Varnarmál - 01.06.1931, Síða 3

Varnarmál - 01.06.1931, Síða 3
Formáli og Skýringar. I þessu litla riti birtast nokkur erindi frá hinum síðari tímum okkar hjóna við þessi samhands-mál. Hin fyrstu í rit- inu eru frá 1929, skömmu áður en »Varnar«-menn sneru sér að því, að búa sig undir hátíðar-minnin, sem birtast í »Ljóð- urn og Ræðum«. Gekk langur tími til þess og var fáu öðru sint á meðan. Eftir hér um bil ár er svo aftur byrjað á að skýra æfiatriði leiðtoga vors. Hann flytur sjálfur erindi um mál sitt 2. marz 1930, og er það tekið hér upp, ásamt fleirum um sama efni, bæði frá honum og öðrum. — Þá ræða höf- undarnir um opinberanir þær, er byrjuðu áð birtast þeim seint á árinu 1930. — Aðrir svára séra Ástvaldi með nokkr- um orðum, þó sumum svörunum sé slept í bráð. Fyrstu erindi þeirra Haraldar og leiðtogans, 1929, gefa mönnum ljósa hugmynd um samsetning þann, er óhlutvandir menn notuðu til að tryggja öðrum endurlausnar kenninguna. Sjálfir hafa þeir vitað betur, og engu af samsetningi sínum trúað. Hið rétta nafn leiðtogans, hins svokallaða endurlausnara, var og er: Joheannes. Sjálfur skrifar hann nafn sitt eins og eg geri hér, og held eg rithætti hans. Honum var ekki ljúft að halda upplogna nafninu í Ljóðum og Ræðum, samanber bls. 132 og 135, en samverkamönnum hans í félaginu »Vörn« fanst það mundi þó heppilegra, þar sem hvorki í því riti né áður hafði verið rætt um æfiatriði hans opinberlega. Lét hann það þá svo vera. Nú þarf þess ekki lengur með, og allra sízt eftir að opinberunin um þetta mál kom í ljós. Hér í þessu riti fá menn sannleikann frá fyrstu hendi, og getur hver og einn gert sem honum sýnist, trúað honum eða trúað ekki. Við hér, og félagið »Vörn«, eigum aðeins að flytja sannleikann svo að sem flestir geti vitað um hann. Öllum er leyfilegt að trúa ósannindum, og bera fram ósannindi um Guð, þenna góða mann Joheannes, og aðra, eins og gert hefur verið, en ábyrgðin hvílir á þeim sjálfum. Allir geta sagt

x

Varnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Varnarmál
https://timarit.is/publication/1449

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.