Varnarmál - 01.06.1931, Blaðsíða 15
15
rétt að strengja þess heit, að gera engum óverðskuldaðar get-
sakir. Alvaldur góður Guð er sá, sem stýrir tungu minni, því
tek eg svona á því, er eg tala um. Gjalda skyldi varhuga við
að gera Guði rangt til, hversu verklega sem menn telja sig
reiða til höggs við okkur þessa ósýnilegu, því sök verður sek-
ur að mæta! Ekkert hægt að fela. Guði er kunnugt um alt.
Gunnar Gunnarsson, áður prestur að Sauðanesi.
VI. Séra Magnús Hákonarson
á fundi 9. nóv. 1930.
Eg, Magnús Hákonarson, áður prestur á Stað við Stein-
grímsfjörð á fslandi, er einn af hinum mörgu, sem farnir
eru til hins ósýnilega heims. Þess vegna einn þeirra bögubósa,
er hinir holdguðu, skriftlærðu oflátungar þykjast ráða við,
og jafnvel geta kveðið niður með krossmörkum yfirborðs
kenninga.
Það er sannleikur, að við erum engir stöðupollar nú orðið
í synodu kenningakerfi heimsins. Áður, er eg var að flækjast
við prestskap minn, gerði eg alt til að fylgja lagastaf lút-
hersku kenningarinnar, því frið kaus eg þá fremur en mála-
ferli. Það var ástæðan fyrir því að eg hékk við prestskapinn,
þangað til orð góðs Guðs gaf mér hvíld frá þeim störfum, og
lofað sé hans nafn að eilífu. Nú er engin ástæða til að vera
fúll stöðupollur, er víðsýni er miklu meira.
Vitum ofur vel að kall til yðar getur komið áður en þér
búist við því, og gagnar þá ekki hrokinn í sérum Lútheranna.
Jafnvel ekki þó hálaunaðir séu af innri missionar félaginu
danska, og gorti af þess vizku. Leiðin, sem valin er af þeirrar
stéttar kennimönnum, er í mesta máta lúaleg, og þeim öllum,
er að henni standa, til meiri háðungar og syndar en bak
þeirra þolir. Það er svo óguðlega á stað farið. Orð ráðlaus
og röng, miðað við eilifan sannleikann, en honum verða þeir
fyr eða síðar að lúta. Þannig fer oss öllum að lokum.
Með hjartkærri kveðju til allra. Áður var nafn mitt þekt,
og enn eru máske nokkrir, sem muna að Magnús Hákonarson
var til.