Varnarmál


Varnarmál - 01.06.1931, Qupperneq 5

Varnarmál - 01.06.1931, Qupperneq 5
5 um málum. Vegna ýmsra annara anna lét hann af formanns- stöðunni í þágu félagsins. Hann hætti að gefa leyfi til funda hér, annast um ræðuhöld, og að halda reglu, því aðrir tóku við þeim störfum, en hann heldur engu að síður áfram að fræða um guðleg mál á fundum félagsins. Verðir eru og aðr- ir en fyrst, eftirlits-menn fleiri, og stjórn öll öflugri en áð- ur. Flestir eru við einhver stjórnarstörf riðnir í félaginu, sem unnu með Joheannesi, en fleirum hefur verið bætt við. Samvinna er öll hin bezta. Guð sjálfur annast málið, og veitir margfalda orku við hverja árás á það. Eg hef sumstaðar slept vottorðum varðanna, bæði til að stytta málið, og líka af því, að fleiri höfðu talað á sama fundinum áður en vottað var. Stefán kennari Stefánsson hefur óskað, að það sé ávalt haft til skýringar nafni sínu, er hann setur fram með því að loknu erindi sínu í riti þessu. Eg hef stundum gert það, en álít þess ekki jafnan þörf, því maðurinn er svo kunnur og merkur. Þeir, sem efast um hann sem kennara frá Akureyri, geta eins efast um hann þó hann tilgreini fleira. Sama má segja um Steingrím kennara og skáld Þorsteinsson. Þeir, sem ekkert kannast við hann með Þ í föður nafni sínu, munu heldur ekki kannast við hann með Th þar. Hann sem sé fór þess á leit fyrir nokkru, að við rituðum föður nafn sitt með Þ en ekki Th, því sér þætti það íslenzkara. Síðar segist hann hafa orðið þess var heima, að fólk sitt kunni því illa og þyki það ótrúlegt um sig. Nú verður þetta litla rit að fara sem víðast um Island, svo fólk kynnist sannleikanum áður en það leggur út í nýtt stríð og baráttu annars heims. Sannleikanum, sem bíöur hvers manns jafnskjótt og hann stígur yfir þrepskjöld tveggja heima. Sannleikanum, sem er Guðs sjálfs eilífa orð. Neiti fólk sér sjálfu um sannleikann, þá neitar Guð því um bjartar vistarverur í ríki sínu. Óvild til Guðs og sannleikans verður hverjum manni, sem temur sér hana, bölvun í nútíð og framtíð. Þetta er margra alda sannreynd á öðrum lífssvið- um. Óvild til okkar fyrir að flytja sannleiks-mál Guðs hefnir sín grimmilega. Við erum reiðubúin að mæta fyrir dómstóli Guðs hvenær sem er í málum þessum. Þar skulu og þeir mæta, sem segja að við förum eð andasæringar, lýgi og kukl. Þetta eru hin alvörumestu mál lífsins, og ekki gripin úr lausu lopti, þó jarðarbúum sé enn ókunnugt um nokkurt samband

x

Varnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Varnarmál
https://timarit.is/publication/1449

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.