Víkurfréttir - 02.04.2020, Blaðsíða 30
30 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 2. apríl 2020 // 14. tbl. // 41. árg.
Guðmundur Sigurðsson er búsettur í
Garðinum og giftur Karen Ástu Friðjóns-
dóttur. Þau eiga fjögur börn og fjögur
barnabörn svo það er nóg að gera. Guð-
mundur starfar sem rannsóknarlögreglu-
maður hjá Lögreglustjóranum á Suðurnesjum. Ljósmyn-
daáhuginn vaknaði fyrir alvöru eftir aldamótin þegar
hann eignaðist myndavél af gerðinni Canon 400D. Guð-
mundur segir að mikið frelsi fylgi stafrænni ljósmyndun.
Hvenær fékkstu fyrst ljósmynda-
áhuga?
Sennilega hef ég alltaf haft áhuga á
ljósmyndun og fékk fyrstu mynda-
vélina um 12 ára gamall og var þá
aðallega að taka myndir á hinum og
þessum viðburðum, hvort sem það
var innan fjölskyldunnar eða ein-
hverjir viðburðir sem ég fór á.
Hvað varð til þess að áhuginn
kviknaði?
Þegar eiginkonan gaf mér Canon
400D skömmu eftir aldamótin
kviknaði áhuginn fyrir alvöru og ég
fór að taka myndir af öllu mögulegu
og ómögulegu. Og í ljósi þess að
ég hef ekki kunnáttu í að framkalla
myndir þá fylgdi því mikið frelsi
að geta hent öllum myndunum í
tölvuna og skoðað og valið að vild
þær myndir sem ég vildi eiga og
vinna með.
Hver var fyrsta myndavélin þín?
Fyrsta vélin var líklega Kodak 83´
módel sem var stór, mjó og kassalega
og ég var í góðu samstarfi við Hljóm-
val á Hafnargötu að láta framkalla
myndirnar.
Áttu þér einhverja fyrirmynd í ljós-
myndun. Uppáhalds ljósmyndara?
Get ekki sagt að ég hafi verið með
einhvern ákveðinn sem fyrirmynd
en hef mjög gaman af myndunum
hjá RAX og svo er Ellert Grétarsson
mikill snillingur sem hefur verið
gaman að fylgjast með.
Hefur þú sótt einhver námskeið?
Hafa þau hjálpað þér?
Hef sótt stórfín námskeið hér og þar
sem hafa reynst vel við að þekkja
vélina, ákveða mynduppbygging og
birtu og íhuga sjónarhorn og fókus,
allt mjög gagnlegt. Og svo er það
ómetanlegt að fikta sjálfur og prófa
sig áfram og síðan er manni haldið
ágætlega við í vinnunni.
Hvað er í ljósmyndatöskunni
þinni í dag?
Ég er með tvær vélar í dag sem ég
nota mikið, Canon EOS 60D og
Canon EOS 6D en linsurnar sem ég
nota mest eru Canon 70-200 1:2.8
L IS sem ég nota mikið á íþrótta-
leikjunum. Sigma 17-50 1:2.8 EX og
Canon 10-18 EFS sem ég nota í nátt-
úrulífsmyndum og mannamótum.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
ljósmynda? Hvaða tegund ljós-
myndunar heillar þig mest?
Ég ljósmynda mikið íþróttaleiki, hef
elt börnin og barnabörnin okkar í
því sem þau hafa verið að taka þátt
í. Hef t.d. tekið mikið af myndum
í knattspyrnuleikjum Keflavíkur
og Víðis í Garði síðustu ár sem fólk
hefur haft gaman af. Hef líka gaman
að taka myndir á mannamótum og
náttúrulífsmyndir. Það er gaman að
taka myndir í náttúrunni en myndir
af íþróttaleikjum og mannamótum
hafa svo mikið sögulegt gildi og með
tilkomu samfélagsmiðla þá virkar
það sem hvati á mig að taka myndir
af t.d. knattspyrnuleikjum og láta
þær myndir síðan á samfélagsmiðl-
ana og leyfa öðrum að njóta. Það
gefur mér mikið.
