Spássían - 2012, Page 31

Spássían - 2012, Page 31
31 TENGDÓ Common Nonsense og Borgarleikhúsið Höfundar: Valur Freyr Einarsson, Ilmur Stefánsdóttir, Jón Páll Eyjólfsson og Davíð Þór Jónsson Leikstjórn: Jón Páll Eyjólfsson Leikendur: Kristín Þóra Haraldsdóttir og Valur Freyr Einarsson BEÐIÐ EFTIR GODOT Kvenfélagið Garpur og Borgarleikhúsið Höfundur: Samuel Beckett Þýðandi: Árni Ibsen Leikstjóri: Kristín Jóhannesdóttir Leikendur: Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Halldóra Geirharðsdóttir, Sólveig Guðmundsdóttir, Alexía Björg Jóhannesdóttir, Ísabella Rós Þorsteinsdóttir og Katrín Ynja Hrafnkelsdóttir. mér leikstjórnarvinna og útlitshönnun eins og best verður á kosið – Kristín Jóhannesdóttir mjög sannfærandi á þeim heimavelli sem absúrdleikhúsið klárlega er henni. Gerði sú staðreynd að hér léku konur þessa fjóra kalla eitthvað til? Síður en svo. Bætti hún einhverju við? Eiginlega ekki heldur. Frammistaða flytjendanna sem listamanna yfirskyggði allt svoleiðis. Það sama má segja um Tengdó. List er alltaf einhvers konar val – hvað á að sýna okkur? Og hve mikið? Að því leyti standa Tengdó og Godot sitt á hvorum enda eimingarferlisins. Godot er stíliseringin uppmáluð, þó sagt sé að innblásturinn hafi komið úr endurminningum Becketts og konu hans frá því þau fóru huldu höfði í sveitum Frakklands á stríðsárunum, bæði í andspyrnuhreyfingunni. Tengdó er að því er virðist næstum ósíuð frásögn efniviðarins, sem er lífssaga tengdamóður höfundar og aðalleikara, Vals Freys Einarssonar. Þetta er býsna mögnuð saga, með eldheitri ást í meinum á stríðsárunum, skömm, kynþáttafordómum og áratugalangri leit að týndum föður. Og heldur snubbóttum eftirmála um hvað gerist þegar sú leit ber loksins árangur. Við eigum ekki mörg dæmi í íslensku leikhúsi um svona „documentary“ leiksýningar – sem hafa verið nokkuð í tísku annars staðar síðustu ár. Þeim mun betra hvað þetta tekst heilt á litið vel, er lipurlega skrifað, fallega sviðsett og frábærlega leikið. Og aftur hvarf kynjaspursmálið í skuggann. Valur Freyr er, líkt og Halldóra, afreksmaður í textameðferð, og þangað sækir hann trúverðugleika sinn í hlutverkum sínum (sem eigin tengdamóðir og móðir hennar), ekki í nein sérstök tilþrif í umbreytingu. Hann fékk fínan mótleik frá Kristínu Þóru Haraldsdóttur sem, ef marka má þessa sýningu og Fólkið í Kjallaranum í sjónvarpinu um páskana, er orðin mikill sérfræðingur í að leika börn. Fín notkun á fallhlíf og myndvarpa skapaði skemmtilega umgjörð, ég var meira efins um Volkswagenbjölluna sem var þungamiðja leikmyndarinnar; eina atriðið í leikritinu sem var óþarfur útúrdúr. Og skildi heldur ekki tilganginn með flyglinum sem tók bæði pláss og athygli án þess að vera notaður svo neinu næmi. Semsagt: Tengdó og Godot. Tvær stórgóðar leiksýningar af gjörólíkum toga, tengdar saman af næsta ómerkilegu tækniatriði sem á endanum skipti ekki nokkru máli. Ég hlakka svo til að sjá Halldóru og Ólafíu sem Jagó og Óþelló, og Val Frey sem Desdemónu. Ljósmynd: Jón Páll Eyjólfsson Ljósmynd: Jorri

x

Spássían

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.