Spássían - 2012, Qupperneq 28

Spássían - 2012, Qupperneq 28
 28 Ástæðan fyrir því að ég Eftir David Nickel Ég byrjaði að safna ofurhetjumyndasögum 11 ára gamall, þegar ég keypti The Uncanny X-Men #207, sem er skrifuð af Chris Clairemont og teiknuð af John Romita Jr. Aðdráttarafl ið var auðvitað myndin á forsíðunni; kraftmikil og áleitin stökk hún af blaðsíðunni og beint inn í 11 ára huga minn. Hún lofaði sögu af því tagi sem ég hafði aldrei lesið áður - og var auðvitað hörkusvöl. Þetta voru mínar dyr inn í heim ofurhetjumyndasögunnar og ég leit aldrei til baka (jú, reyndar gerði ég það en aðeins í stutta stund á síðasta áratug). Myndlistin dró mig inn um gættina, en það var sagan sem fékk mig til að halda áfram að lesa og safna. Þarna var hið ómissandi hlutfall af ofbeldi og hasar, en sagan vakti mig til umhugsunar og þegar ég var 11 ára var ekki margt sem fékk mig til að hugsa. Í stuttu máli fjallaði sagan um persónu (kvenofurhetju) sem eltist við morðingja vinar síns og ætlar að kála honum. Wolverine, maðurinn á forsíðunni, leitar þessa ofurhetju uppi og segir að hún geti ekki drepið óvin sinn því þá yrði hún að skúrkinum. Síðasti rammi myndasögunnar gefur í skyn að Wolverine hafi drepið ofurhetjuna til að koma í veg fyrir að hún dræpi einhvern með köldu blóði. Það var ótrúlegt að ég skyldi hafa fundið eitthvað svo fullorðinslegt - raunverulega spurningu um rétt og rangt - í heimi ofurhetjanna. Heimi sem mér hafði alltaf verið sagt að væri fyrir börn. Ofurhetjumyndasagan eins og við þekkjum hana best í dag fæddist á fjórða áratugnum í Norður-Ameríku (löngu áður en ég kom í heiminn) og varð talsvert vinsæl í nokkur ár. Í ljósi félagslegra og efnahagslegra aðstæðna í Bandaríkjunum virtist myndasagan bæði jákvætt og nærtækt form veruleikafl ótta. Sérstaklega ofurhetjumyndasagan þar sem hið góða sigraðist reglulega á hinu illa, m.a. í formi spilltra bankamanna og stéttarfélaga, glæpamanna og á endanum öxulveldanna í heimsstyrjöldinni síðari. Vinsældir hennar entust hins vegar ekki, af mörgum ástæðum; sú helsta var að ofbeldi ofurhetjunnar var ekki lengur eins viðeigandi og það hafði verið. Samfélagið breyttist eftir stríðið og þegar rýnt var í áhrif ofurhetjanna, gengu sumir jafnvel svo langt að staðhæfa að myndasagan hefði trufl að menntun, gefi ð í skyn samkynhneigð ofurhetja og fætt af sér afbrotaunglinga. Allt þetta, auk samkeppni frá sjónvarpinu sem afþreyingarmiðli, varð til þess að vinsældir myndasögunnar dvínuðu og gekk næstum af ofurhetjunni dauðri. Fólkið sem fordæmdi ofurhetjumyndasögurnar og afgreiddi þær í besta lagi sem trufl un og í versta lagi sem illar í eðli sínu, skildi þær vitaskuld ekki, að minnsta kosti ekki eins og hægt er að skilja þær núna. Íhaldssemi og agi var skipun dagsins og öll skilaboð sem send voru til ungdómsins þurfti að samþykkja og hemja. Gekk það svo langt að Stan Lee, skapari ofurhetjuerkitýpa á borð við Kóngulóarmanninn, hin Frábæru fjögur (the Fantastic Four), Hulk, Þór (the Mighty Thor) og X-men, reyndi eitt sinn að skrifa sögu um fíkniefnaneyslu í myndasögu um

x

Spássían

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.