Spássían - 2012, Síða 17

Spássían - 2012, Síða 17
17 „en í fyrstu þremur bókunum þarf hún að reyna meira en fl estir gera á heilli ævi. Í þeirri fjórðu, Dauðadjúpi, fær hún síður en svo að hvíla sig og þarf, í samstarfi við lögregluþjóna sveitarfélagsins, að rannsaka dauða ungrar stúlku. Sagan teygir anga sína til síðari heimsstyrjaldarinnar og við sögu koma ofbeldisfullir bræður sem eiga sér leyndarmál á botni sama stöðuvatns og lík stúlkunnar fannst í. Fortíð Rebecku sjálfrar kemur minna við sögu í Dauðadjúpi en fyrri bókunum þremur og lesandi gerir sér Í stað hins svekkta og örlítið þunglynda og/eða drykkfellda lögreglumanns er komin lífsleið og uppgefi n ung kona sem oftar en ekki þarf að bjástra við að halda jafnvægi á milli vinnu og einkalífs, barna, eiginmanns og annars fólks. Ga gn rý niEitt líf, margir þræðir Eftir Auði Aðalsteinsdóttur FYRSTA bók Unnar Birnu Karlsdótt ur hefur lágstemmdan tón. Agaður, látlaus stí ll, með örlitlum ljóðrænum blæ hér og þar, gefur verkinu þroskað yfi rbragð og hæfi r efniviðnum vel. Sagan fj allar um það þegar sögupersónan Ása snýr aft ur á æskuslóðir sínar, eyðibýli í íslenskri sveit, í algjörri uppgjöf eft ir að lífi ð sem hún skapaði sér erlendis hrynur með hjónabandi hennar. Eins og svo margir hefur hún markað skýr skil milli bernskunnar og fullorðinsheimsins, en nú krefj ast þessir heimar þess að verða gerðir upp samhliða. Við það ferli, þar sem hún nær eins konar sátt við æsku sem einkenndist af vanrækslu og hjónaband sem endaði með svikum, öðlast hún smátt og smátt lífsvilja á ný. Að auki eygir hún þann möguleika að sætt a þessa tvo heima, íslensku sveiti na og ti lveruna í útlöndum, og gera þá báða að heimili sínu.  Slíkar sögur af manneskjum sem ná að vinna sig út úr erfi ðri lífsreynslu með því að horfast í augu við hana eru algengt stef. Frægasta sagan sem mér dett ur í hug í því samhengi er Hestahvíslarinn, ekki síst af því að í báðum ti lvikum fl étt ast ný ástarsaga inn í bataferlið. Sá þráður þykir mér þó fremur veikur hér og hlutverk gamla kærastans sem dúkkar skyndilega upp og lendir næstum um leið í bóli Ásu vafðist fyrir mér. Vel gerðar ástarsögur byggja upp spennu sem erfi tt er að standast, samanber höfunda á borð við Jane Austen, og að fl étt a þeirri togstreitu inn í stærri sögu getur kryddað þær hressilega, samanber Hungurleikana. Hér fannst mér vanta að undirbyggja slíka spennu, auk þess sem farsæll endir í örmum nýs karlmanns grefur að mínu mati undan því sjálfsstyrkingarferli sem lesandi hefur fylgt eft ir. Hér má nefna að Friðrika Benónýsdótti r benti í ritdómi í Frétt ablaðinu á tengsl Ásu við hina amerísku erkitýpu ástarsögunnar, Scarlett O‘Hara, eins og ti ti ll bókarinnar gefur ti lefni ti l. Á þeim er þó einn reginmunur. Scarlett stendur ein en óbuguð eft ir í lokin á meðan Ása endar á að hringja í karlmanninn í lífi sínu og hann kemur um hæl.  Ótal aðra þematí ska þræði má hins vegar fi nna sem styrkja bókina og get ég hér nefnt vísun ti l Sjálfstæðs fólks og fl eiri bóka eft ir Halldór Laxness sem gefur þemanu um átt haga, fj ötra og frelsi nýja vídd: „Það er frekar einhver minning sem vaknar líkt og í beinunum eft ir lestur skáldsagna Laxness. Minning um kuldatí ð, einsemd, þrjósku, þögn, refsingu og strit, minning um æsku mína“ (42). Ása og Ásta Sóllilja eiga báðar harðan föður, hrökklast að heiman og snúa bugaðar ti l föðurhúsa í lokin. Forsendur þess að þær snúa aft ur eru þó gerólíkar. Ásta Sóllilja er borin bjargarlaus heim í Sumarhús af Bjarti , að öllum líkindum ti l þess eins að deyja. Ása grefur hins vegar föður sinn áður en hún snýr aft ur og heldur sjálf um stjórnartaumana á lífi sínu og hugsanlegum dauða.  Unnur Birna nær fi mlega að snerta marga fl eti í þessari stutt u sögu og býr yfi r færni sem margir reyndari höfundar gætu öfundað hana af. Í Það kemur alltaf nýr dagur fi nnst mér hún feta nokkuð örugga, jafnvel varkára sti gu og getur það verið ein af ástæðum þess að bókin talaði frekar ti l höfuðsins en hjartans í mínu ti lviki. Þegar höfundur leggur allt að veði kraumar háski undir hverju orði og hefur þann mögulega eiginleika að fella allar varnir lesandans og ná inn að kviku. Unnur Birna hefur greinilega tæknina ti l að skrifa góðar bækur og má vel við því að taka meiri áhætt u. Unnur Birna Karlsdótti r. Það kemur alltaf nýr dagur. Bjartur. 2012.

x

Spássían

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.