Ertu alltaf með ljósmyndavélina við
hendina til að grípa augnablikið
eða þarftu að setja þig í gírinn og
fara í ljósmyndaleiðangur?
Ég var duglegri við það að hafa ávallt
myndavél við hendina og fanga
þannig augnablikið en það hefur
dregið aðeins úr því. Þegar við eigin-
konan vorum að ferðinni hvort sem
það var hér innanlands eða utan-
lands þá var alltaf myndavélin með
í för og konan gerði góðlátlegt grín
að því að hún væri á ferðinni með
myndavélinni og mér. Núna er það
meira að ég geri mér ljósmynda-
leiðingur ef ég fer með myndavélina
úr úr húsi.
Ertu að notast við símann
við myndatökur?
Það er mjög handhægt að nota
símann við myndatökur, sérstak-
lega tækifærismyndatökur og þegar
vilji er til að sýna eitthvað sem er
að gerast í rauntíma og til að sýna á
samfélagsmiðlum. En þegar síminn
er gripinn upp við tækifærismynda-
tökur þá vill það koma niður á
gæðum myndanna.
Hvað er það sem skiptir máli í ljós-
myndun? Veltir þú mikið fyrir þér
myndbyggingu?
Maður reynir að styðja sig við gullin-
snið (þriðjungsregluna) að mynd-
fletinum sé skipt í þriðjunga lárétt
og lóðrétt og þar sem skurðlínurnar
skerast eru áhugaverðir punktar á
myndfletinum, en það þarf samt
ekki að vera algilt. En þar sem ég tek
mikið af íþróttamyndum reyni ég að
taka myndirnar í augnhæð og spái
í birtuna og ná augnablikinu með
réttu sjónarhorni og focus.
Tekur þú mikið af myndum í hverri
myndatöku?
Þegar ég er að taka myndir á t.d.
knattspyrnuleik þá tek ég mikið af
myndum í þeirri viðleitni að fanga
augnablikið og fer svo í gegnum
myndirnar eftirá, ég skoða ekki
mikið myndirnar á leiknum sjálfum
því það er alltaf eitthvað að gerast
sem maður myndi annars missa af.
En þegar ég er að taka náttúrulífs-
myndir þá gef ég mér dálítinn tíma
í að byggja undir myndina. En með
mannamót þá fylgist ég með fólkinu
og reyni að láta það segja með mynd-
inni hvað er um að vera.
Áttu uppáhalds staði
til að ljósmynda?
Minn uppáhaldsstaður er að sjálf-
sögðu Garðskagi og þá sérstaklega
gamli vitinn. Það er eitthvað við
hann sem dregur mann að honum.
Ertu að vinna með myndirnar þínar
í tölvu?
Ég vinn langflestar myndirnar mínar
í myndvinnsluforritinu Lightroom.
Hef ekki lagt Photoshop á mig en
nota þetta forrit til að skerpa á lit-
unum og kroppa þær aðeins til. Ég er
ekki að bæta einhverju inn á mynd-
irnar eða fjarlægja eitthvað úr þeim.
ÁHUGALJÓSMYNDARINN GUÐMUNDUR SIGURÐSSON
Garðskagi í uppáhaldi
Þess mynd tók ég
af gamla vitanum
í Garði í hríðarbil í
janúar 2020. Einn af
þessum dögum þar
sem snjóaði lárétt.
Mér fannst áhrifin
verða meiri við að
hafa hana svart/
hvíta og verður
þannig nánast eins
og blýantsteikning.
Sonur minn, hann Sindri
Þór, í leik með Keflavík
árið 2019 en hann er núna
að hefja sitt 4. ár með
meistaraflokki Keflavíkur.Já gamli vitinn í
Garðinum hann
heillar. Þessi er
tekin árið 2015
og ekki búið að
setja toppstykkið
á hann en það er
eitthvað við hann
og náttúruöflin sem
umlykja hann.
Sonur minn hann Sigurður á 1.
teig í Leirunni 2015. Hann hafði
beðið mig um að fylgja sér einn
hring og taka myndir af sér. Hér
er upphafshöggið á 1. teig.
Bjargarsteinn í Garðinum í vetrarbúning.
Hilmar Bragi Bárðarson
hilmar@vf.is