Spássían - 2012, Síða 37

Spássían - 2012, Síða 37
37 ALLT bendir til að Óraland, síðasta sýning nýjasta leiklistarútskriftarhóps Listaháskólans, verði síðasta sýning Nemendaleikhússins. Vafalaust kemur eitthvað í staðinn, einhver vettvangur fyrir ný- og hálfbakaða atvinnuleikara að láta ljós sitt skína framan í óbreytta áhorfendur, en hvað það verður er ekki vitað þegar þetta er ritað og því maklegt að flétta umsögn um þessa lokasýningu saman við einhvers konar minningargrein um þetta merka leikhús. Best að byrja þá á því að lýsa því yfir að Óraland er verðugur endapunktur, ein sterkasta sýning sem ég man eftir frá því ég fór í fyrsta sinn í Nemendaleikhúsið, nýfluttur til borgarinnar. Það var 1990 og Baltasar og Ingvar voru Óþelló og Jagó. Ekki fer sú sýning á listann yfir þær allra bestu, en það gerir hins vegar lokaverkefni sama hóps, Glataðir snillingar, sem mér fannst hreint afbragð og þykir enn. Í makalausu lokaeintali Óralands, í endalausu flóði af sambærilegum andstæðupörum, lýsir ein persónan því yfir að hún vilji svo gjarnan vera „spontant“ en samt „örugg“. Einhvern veginn stendur þetta eftir sem ágætis lýsing á góðu Nemendaleikhúsi. Innan þess er allt leyfilegt, tilraunir, áhætta, ungæðisleg klikkun. En allt þetta er hægt af því að umgjörðin veitir öryggi. Nemendaleikhús er verndaður vinnustaður. Og í Óralandi er svo sannarlega tekin áhætta. Verkið er unnið af leikhópnum, og því trúlega lagt af stað með algerlega óskrifað blað, leikararnir að grúska í hugmyndaflugi sínu, mögulega minningum og athugunum á samfélaginu. Úr verður svipmynd af þeim og okkur hinum sem þeir hafa verið að horfa á. Skemmtilega kaldhæðin, ekki sérlega „flatterandi“, en greinilega einlæg og oft fyndin af því hún er sönn. Fyndnust náttúrulega í óborganlegum endurteknum brandara um dramatískar sviðsetningar þess að koma út úr skápnum. Fyrsta sýning af skyldu tagi sem ég sá í Nemendaleikhúsinu var hin fullkomlega óborganlega sýning Trúðar árið 1994, sem er þá trú(ð)lega fæðingarár hinna nafnkunnu trúða Barböru og Úlfars. Þar var öryggisnetið eins gisið og það gerist í leikhúsinu, allt komið undir uppátækjum þeirra rauðnefjuðu hverju sinni. Ég sá hana tvisvar, á gjörólíkum kvöldum, og það er til marks um galdurinn að önnur þeirra var með því stórkostlegra sem ég hef séð í leikhúsi en hin, ja bara alls ekki. Óraland er öllu formaðri sýning, ekki alveg laus við möguleika á að hlaupa útundan sér, en hér liggur engu að síður handrit til grundvallar þó í sketsaformi sé, samið af hópnum með ritara/leikskáld úti í sal. Það virkar vafalaust eins og skammhrós en ég vona að Jón Atli fyrirgefi mér samt þegar ég segi að mér þyki sterkustu skrifkaflarnir í Óralandi eitthvað það besta sem frá honum hefur komið. Fyrrnefnt eintal er frábært, martraðarkenndar innkomur grímuklæddrar veru með skilaboð úr undirmeðvitundinni voru skáldlegar mjög og Spontant og örugg Eftir Þorgeir Tryggvason Óraland Listrænir stjórnendur: Egill Ingibergsson, Jón Atli Jónasson, Magnús Þór Þorbergsson og Una Þorleifsdóttir. Nemendaleikhúsið í Smiðjunni við Sölvhólsgötu vorið 2012. Ljósmynd: Óskar Hallgrímsson

x

Spássían

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.