Spássían - 2012, Blaðsíða 20
20
ALLT ÚT UM ALLT
Í sumar mun 71 myndlistarmaður
taka þátt í samsýningunni ALLT
+ og verða verk þeirra um
allar trissur á Akureyri fram til
3. september. Ekki er um neina
venjulega samsýningu að ræða,
samkvæmt upplýsingum frá
Sjónlistamiðstöðinni á Akureyri,
því ekkert þema ræður
ríkjum og þátttakendur máttu
hvarvetna viðra verk sín nema
í Sjónlistamiðstöðinni. Verkin eru
sögð einkasamtöl listamannanna
við tiltekna staði, svo úr verði
net örsagna sem bjóði upp á
óvænta og persónulega sýn á
bæinn.
SAMSÝNING FEÐGA OG MÆÐGINA
Á sumarsýningu í hinu
óvenjulega sýningarrými
Sláturhúsinu Egilsstöðum sýna
feðgarnir Þór Vigfússon og
Helgi Þórsson og mæðginin
Ólöf Birna Blöndal og Sveinn
Snorri Sveinsson. Þar blandast
saman myndlist, ljóðlist í formi
innsetningar, verk sem eru á
mörkum þess að vera málverk
og skúlptúrar úr margskonar
efniviði og fundnum hlutum sem
taka breytingum. Á vissan hátt
er um að ræða yfi rlitssýningu
en sum verkanna eru sköpuð á
staðnum. Sýningin stendur yfi r
til 20. ágúst.
ÍSLENSK/FÆREYSKIR TÓNLEIKAR
Hljómsveitirnar Momentum
frá Íslandi og Synarchy frá
Færeyjum verða saman með
tónleika í sumar á Íslandi og
í Færeyjum og spila meðal
annars á tónlistarhátíðunum
Eistnafl ug á Neskaupstað og
G!Festival í Færeyjum. Þeir
sem ætla að sitja sem fastast í
höfuðborginni geta þó einnig
kíkt á gleðina, í Norræna
húsinu þann 10. júlí.
GJÖF Á GÖNGUSTÍG
Í nýju hverfi í Garðabæ er kona að viðra hundinn
sinn. Hún gengur fram á geisladisk sem liggur
á gangstíg eins og einhver hafi misst hann úr
vasanum. Þegar hún beygir sig niður til að taka
hann upp blasir hins vegar við rauður miði með
áletruninni: „Til hamingju með að hafa fundið
þennan geisladisk“. Undrandi og ánægð fer
konan heim og stingur Ímynd fífl sins eftir
hljómsveitina Ég í græjurnar. Gítarrokk og
skondnir textar óma úr hátölurunum. Og þar
sem fréttaritari Spássíunnar er þá einmitt í heimsókn
getur hann nú komið á framfæri hrósi fyrir þessa
frumlegu og árangursríku leið í kynningarmálum.
MOLAR