Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.04.2013, Side 5
Ljósmynd: Margrét Rósa Jochumsdóttir
er nauðsynlegt að skilgreina lágmarksframfærslu-
kostnað og tryggja að allir geti lifað með reisn.
Ganga þarf í það verkefni strax.
Framsóknarfíokkurinn
í málefnum aldraðra og öryrkja er eftirfarandi
brýnasta viðfangsefnið:
• Kjaraskerðing aldraðra og öryrkja sem tók gildi
1. júlí 2009, verði afturkölluð.
• Lífeyrir aldraðra og öryrkja verði hækkaður
vegna kjaraskerðinga þeirra (og kjaragliðnunar)
á krepputímum.
• Skerðing tryggingabóta vegna greiðslna úr líf-
eyrissjóði verði afnumin í áföngum.
Húmanistafíokkurinn
Já, Húmanistaflokkurinn mun gera það að einu
af sínum fyrstu verkum ef hann verður kjörinn
á þing að beita sérfyrir lagasetningu um þessar
leiðréttingar í samræmi við leiðréttingar sem aðrir
hópar hafa fengið afturvirkt eins og alþingismenn
og hæstaréttardómarar. Við höfum lýst því yfir að
það sé þjóðarskömm að öryrkjar og ellilífeyris-
þegar séu skildir eftir með þessum hætti þegar
aðrir hafa fengið sinn hlut bættan.
Hægri grænir
XG - Hægri grænir, flokkur fólksins ætlar, fái hann
til þess nægilegt fylgi og áhrif og þá svo fljótt sem
mögulegt er, að lögleiða lágmarkslaun, þ.m.t.
fyrir aldraða og öryrkja, sem verði 240.000 á mán-
uði til þess að byrja með. Hann ætlar samtímis
að hækka skattleysismörk í kr. 200.000 á mánuði.
Hann ætlar einnig samtímis að afnema allar tekju-
tengingar og skerðingar og auka t.d. með því
möguleika fólks til þess að með dugnaði og sjálfs-
l.maíganga 2012
1. maíganga 2012
bjargarviðleitni þeirra, sem það geta, að verða sér
út um aukatekjur. Þá ætlar hann að lækka trygg-
ingagjald strax niður í 3%, til þess að skapa svig-
rúm fyrir atvinnurekendur að ráða fólk í vinnu t.d.
í létt hlutastörf. Flokkurinn ætlar að lækka tekju-
skatt á fjórum árum niður í 20%. Hann ætlar að
lækka vsk. niður í 20% og afnema alla tolla og
vörugjöld á skóm, fatnaði og stoðtækjum. Kjara-
skerðingarnar frá janúar 2009 til gildistíma nýju
laganna verða þá endurgreiddar um leið og nýju
lögin taka gildi. Þetta verður allt hægt ef að önnur
afar brýn stefnumál flokksins um efnahagsmál ná
fram að ganga, sjá www.xg.is.
Lýðræðisvaktin
Já, við viljum taka á þessu máli en gefum ekki lof-
orð um inntak eða tíma á þessari stundu. Þessa af-
stöðu skýrum við með eftirfarandi hætti með skír-
skotun til stefnuskrár Lýðræðisvaktarinnar. Þar
segir m.a.
5
„Við viljum: Kortleggja raunverulega stöðu þjóð-
arbúsins. Enginn veit hvert hann á að fara nema
hann viti hvar hann er. Staða þjóðarbúsins virðist
á reiki og því viljum við fá óháða úttekt erlendra
sérfræðinga á raunverulegri stöðu bankanna,
TÍMARIT ÖBÍ