Spássían - 2012, Síða 8
8
Adam Lambert - Trespassing
Fyrsta plata bandaríska söngvarans Adams Lamberts,
For your entertainment, var skemmti leg samsuða
ýmissa stefna og mismunandi penna. Á annarri plötu
sinni, Trespassing, skrifar hann sjálfur megnið af
lögunum, að vísu í samvinnu við aðra, ásamt því að sjá
um listræna stjórnun. Samstarfi ð við Pharrell Williams
(„Trespassing“ og „Kickin‘ In“) og Sam Sparro („Shady“
og „Broken English“) skilar hvað bestum árangri, ásamt
ballöðunum, „Underneath“ og „Outlaws of love“. Þau
þrjú lög sem hann átti ekki þátt í að skrifa („Bett er
than I know my self“, „Naked love“ og „Never close
our eyes“) virka hins vegar hálf útvötnuð. Þau eru
greinilega hönnuð fyrir útvarp og jafnframt veikustu
hlekkirnir í keðjunni. Trespassing ber þess merki að
Adam hafi fundið leið ti l að móta sinn stí l betur frá því
fyrsta platan kom út. Þegar á heildina er liti ð er um
þrælskemmti lega poppplötu að ræða með hressum
danslögum á fyrri helmingnum og rólegri og íhugulli
lögum á þeim síðari.
Tilvalin fyrir mátulega langan bíltúr. T.d. í bústaðinn.
Tilbury – Exorcise
Hljómsveiti n Tilbury er ný af nálinni en ekki meðlimir
hennar sem hafa allir starfað áður með ýmsum
öðrum sveitum (Jeff Who?, Amina, Moses Hightower,
Hjaltalín og Brother Grass – svo fátt eitt sé nefnt)
við góðan orðstí r. Því kemur ekki á óvart að það er
sáralíti ll byrjendabragur á fyrstu plötu þeirra, Exorcise.
Ljúft og þægilegt rokk, laust við væmni og væl, sem
kemur manni í afslappað og gott skap. Helst er að
platan líði fyrir það hvað lögin er keimlík og líti ð um
öfga í nokkra átt . Besta lagið er tvímælalaust fyrsta
smáskífa plötunnar, „Tenderloin“. En lögin „Riot“ og
„Drama“ gefa því líti ð eft ir.
Platan byrjar og endar á nautalundum („Tenderloin“
og „Filet mignon“) og er því ti lvalin með grillinu.
Scissor Sisters – Magic Hour
Fjórða plata Scissor Sisters, Magic Hour, sækir
í sama brunn og fyrri plötur: Diskó-fönk-raf-
sambræðingur sem hreyfi r ögrandi við rófubeininu
og kemur blóðinu á hreyfi ngu. Hún grípur þó
ekki við fyrstu hlustun og það er aðeins of mikið
um lög sem manni fi nnst maður hafa heyrt áður.
Helst er að hún standist ekki alveg samanburð við
hina frábæru Night work sem kom út fyrir tveimur
árum. En eft ir nokkrar umferðir fer platan að setjast
þægilega að í heilanum og er ófáa gullmola að
fi nna þar, sérstaklega lög á borð við „Shady love“,
þar sem þau njóta liðsinnis söngkonunnar Azealiu
Banks, og dragdásemdina „Let‘s have a kiki“. Einnig
er ballaðan „The Secret Life of Lett ers“ afskaplega
falleg. Í það heila er nóg um vönduð lög sem halda
uppi stemningunni og létt a lund.
Tilvalin fyrir töfrastund í potti num.
Sigur Rós – Valtari
Þrátt fyrir hressari tón á síðustu plötu hefur Sigur
Rós seint verið talin meðal mestu stuðhljómsveita og
er það svo sannarlega ekki á þeirri nýjustu, Valtara.
Stemningin er lágstemmd sem aldrei fyrr og lögin
renna saman í dáleiðandi nið. Ef það er eitt hvað sem
Sigur Rós hefur náð að sérhæfa sig í þá er það að ná
fram hárfí num hughrifum og á köfl um fær tónlisti n á
sig hátí ðlegan blæ. Valtari virkar þannig sem nokkurs
konar aft urhvarf ti l fyrri verka hljómsveitarinnar, mun
meira andrúmsloft og minna popp.
Tilvalin fyrir leti stund í mosagróinni laut.
HLJÓÐRÁS sumarleyfi sins
Sumarið er tí minn. Fyrir eitt hvað létt og lífl egt sem kemur manni í gott skap og hæfi r þeim
fáu sólardögum sem við þó njótum. Sumarmyndirnar verða poppkornslegri, bækurnar
harðsoðnari og tónlisti n afslappaðri. Hvort sem þú keyrir um landið, grillar hálft lamb,
sekkur í heita potti nn í bústaðnum eða bara liggur úti í lynginu hefur Spássían uppástungur
um það hvaða tónlist er við hæfi .
Eft ir Ástu Gísladótt ur