Spássían - 2012, Qupperneq 38

Spássían - 2012, Qupperneq 38
 38 „ svo sá ég ekki betur en þarna væru drög að fullburða „skrifuðu“ leikverki í hefðbundnu formi. Þar á ég við feðgana sem glíma við nauðgunarkæru sem sonurinn þarf að svara fyrir og faðirinn ákveður að hrekja með aðferðum leikhússins. Það er mikið efni þarna og þarf ekkert endilega að taka á því með þeim súrrealíska lokahnykk sem hér er gert, snjall sem hann þó er. Þá má ekki vanmeta þátt leikstjórans í svona vinnu, en ég myndi ætla að Una Þorleifsdóttir hafi unnið talsvert afrek með þessari sýningu. Samvinna Nemendaleikhússins við íslensk leikskáld, sem nær aftur til stofnunar þess, hefur getið af sér fjölmörg verk og ekki öll frábær. Að skrifa verk með hæfilegum og nokkuð jafnstórum hlutverkum fyrir fimm til tíu leikara á sama aldri hefur stundum reynst meiri snóker en innblástur. Mér þykir alltaf svolítið vænt um Peysufatadaginn sem Kjartan Ragnarsson skrifaði fyrir útskriftarhópinn 1980-1981, sá það reyndar ekki en lék í því sjálfur í menntaskóla og finnst það glúrið. En Maríusögur Þorvaldar Þorsteinssonar (1995) þykja mér framúrskarandi, eitt hans besta verk og er þá mikið sagt. Það er óhjákvæmilegt að velta því fyrir sér á sýningum Nemendaleikhúsins (og eftir að heim er komið) hvað verði nú um þessa ungu listamenn. Hverjir verði áberandi, hverjir minna, hverjir hverfi til annarra starfa innan leikhúss og utan. Þessi samkvæmisleikur á ekkert erindi á prent, bæði er það ómaklegt gagnvart nýútskrifuðu fólki, en það er heldur ekki hollt að gefa þannig höggstað á sér, því þetta er hættuspil. Ein albesta sýning Nemendaleikhússins í mínu minni er uppfærsla Guðjóns Pedersen á Draumi á Jónsmessunótt 1993, hans besti Shakespeare. Ég hefði nú ekki spáð því að hinn gjörsamlega óborganlegi Spóli vefari, Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir, yrði tólf árum síðar orðinn staðarhaldari í Viðey, eða að Þórhallur Gunnarsson myndi snúa sér að þáttastjórnun í sjónvarpi. Það er því best að vera ekki að velta opinberlega fyrir sér mögulegum framgangi eða stefnu ríkisborgaranna í Óralandi. Þau mæta ansi berskjölduð til leiks í þessari sýningu og ná mörg að blómstra, þó ljóst sé að þau njóta sín misvel í þessari nálgun. En við þökkum þeim Hirti Jóhanni Jónssyni, Kolbeini Arnbjörnssyni, Olgu Sonju Thorarensen, Ólöfu Haraldsdóttur, Pétri Ármannssyni, Sögu Garðarsdóttur, Söru Margréti Nordahl, Sigurði Þór Óskarssyni, Snorra Engilbertssyni og Tinnu Sverrisdóttur kærlega fyrir þennan örláta, innblásna, snjalla, skemmtilega og áleitna endapunkt á glæsta sögu Nemendaleikhússins. Innan þess er allt leyfilegt, tilraunir, áhætta, ungæðisleg klikkun. En allt þetta er hægt af því að umgjörðin veitir öryggi. Nemendaleikhús er verndaður vinnustaður. Úr sýningu Nemendaleikhússins á Jarðskjálftar í London eftir Mike Bartlett Ljósmynd: Óskar Hallgrímsson

x

Spássían

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.