Spássían - 2012, Side 36

Spássían - 2012, Side 36
 36 og ritfrelsi að gera. Það er auðvitað menningarklíka í landinu. Og það er mikilvægt að það sé mótvægi og frelsi á þessum vettvangi. Það er ekki svo ýkja langt síðan bókaforlögin í Reykjavík sameinuðust eiginlega öll undir einn hatt, inn í Eddu, þar sem gömlu útrásarvíkingarnir komu við sögu, og seinna fór það allt inn í JPV. En síðan hafa sprottið upp um það bil jafn margar og öflugar meðalstórar útgáfur. Allt leitar þetta aftur í eðlilegra horf.“ Sjálfur segist hann velja bækur til útgáfu eftir því hvað dettur inn til hans og nefnir ljóðabók eftir Bjarna Bjarnason, lektor í Kennaraháskólanum. „Ættingjar hans höfðu verið að rella í honum að gefa ljóðin sín út en hann hafði ekki verið til í það. Svo kom hann hingað í búðina og var þá til í að gefa þetta út hér. Og þegar ég skoðaði ljóðin voru þau bara helvíti góð. Svo hef ég gefið út bækur eftir sjálfan mig, ritgerðasafn og skáldsöguna Sigurðar saga fóts. En eina bók var sérlega ánægjulegt að gefa út; Söguna af Þuríði formanni og Kambsránsmönnum. Hún var skrásett af Brynjólfi Jónssyni undir lok 20. aldar fyrir útgefanda Þjóðólfs í Reykjavík, og send öllum áskrifendum blaðsins sem staðið höfðu í skilum. Sagan var gefin út í nokkrum heftum á nokkrum árum og þegar maður skoðar forsíður heftanna verður ljóst að þessi bók er ekki skrifuð í tilgangsleysi eins og flestar bækur. Hún er eitt lengsta innheimtubréf sem um getur. Það kostulegasta er að í formálunum má sjá hvernig forsvarsmenn Þjóðólfs verða sífellt pirraðri á áskrifendum sem ekki borga skuldir sínar og það er afar skemmtilegur lestur. Um leið hefur verkið sjálft mikið bókmenntalegt gildi, enda er þetta fimmta útgáfa þess en það var gefið út þrisvar af Guðna Jónssyni á 20. öld.“ Flestar bækurnar sem Bjarni hefur gefið út hafa tengst svæðinu í kringum Selfoss. „Við viljum vera að sumu leyti sveitamannaútgáfa með áherslu á sagnaþætti en um leið svolítið öðruvísi. Við leyfum okkur því líka að gefa út hráa sýn á Selfoss, eins og í ljósmyndabókinni Selfoss, og kynlífsljóðabók á borð við Kanil eftir Sigríði Jónsdóttur.“ 6 GuðjónÓ prentsmiðja notar tækjakost sem er í fremstu röð. Þar má til að mynda nefna nýja Heidelberg Speedmaster 52. Vélin ræður við allt að 400gr pappír með vatnslakki sem skilar prentörkinni þurri úr prentvélinni. Með þessu má stytta vinnslutímann á vörunni verulega þar sem prentgripurinn getur farið beint í frágang og skurð að prentun lokinni. Lakkið á prentvélinni er vistvænt og er fáanlegt í silkimöttu, möttu, glansi og háglansi. Allar þessar lakktegundir skapa fallega áferð á prentgripinn. Í raun má segja að stór hluti prentvinnslu hjá GuðjónÓ sé stafrænn. Aðsend hönnuð gögn eru send beint á stafrænan plötuskrifara (sem býr til prentplöturnar). Með þessum fullkomnu tækjum getum við unnið þau verk sem okkur berast hratt og örugglega og þannig hjálpað viðskiptavinum að standa við skuldbindingar sínar. UMHVERFISMÁL GuðjónÓ, vistvæna prentsmiðjan, er fyrsta og eina prentsmiðja landsins sem merkt getur prentgripi sína með umhverfi smerkinu Svaninum. Prentsmiðjan fékk Svaninn fyrst árið 2002 og endurnýjun árið 2008, en ströng skilyrði eru sett fyrir því að fá að taka upp Svaninn. Stærstur hluti framleiðslu prentsmiðjunnar er á umhverfi smerktum pappír eða á pappír sem viðurkenndur er af umhverfi s merkinu Svaninum. Svansmerktur pappír þarf að upp- fylla ströng skilyrði. Krafa er gerð um að 50% hráefnis séu endurnýtt og einnig er þess krafi st að öll þau efni sem notuð eru við pappírsframleiðsluna séu niðurbrjótanleg í nátturunni. Með ákveðnum aðgerðum í prentsmiðjunni hefur nýtingarhlutfall á pappír hækkað og góður árangur hefur náðst í að minnka afskurð á pappír. Að auki gerir Svanurinn kröfu um að öll fl okkun pappírs sé mjög nákvæm. Þess vegna ætti GuðjónÓ að vera fyrsti valkostur þeirra fyrirtækja sem vilja að allir þættir rekstursins séu umhverfi svænir. GuðjónÓ prentsmiðja hefur í áratugi stutt margs konar menningarstarf- semi. Þar má nefna tónlistarhátíðir, myndlistarsköpun og aðrar listir. Við viljum leggja okkar af mörkum til að menning nái að vaxa og dafna í samfélaginu. Krafan um að fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög taki upp ábyrga stefnu við innkaup og notkun vara hefur vaxið á undanförnum árum. Í Staðardagskrá 21, sem mörg sveitarfélög hafa skrifað undir, er ætlast til að innkaup taki mið af umhverfi nu. Í þessum svo- kölluðu grænu innkaupum er eitt einfaldasta skrefi ð að nota umhverfi smerktar vörur, ekki síst pappír og prentgögn. Prentsmiðjan GuðjónÓ hefur hlotið vottun hjá Norræna umhverfi smerkinu Svaninum og getur því umhverfi smerkt allar vörur sínar. Hjá GuðjónÓ leggjum við mikla áherslu á persónu- lega þjónustu og komum til móts við allar óskir viðskiptavina með faglegum metnaði. Við gætum þess að hvert verkefni hafi einn ábyrgðarmann sem fylgist með öllum þáttum verksins og geti upplýst um gang mála á öllum stigum framleiðslunnar. Þeir starfsmenn sem sjá um samskipti við viðskipta vini hafa áratugareynslu í faginu og veita fúslega góða ráðgjöf. TÆ KN IN Umhverfisvænn valkostur Prentgripir frá GuðjónÓ eru umhverfismerktir Persónuleg þjónusta – alla leið Eina umhverfisvottaða prentsmiðjan Tækjabúnaður af bestu gerð VIÐ STYÐJUM MENNINGU OG MANNLÍF ÞJÓNUSTAN Prentsmiðjan fékk svansvottun árið 2000 Áratuga reynsla segir allt! Persónuleg þjónusta alla leið! Göngum hreint til verks! www.gudjono.is · sími 511 1234 www.gudjono. s

x

Spássían

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.