfi standi sig vel
og teljum mikilvægt að allir bændur
óháð búgreinum standi saman.
Hvernig mun íslenskum
landbúnaði vegna í framtíðinni?
Vel.
Hvar teljið þið að helstu tæki-
færin séu í útflutningi íslenskra
búvara? Með því að halda á lofti
hreinleika íslenskra búvara og
þeirra aðstæðna sem við fram-
leiðum við.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Skyr.
Hver er vinsælasti maturinn á
heimilinu? Lambalæri.
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin? Við fengum lambhrút
undan Ösp 13-326 og Klett frá
Borgarfelli fyrir þremur dögum, það
var mjög gaman.
Sushi-pitsa og vegan kasjúhnetuís
Sumir eru óöruggir í að rúlla
sushi-rúllur eða maki. Þess vegna
er góð tilbreyting að gera sushi-
pitsu og það er líka auðvelt.
Sushi hrísgrjón eru styttri
hrísgrjón en þessi venjulegu og verða
klístruð sem gerir það auðveldara
að halda sushi-inu saman. Þau eru
tilvalin fyrir pitsubotn með ýmsu
áleggi að austurlenskum sið.
Hrísgrjóna sushi-botn
› 2 bollar sushi hrísgrjón
› 2 bollar kalt vatn
› ½ bolli hrísgrjónaedik
› 2 msk. sykur
› 1 msk. salt
› 4 tsk. matarolía
› ½ avókadó, sneiðar
› ½ flak lax, þunnt skorið
› ¼ agúrka
› 2 msk. sneiddur graslaukur
› ½ msk. kavíar eða annað til skrauts
› ½ tsk. svört sesamfræ
Aðferð
1. Setjið hrísgrjón í fínt sigti og
skál með köldu vatni í þrjú
skipti, hrærið kröftuglega og
lyftið sigtinu upp þar til allt
vatn hefur runnið af. Skolið vel
á milli. Þetta er gert til að skola
burt óþarfa sterkju.
2. Leggið hrísgrjónin í mælda
vatnið í uppskriftinni, látið
suðuna koma upp frekar hratt.
Dragið hita niður í lágmark
með loki og látið malla í 15
mínútur. Takið af hitanum og
látið standa í tíu mínútur.
3. Blandið hrísgrjónaediki, salti
og sykri saman í skál. Hrærið
þar til sykur og salt eru leyst
upp. Setjið út á heit hrísgrjónin
og blandið varlega saman
við sleikju. Látið standa í tíu
mínútur.
4. Skiptið hrísgrjónablöndunni í
fjórar kúlur, á stykki af nori-
þara eða á smjörpappír, fletjið
hvern bolta í sentimetra þykkt.
5. Hellið fjórum teskeiðum af olíu
á pönnu sem er miðlungsheit.
Steikið á einni hliðinni, þar til
grjónin eru stökk og léttgullin,
í um 2 mínútur. Gerið það svo
sama á hina hliðina.
6. Færið grjónin yfir á skurðbretti
og skerið hverja sushi-pitsu
í fjórðung. Skreytið með
avókadó, gúrku, laxi og
graslauk. Toppið með kavíar
eða því meðlæti sem á að nota
og stráið sesamfræjum yfir og
framreiðið með wasabi-aioli.
Wasabi-aioli
› 1 eggjarauða
› 1 tsk. Dijon-sinnep
› 1 bolli góð bragðlítil olía
› 2 tsk. wasabi duft
› 2 msk. hrísgrjónaedik
Í meðalstórri skál er eggjarauðan
þeytt (eða notið tilbúið majónes)
kryddið með sinnepi. Hrærið
stöðugt á meðan hellt er hægt, þar
til blandan er orðin þykk. Hrærið
í wasabi-dufti og hrísgrjónaediki
saman við til bragðbætingar.
Vegan kasjúhnetuís eða -jógúrt
Allir ísgrunnar þurfa rétt hlutfall af
fitu til að ná góðri áferð á frystan
ísgrunninn. Frystan vökvann
þarf að vinna saman í blandara
eða matvinnsluvél til að fá sem
minnst af ískristöllum, sem eru
mjúkir, sveigjanlegir og gljáandi.
Margir vegan ísgrunnar innihalda
kókosmjólk til að bæta við fitu
og bragði í stað mjólkur, en fá
rjómakennda áferð frá fitunni. Þessi
uppskrift er með kasjúhnetu- og
hlynsírópi til að ísinn sé örugglega
vegan, en má breyta að vild og nota
mjólk, sykur eða hunang fyrir sætu.
› 400 g ósykrað kasjúhnetusmjör (eða
kasjúhnetur sem lagðar eru í bleyti
yfir nótt)
› 400 ml eða tveir bollar af ósykraðri,
möndlu- eða sojamjólk
› 3/4 bolli hlynsíróp
› Klípa af salti
› (frosin ber)
Aðferð
Frystið skál og hluta af hnetumum
(ef ekki eru notuð frosin ber).
Setjið allt hráefni í blöndunartæki og
blandið þar til áferðin er orðin slétt,
eða í um 3 mínútur.
Frystið þar til það er aðeins farið að
þykkna, í um fjórar klukkustundir.
Líka er gott að vinna saman
frosin ber og blanda við hnetur og
hnetusmjör.
Framreiðið með berjum. Kælt er
þetta eins og veganjógúrt.
Bjarni Gunnar Kristinsson
matreiðslumeistari
Kornsá