Spássían - 2012, Page 21
20
ALLT ÚT UM ALLT
Í sumar mun 71 myndlistarmaður
taka þátt í samsýningunni ALLT
+ og verða verk þeirra um
allar trissur á Akureyri fram til
3. september. Ekki er um neina
venjulega samsýningu að ræða,
samkvæmt upplýsingum frá
Sjónlistamiðstöðinni á Akureyri,
því ekkert þema ræður
ríkjum og þátttakendur máttu
hvarvetna viðra verk sín nema
í Sjónlistamiðstöðinni. Verkin eru
sögð einkasamtöl listamannanna
við tiltekna staði, svo úr verði
net örsagna sem bjóði upp á
óvænta og persónulega sýn á
bæinn.
SAMSÝNING FEÐGA OG MÆÐGINA
Á sumarsýningu í hinu
óvenjulega sýningarrými
Sláturhúsinu Egilsstöðum sýna
feðgarnir Þór Vigfússon og
Helgi Þórsson og mæðginin
Ólöf Birna Blöndal og Sveinn
Snorri Sveinsson. Þar blandast
saman myndlist, ljóðlist í formi
innsetningar, verk sem eru á
mörkum þess að vera málverk
og skúlptúrar úr margskonar
efniviði og fundnum hlutum sem
taka breytingum. Á vissan hátt
er um að ræða yfi rlitssýningu
en sum verkanna eru sköpuð á
staðnum. Sýningin stendur yfi r
til 20. ágúst.
ÍSLENSK/FÆREYSKIR TÓNLEIKAR
Hljómsveitirnar Momentum
frá Íslandi og Synarchy frá
Færeyjum verða saman með
tónleika í sumar á Íslandi og
í Færeyjum og spila meðal
annars á tónlistarhátíðunum
Eistnafl ug á Neskaupstað og
G!Festival í Færeyjum. Þeir
sem ætla að sitja sem fastast í
höfuðborginni geta þó einnig
kíkt á gleðina, í Norræna
húsinu þann 10. júlí.
GJÖF Á GÖNGUSTÍG
Í nýju hverfi í Garðabæ er kona að viðra hundinn
sinn. Hún gengur fram á geisladisk sem liggur
á gangstíg eins og einhver hafi misst hann úr
vasanum. Þegar hún beygir sig niður til að taka
hann upp blasir hins vegar við rauður miði með
áletruninni: „Til hamingju með að hafa fundið
þennan geisladisk“. Undrandi og ánægð fer
konan heim og stingur Ímynd fífl sins eftir
hljómsveitina Ég í græjurnar. Gítarrokk og
skondnir textar óma úr hátölurunum. Og þar
sem fréttaritari Spássíunnar er þá einmitt í heimsókn
getur hann nú komið á framfæri hrósi fyrir þessa
frumlegu og árangursríku leið í kynningarmálum.
MOLAR
21
FÓLKIÐ Í KJALLARANUM, þekktasta
skáldsaga Auðar hér á landi – sú sem
fékk Íslensku bókmenntaverðlaunin og
var sett á svið – lýtur að einhverju leyti
sömu lögmálum, en hún segist ganga
skrefi lengra núna. „Síðustu ár hef ég
safnað saman minningum og litlum
sögum frá fjölskyldu og vinum en vissi
ekki hvað ég ætlaði að gera við það,
hélt kannski að ég ætlaði að gera
smásagnaprósa úr þessu. Ég fi ska
upp skáldskapinn í lífi nu, allt þetta
ævintýralega sem er í hversdeginum
sem maður áttar sig oft ekki á fyrr en
með tímanum, það sem manni hefur
alltaf þótt sjálfsagt en hefur aldrei
haft rænu á að spyrja nánar út í. Svo
allt í einu fann ég umgjörð og þetta
er orðið að Skáldsögu með stóru S-i.
mesti lífsháskinn
í því sem stendur manni næst
Eftir Auði Aðalsteinsdóttur
Ljósmynd: Júlía Björnsdóttir
AUÐUR JÓNSDÓTTIR SITUR ÞESSA DAGANA Í BERLÍN OG
LÝKUR VIÐ SKÁLDSÖGU. Í GEGNUM SLITRÓTT SKYPE-
SAMTAL LÝSIR HÚN BÓKINNI SEM TILRAUN TIL AÐ
VINNA ÚR ÝMSUM ÞÁTTUM Í EIGIN FJÖLSKYLDUSÖGU.
„ÞESSA SÖGU ER ÉG AÐ GERA FYRIR SJÁLFA MIG OG
SON MINN. ÞEGAR ÉG EIGNAÐIST HANN FÓR ÉG
AÐ HUGSA UM SVO MARGT Í NÝJU LJÓSI OG EKKI
HVAÐ SÍST KONURNAR Í FJÖLSKYLDUNNI MINNI,
MÓÐURLEGGNUM. EN ÉG ER LÍKA DÁLÍTIÐ HRÆDD VIÐ
AÐ BÚA ÞANNIG TIL SKÁLDSKAP ÚR FÓLKI SEM MÉR
ÞYKIR VÆNT UM.“