Varnarmál - 01.06.1931, Side 17

Varnarmál - 01.06.1931, Side 17
1? því sjálfur geti hann enga leyst frá vondum verkum þeirra og syndum. Hann hafði því óskað, að af sér yrði létt þessum krossi. Fólk ætlaðist til að hann gerði það sem enginn gæti gert nema Guð. Hinn síðasta dag septembermánaðar í haust skeði það að hann fékk lausn. Opinberun frá eilífum' góðum guði sést gegnum vorn eilífðar himinn á þessa leið: »E?iginn maður hefir áður settur verið af mér til að frelsa menn frá illum gerðum þeirra. Eg er höfundur þess alls, sem til er. Vita læt eg alla, er sjón og heyrn hafa að eftir þetta opinberaða orð frá mér, hefir enginn rétt til að leita nokkurs, er friðþxgt geti fyrvr syndir þeirra, því ekkert vald hef eg gefið til þess«. Hinn viðurkendi endurlausnari er með þessari opinberun leystur frá því, sem hin kunna. landsstjórn hans fann upp á til að afla sér stærri virðingar, en allir aðrir höfðu í heim’- inum. Ofan á þá undirstöðu var svo bygt. Nú fyrst vita menn sannleikann um þetta, sem heiminum var áður hulinn og fellur sú kenning fyrir opinberuninni. Um fra.m alt, verða menn að festa sér í minni, að endurlausnar kenningin er skáldskapur einn. Frá eilífum heimi verða að koma orð reynslu og þekkingar um það, er svo má byggja á. Hitt er skáldskapur fyrir klerkavaldið, sem nú verður að vakna ekki síðar en við hinir, er vorum búnir að vera lengur eða skemur í eilífum heimi og vissum þó ekki hið rétta um það, sem nú opinberaðist. Klerkavald jarðarbúa þarf að ná réttum skiln- ingi á þessu atriði, því okkur, er áður fræddum um þessi mál eins og þau voru okkur gefin, gefst nú meira verk, sem er ekki sízt, að gera tilraun til að bera sannleikanum vitni fyrst hann er fenginn. Eg, sem var um eitt skeið æðstur geistlegra embættismanna landsins, dreg mig ekki í skugga. Eg stend í blessaðri sólarbirtu með vopn, sem ekki bognar þó tekið sé á. Eg á við þó málið sé rætt. Þungt var mér í sál og sinni við opinberun þessa. Þakka eg þó af öllum mætti sálar minnar fyrir hana nú. Vinur minn á Islandi, er eg nefndi í byrjun erindis míns, mun nú telja það lélegt, er eg stílfæri og segja eins og fyr: Þvílíkt and.... bull og lýgi, að eigna Þórhalli biskupi annað eins. Því svara eg: Vertu vinur svo lítið rólegri á meðan þú fylgist með öllum ykkar heims réttu og röngu ritsmíðum. Við erum alveg frá öllu þess háttar um leið og við komum 1 eilifa heiminn, af þeirri einföldu ástæðu að nýtt starfssvið blasir 2

x

Varnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Varnarmál
https://timarit.is/publication/1449

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.