Spássían - 2012, Side 7

Spássían - 2012, Side 7
7 að skrifa grípandi og skemmtilega bók og var ekkert að hugsa um markhópinn. Enda stóð ég á gati þegar ritstjórinn spurði mig fyrir hvaða aldur bókin væri hugsuð.“ Hvað fi nnst þér þá um það þegar bækur eru markaðssettar með ákveðinn aldurshóp í huga, til dæmis þegar það er tiltekið á kápu bókar fyrir hvaða aldur hún er hugsuð? „Það hjálpar kannski fólki þegar það er að kaupa bækur til gjafa en ég er ekki hrifi n af þessu. Krakkar hafa einfaldlega gott af því að lesa og það er ekki hollt að þeim sé sagt hvað þeir eigi að lesa og hvað ekki. Og við lesum ekki bara þær bækur sem eru gefnar út fyrir „okkar“ aldurshóp eða þjóðfélagshóp. Það er svolítið hallærislegt að segja fólki hvað það eigi að lesa, sama á hvaða aldri viðkomandi er. Þetta er einmitt ein ástæða þess að ég hef efasemdir um skvísubókastimpilinn – með honum er verið að útiloka annað kynið. En það er erfi tt að höfða til allra. Eins og með Slátt, mig langaði að kápan væri kynlaus og ég barðist mjög gegn „skvísulegum“ kápuhugmyndum sem komu upp. Ég vissi að ef kápan væri of stelpuleg myndi enginn strákur kaupa hana. Ég vildi ekki útiloka neinn hóp fyrirfram. Þessu er svipað farið með kápuna á barnabókinni, það þarf að passa upp á að höfða bæði til stráka og stelpna og krakka á ólíkum þroskaskeiðum.“ Aðalsöguhetjur bókarinnar eru kvenkyns og sterkar kvenkyns söguhetjur eru áberandi en karlkyns persónur eru frekar í aukahlutverkum. Var það meðvituð ákvörðun að hugsa bókina út frá jafnréttishugmyndum? „Ég hugsaði þetta sem femíníska barnabók en ég verð að viðurkenna að ég er svolítið hrædd við að tala um hana sem slíka af ótta við að fæla í burtu stráka, að þeir vilji þá síður lesa hana. En mig langaði að hafa sterka stelpu í aðalhlutverkinu og ég vildi líka hafa konu í hlutverki þess sem allt veit og veitir góð ráð. Og þá var eiginlega nauðsynlegt að „vondi kallinn“ væri kona líka. Fyrst og fremst langaði mig að skrifa ævintýri þar sem fl estar stóru persónurnar væru konur.“ FANTASÍAN HEILLAR Bókin er ekki skrifuð sem áróðursrit eða með sérstakan boðskap í huga en óneitanlega er barátta góðs og ills alltaf hlaðin siðferðilegum boðskap. Hildur segir bókina einmitt að miklu leyti snúast um það að maður getur ekki alltaf fylgt straumnum. „Stundum þarf maður að berjast fyrir því sem maður trúir á og færa fórnir. Rétta leiðin er sjaldnast sú auðveldasta og það er svo oft auðvelt að líta framhjá vandamálum, átökum eða neyð annarra ef það snertir mann sjálfan ekki beint. Ef einhver annar tekur skellinn og maður sjálfur bjargast.“ Þannig hefur boðskapurinn ómeðvitað læðst inn í söguna, ef svo má segja. Orsök og afl eiðing haldast í hendur og við þurfum að hugsa um fólkið og umhverfi ð í kringum okkur. En ætlarðu að skrifa fl eiri barnabækur? „Ég væri alveg til í það. Mér fi nnst barna- og unglingabókaformið mjög spennandi því maður getur verið svo frjálslegur og er ekki jafn bundinn við raunsæið. Fantasían heillar mig líka og mig langar að skrifa fl eiri svoleiðis. En ég er byrjuð á nýrri skáldsögu – og hún er fyrir fullorðna.“ „Barna- og unglingabækur verða að vera skemmtilegar. Það er auðvitað mikill plús ef í bókinni er að fi nna einhvern boðskap en boðskapurinn má ekki vera í fyrsta sæti eða á kostnað skemmtanagildisins, því hvernig eiga krakkar þá að nenna að lesa?“

x

Spássían

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.