Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.04.2013, Side 3

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.04.2013, Side 3
 Ávarp formanns ÖBÍ Ó, vesæll maður, að þvígá, eftir mun koma tíminn sá, sama hvað niður sáðir hér sjálfur án efa upp þú sker. Svo segir í Passíusálmum Hallgríms Péturssonar, XIV. sálmi, 15. erindi. Þetta getur svo sannarlega átt við nú þegar stjórnartaumunum er sleppt. Þegar fráfarandi ríkisstjórn tók við eftir efnahags- hrunið víðfræga, bðrðu þau sér á brjóst og köll- uðu sig Velferðarstjórnina að norrænni fyrirmynd sem myndi halda hlífiskildi yfir láglaunafólki og lífeyrisþegum. Fyrsta verk þeirra eftir kosning- arnar 2009, þann 1. júlí, var að setja lög sem eru í sögulegu samhengi mesta skerðing sem gerð hefur verið á kjörum öryrkja á lýðveldistíma, í einu vetfangi. Þar skertust kjör margra um fleiri þús- und með þriggja daga fyrirvara, af því að það var svo auðvelt! Kosið verður til Alþingis 27. apríl og hafa fram- boð aldrei verið fleiri. Öryrkjabandalagið (ÖBÍ) hóf strax í byrjun árs 2013 að huga að því hvernig bandalagið gæti komið sínum áherslum sem best til skila og var ákveðið að halda tvo almenna fundi með framboðunum. Annan með áherslu á mann- réttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna um rétt- indi fatlaðs fólks, þar sem framboðin skildu svara ákveðnum spurningum um hvernig þau sæju sáttmálann koma best að gagni. Hvort fullgilda ætti hann eða lögfesta og lagfæra lagaumhverfið að honum. Það er skemmst frá því að segja að allir þeir sem mættu fyrir sín framboð (ellefu talsins) lýstu því yfir að sáttmálinn ætti að koma til fram- kvæmda sem fyrst og voru flestir á því að lögfesta hann strax, nokkrir vildu þó fullgilda fyrst og lög- festa síðar. Það er mikilvægt fyrir ÖBÍ að hafa það svart á hvítu frá öllum sem verða á næsta þingi hvað þeirra flokkar eða framboð standa fyrir varð- andi sáttmálann. Hægt er að lesa nánar um fund- inn og sýnishorn af svörum framboðanna á bls. 23-25. Hinn fundurinn var með áherslu á kjara- mál öryrkja og var haldinn laugardaginn 13. apríl eftir að þingi lauk. Öllum framboðum sem bjóða fram á landsvísu var sent boðsbréf á fundinn og því fylgdu fimm spurningar varðandi kjaramál ör- yrkja. Sjá má svör framboðanna við fyrstu spurn- ingunni á bls. 4-7. Síðustu fjögur ár hefur vísitala neysluverðs hækkað um 20,5%, launavísitala um 23,5% og meðaltekjur öryrkja fráTryggingastofnun ríkis- ins (TR) fyrir skatta um 4,7%. Rétt er að athuga að allar tekjur öryrkja hafa dregist saman, það er launatekjur og greiðslur úr lífeyrissjóðum. Á sama tíma hafa lán, og þar með leiga, hækkað upp úr öllu valdi og svo virðist sem fjármagnseigendur, lífeyrissjóðir og bankar séu betur varðir en aðrir, það er þeir„eru bæði með belti og axlabönd". Ekki hefur mátt hrófla við verðtryggingu, en hún hefur komið verst niður á láglaunafólki, því lán eru komin í hæstu hæðir. Ef einhver aur hefur komist í banka, er hægt að tala um tvöfalda skattlagningu, því það eru ekki aðeins vextir sem eru skattlagðir, heldur einnig verðbætur. Þar sem öll innkoma er lögð til grundvallar útreikningi bóta hjá TR og líf- eyrissjóðum, þar með taldir vextir og verðbætur, skerðast bætur óhjákvæmilega. Það er skýlaus krafa Öryrkjabandalags íslands að skerðingar þær er gerðar voru á Alþingi íslend- inga l.júlí 2009 verði dregnartil baka afturvirkt, eins og gert var við laun æðstu embættismanna ríkisins. Ekkert um okkur án okkar! Guðmundur Magnússon, formaður Öryrkjabandalags íslands TÍMARIT ÖBÍ

x

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1441

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.