Spássían - 2012, Side 43

Spássían - 2012, Side 43
43 „ kennsla í danssköpun oft á tíðum í höndum tónskálda eða undir mjög sterkum áhrifum frá þeim. Louis Horst sem verið hafði tónlistarstjóri við Denishawn og vann síðan með Mörthu Graham í mörg ár kenndi meðal annars heilli kynslóð amerískra nútímadansnema danssköpun. 9 Tónsköpun John Cage var einnig óneitanlega grunnurinn að danssköpun póstmódern kynslóðarinnar þó að sjálfsögðu hafi danshöfundarnir aðlagað og endurbætt hugmyndir hans að eigin þörfum. Mikilvæg í sköpun Cage var ekki síst sú hugmynd að öll hljóð væru þess verð að vera kölluð tónlist, hugmynd sem danshöfundarnir túlkuðu á þann hátt að allar hreyfingar væru þess verðar að kallast dans.10 Hugmyndin um að ekkert samband þyrfti að vera á milli tónlistar og dans, hjónabandið væri úrelt og hver og einn skapaði sér sitt eigið líf, birtist mjög sterkt í danssköpun Merce Cunningham. Hann hélt því fram að dansinn skyldi saminn einn og sér og það sama gilti um tónlistina. Danshöfundur og tónskáld hefðu samráð um ytri ramma verkanna eins og t.d. lengd en hefðu annars ekkert með verk hvors annars að gera. Samkvæmt Cunningham var tónlistin í raun ekki dansverkinu nauðsynleg en veruleiki okkar aldrei þögull og því mikilvægt að dansinn færi fram innan hljóðveruleika.11 Dansverkið hitti því tónverkið á ákveðnum stað og stund og skapaði með því lifandi upplifun fyrir áhorfandann, upplifun sem fólst í áreiti tveggja ólíkra forma samtímis, rétt eins og gjálfrið í öldunum leikur undir sýsl æðarunganna í fjöruborðinu. Kynslóðin sem kom á eftir Cunningham, og oftast er talað um sem póstmódern kynslóðina, gekk skrefinu lengra í að aftengja sig tónlistinni. Hún leitaði nýrra leiða í danssköpun, leiða sem höfðu ekkert að gera með tónlistina yfirleitt. Leikir, stærðfræðilegar formúlur, rúmfræðileg form og endurtekningar voru meðal annars rammar sem dansverk voru byggð í kringum. Eitt af markmiðunum með þessum tilraunum var að losa dansinn undan þeirri tilfinningasemi og þeim dramatískum tilburðum sem þóttu hafa einkennt verk nútímadanshöfundanna. Dansinn sem list hreyfinga skyldi snúast um manneskju á hreyfingu og ekkert annað.12 Í Evrópu þróaðist dansleikhúsformið sem sótti innblástur og vinnuaðferðir í auknum mæli til leikhússins frekar en tónlistarinnar. Eftir tímabil þögulla dansverka og tíma naumhyggju í dansi leituðu danshöfundar í allt það sem áður hafði verið skrælt af dansinum - svið, búninga, myndræna tækni, skraut og ofurtækni – til að hreyfingin í sinni einföldustu myndi fengi að njóta sín. Tónlist og dans náðu þá aftur saman þó á ólíkan hátt en áður. Nýjar gerðir tónlistar eins og popptónlist, jazz, rokk og heimstónlist voru kynntar inn í vestrænan listdansheim og einnig voru hvers konar hljóð boðin velkomin inn í heim hreyfinganna. Danshöfundar tóku nú hljóðheiminn í æ ríkari mæli í eigin hendur. Þeir völdu tónlist sem hæfði því sem þeir höfðu að segja án þess að vera í tengslum við tónlistarhöfundinn og sköpuðu jafnvel sína eigin tónlist eða hljóðmynd við eða í dansverkin sín. Meðlimir Judson- hópsins í New York og sporgöngumenn þeirra unnu t.d. með tengsl tónlistar og dans á fjölbreyttan hátt. Hjá þeim mátti finna sýningar þar sem dansari og tónlistarmaður spunnu saman og í einhverjum verkum var notaður söngur, tal, hlátur, andardráttur og hvers kyns önnur hljóð framkölluð af dönsurunum sjálfum sem tónlist við verkin. Tónlistarmennirnir létu líka gamminn geysa. Sumir þeirra ákváðu að semja sín eigin dansverk og einhverjir héldu því fram að tónlistin væri dans í sjálfu sér. Eitthvað var um að tónlistin væri samin útfrá hreyfingunum, þannig að öfugt við það sem áður hafði verið byggði tónlistin á uppbyggingu dansverksins en ekki öfugt.13 Í lok 20. aldar voru tónlistin og dansinn í flestum tilvikum orðin óaðskiljanleg. Samband þeirra hafði þó breyst því allar þær breytingar og allt það uppgjör sem orðið höfðu árin á undan höfðu opnað fyrir nýjar leiðir í samskiptum sem ekki var hægt að horfa fram hjá. Reyndar hafði umrót 20. aldar þau áhrif að allt varð leyfilegt og hver valdi þá leið sem honum/henni hentaði í því að tengja þessi tvö listform saman. Tími hinna frjálsu ásta var runninn upp. Náið samstarf tónlistarmanna og danshöfunda við danssköpun hefur verið algengt undanfarin ár hér á landi, eins og sást t.d. á verkinu Á vit .... Mikilvægt dæmi þar um er sýningin Sex pör sem sýnd var á Listahátíð Reykjavíkur vorið 2011 og var fjallað um hjá RÚV í þáttunum Tónspor í byrjun árs 2012. Í því verkefni voru sex tónskáld og sex danshöfundar pöruð saman til að skapa dans-tónverk og ferlið filmað til að vinna upp úr því sex sjónvarpsþætti. Í næsta hefti Spássíunnar verður fjallað um áðurnefnda þætti og hvernig tengsl þessara tveggja greina birtast í verkunum sex sem sýnd voru. Þar verður meðal annars leikið áfram með myndlíkinguna um hjónaband eða ástarsamband þessara lista. 1 Damsholt, Inger, „The Marriage of Music and Dance. Understanding the world of choreomusical relations through a gendered metaphor“, Of Another World. Dancing between dream and reality. Afmælisrit til heiðurs Professor Emer. Erik Aschengreen. Ritstj. Monna Dithmer, Museum Tusculanum Press University of Copenhagen 2002. Greinin er byggð á doktorsritgerð Damsholt; Choreomusical Discourse. The Relationship between dance and music. University of Copenhagen 1999. 2 Sama, 242 og 248. 3 Sama, 242. 4 Sama, 238 5. Banes, Sally, Writing Dancing in the Age of Postmodernism. Wesleyan University Press and University Press of New England, Hanover og London, 1994, 311. 6 Banes, 312 og 325. 7 Damsholt, 242-247. 8 Banes, 312. 9 „Louis Horst“, Encyclopædia Britannica Online, sótt 12. júní 2012 af http://www.britannica.com/EBchecked/topic/272449/Louis-Horst. 10 Banes, 212-316. 11 Damsholt, 244. 12 Banes 212-226. 13 Banes bls. 314-316 Í takt við réttindabaráttu kvenna og kröfu þeirra um frelsi, sjálfstæði og jafnrétti jafnt innan sem utan hjónabands fóru að koma fram nýjar hugmyndir að samspili tónlistar og dans.

x

Spássían

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.