Spássían - 2012, Blaðsíða 16

Spássían - 2012, Blaðsíða 16
 16 ÞREYTTAR KONUR Í LÍFSHÁSKA Hin hefðbundna aðalsöguhetja skandinavískra glæpasagna er fjarri góðu gamni þetta sumarið. Í stað hins svekkta og örlítið þunglynda og/ eða drykkfellda lögreglumanns er komin lífsleið og uppgefi n ung kona sem oftar en ekki þarf að bjástra við að halda jafnvægi á milli vinnu og einkalífs, barna, eiginmanns og annars fólks. Og aldrei fær hún að hvíla sig, blessunin. Dauði næturgalans er þriðja skáldsaga Kaaberbøl og Friis um hjúkrunarfræðinginn Ninu Borg sem reynir að bjarga öllu og öllum en gleymir sjálfri sér í leiðinni. Þegar sagan hefst hefur hún glatað bæði eiginmanni og tveimur börnum og á í vonlitlu sambandi við samstarfsmann sinn sem byggist frekar á sameiginlegri þörf fyrir mannlega snertingu en ást. Hún fl ækist í mál úkraínskra mæðgna, Natöshu og Katerinu, sem eru fl óttamenn í Danmörku. Þegar Natasha fl ýr á leið til yfi rheyrslu hjá lögreglunni, grunuð um morð á tveimur fyrrverandi sambýlismönnum sínum, hefst dularfull atburðarás sem Nina sogast inn í. Sagan teygir sig allt til Úkraínu á tímum Stalíns og höfundar varpa upp spurningum um illsku og neyð, þá baráttu sem á sér stað í velmegandi samfélögum og hversu langt við erum tilbúin að ganga fyrir þá sem við elskum. Åsa Larsson hefur skrifað fjórar skáldsögur um lögfræðinginn Rebecku Martinsson sem allar hafa verið þýddar á íslensku. Þetta eru fantagóðar bækur og víst er að Rebecka telst til uppgefi nna skandínavískra söguhetja Þegar ástin verður vesen Eftir Ástu Kristínu Benediktsdóttur NÝJASTA bók Rúnars Helga Vignissonar er smásagnasafn í sumarklæðnaði, létt og handhæg kilja sem inniheldur fi mmtán sögur. Framan á kápunni er mynd af rauðmáluðu steinhjarta sem hamrað hefur verið inn í grjóthleðsluvegg og er farið að veðrast verulega. Í gegnum rauða ástarliti nn skín grámi hversdagsleikans og rispurnar sem myndast hafa á yfi rborði hjartans eru varanlegar, enda fj alla sögurnar í þessum smásagnasveig um ást í meinum – ást sem meinbugir eru á þótt hún hafi ef ti l vill eitt sinn verið sönn og heit.  Í smásagnasveigum mynda sögurnar í safninu merkingarbæra heild og milli þeirra geta legið ýmiss konar tengingar. Í þessu ti lviki er tengingin viðfangsefnið sem kemur fram í ti tlinum. Sagan „Hinum megin við tjaldið“ er þó einnig eins konar umferðarmiðstöð þar sem persónur úr öðrum sögum í bókinni mætast. Margar sögurnar fj alla um hjón eða pör sem eru búin að vera saman í mörg ár en ásti n hefur breyst og samskipti n eru orðin erfi ð. Aðalpersónurnar eru ýmist karlar eða konur og margvíslegar ástæður eru fyrir því að samböndin hafa þróast í þessa átt , svo sem sjúkdómar, barneignir, samkynhneigð, ósamkomulag um fóstureyðingar, mismunandi áhugamál, stress og almenn vonbrigði með lífi ð. Engin þessara ólánlegu para ná að vinna úr sínum málum og þau eru öll skilin eft ir með vandamálin í sögulok.  Kynlíf - eða skortur á því - er eitt af algengustu vandamálum sögupersónanna og algengt er að karlarnir séu uppteknir af því að konurnar vilji ekki lengur sofa hjá þeim. Þett a samskiptamynstur er svo algengt að það jaðrar við að vera þreytandi og sú spurning vaknar hvort þett a eigi að vera raunsönn mynd af lífi miðaldra karlmanna eða gagnrýni á staðlaðar ímyndir um karlmennsku og sívirka kynhvöt karla sem konur þurfa að „sinna“. Eina konan í bókinni sem hefur mikinn áhuga á kynlífi reynist auk þess að öllum líkindum vera lesbía.  Ekki fj alla þó allar sögurnar um pör í krísu. Ein allra besta og áhrifamesta sagan er hin einlæga „Dagur í lífi barns“ en þar er í brennidepli ást milli móður og barns. Sagan er sögð af litlum dreng sem bíður heima með pabba sínum og yngri systur á meðan mamma hans fer á spítala. Síðar um daginn kemur mamman heim og er föl og grætur og ýmsar vísbendingar í textanum gefa ti l kynna að hún hafi misst barn, þótt það sé aldrei alveg ljóst.  Sögurnar í Ást í meinum eru vel skrifaðar, enda ekki við öðru að búast af þeim þrautþjálfaða ritlistarkennara sem Rúnar Helgi er. Hann fer vel með mörg af þeim vandamálum sem hann fj allar um í sögum sínum og lýsir ti l dæmis afar vel angist og rótleysi konunnar sem upplifi r að maðurinn hennar kemur út úr skápnum. Kvíði og vanlíðan hjónanna sem eru samferða í huganum þótt þau séu á sitt hvoru landshorninu og yfi r vofi skilnaður er átakanlegur, sem og vonbrigði hjónanna sem fi nna gleði og frelsi í því að klæðast dulargervum og leika hlutverk í morðgátuleik þegar sami gamli pirringurinn tekur við um leið og þau eru aft ur tvö ein saman. Hið knappa smásagnaform hentar enn fremur vel ti l að varpa fram spurningum sem ekki er svarað nema í huga lesandans. Það er einn helsti kostur þessarar bókar – og um leið mögulega hennar helsti löstur – að eft ir lesturinn eru margir endar óhnýtti r. Í raun þarf að lesa fl estar sögurnar tvisvar eða þrisvar ti l að átt a sig á um hvað þær fj alla í raun og merkingin er oft ar en ekki falin í stökum lykilsetningum og -orðum. Stundum virkar þett a ekki vel og botninn dett ur úr sögum á borð við „Afmælisveisluna“ sökum þess að þræðirnir eru of óljósir. Mun oft ar bæti r þó óvissan við efni sagnanna og lætur þær lifa lengur en ella í huga lesandans. Rúnar Helgi Vignisson. Ást í meinum. Uppheimar. 2012. Gagnrýni

x

Spássían

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.