Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.04.2013, Síða 6
1
fVARUÐ
wiii
— VJl
VARUÐ
hébctfíw'
LEIDD I LOG
Gjörningur ÖBÍ á Austurvelli nóvember 2012
eignum þeirra og skuldum og einnig á stöðu ríkis-
sjóðs, sveitarfélaga, heimila og fyrirtækja. Þegar
staðan liggur fyrir, verður hægt að ákveða fram-
haldið, m.a. hvernig hægt sé að rétta hlut skuld-
ugra heimila frekar en orðið er."
Hér er sieginn varnagli. Við viljum forðast að gefa
innihaldslaus loforð en láta gera úttekt á stöðu
þjóðarbúsins svo að hægt verði að meta mögu-
leika til kjarabóta fyrir hópa og þá eru öryrkjar í al-
gjörum forgangi.
Píratar
Við Píratar viljum velja mannréttindamiðaðar
leiðir og nálgast þetta mál út frá réttindum fólks.
Hafi verið brotið gegn mannréttindum öryrkja
viljum við leita allra leiða til að bæta fyrir þau brot.
Eðlilegast væri að leita til dómstóla til að fá skorið
úr um rétttil afturvirkrar leiðréttingar. Við Píratar
höfum hins vegar skilning á því hve erfitt getur
reynst að leita til dómstóla með mál af þessum
toga, þar sem dómstólar hafa gjarnan talið sig
fara inn á svið löggjafarvaldsins við úrlausn mála
sem krefjast mikilla fjárútláta. Við erum ekki sam-
mála þessari nálgun dómstóla enda öll mannrétt-
indi jafnrétthá og jafnmikils virði. Efekki dugir
fyrir öryrkja að leita réttar síns fyrir dómstólum,
þarf að leita annarra leiða til að bæta megi fyrir
þau brot sem öryrkjar urðu fyrir í efnahagskrepp-
unni. Við Píratar viljum ábyrg stjórnmál og lofum
ekki upp í ermina á okkur en við viljum eiga sam-
tal við talsmenn öryrkja til að fara yfir málin og
finna lausnir.
í stuttu máli - Já Píratar vilja að skerðingar frá
janúar 2009 verði afturkallaðar og við viljum leita
leiða, í samráði við talsmenn öryrkja, til að bæta
fyrir þau brot sem öryrkjar hafa orðið fyrir í kjölfar
efnahagskreppunnar.
Samfylkingin
ífebrúar sl. kynnti velferðarráðherra heildarend-
urskoðun almannatryggingalaga, sem boðar rót-
tækar breytingar á núverandi kerfi og gerir laga-
umhverfið einfaldara, skýrara og gegnsærra. Hluti
boðaðra breytinga eru nú þegar komnar til fram-
kvæmda, til dæmis afnám makatenginga.
Þær breytingar sem felast í nýju frumvarpi eru
fjöimargar. Þær snúa meðal annars að réttindum
ellilífeyrisþega og felast í sameiningu bótaflokka,
gjörbreyttum og einfölduðum reiknireglum, þar
sem dregið er úr tekjutengingum, samhliða því
að frítekjumörk verða afnumin. Almennt munu
greiðslur almannatrygginga til ellilífeyrisþega
hækka í kjölfar breytinganna. Þrátt fyrir að breyt-
ingarnar snúi í flestum atriðum eingöngu að elli-
lífeyrisþegum þá munu þær draga verulega úr
áhrifum tekna á framfærsluuppbót sem nú er
greidd þeim elli- og örorkulífeyrisþegum sem eru
hvað tekjulægstir. í gildandi kerfi lækkar uppbótin
um krónu á móti krónu hafi lífeyrisþegi einhverjar
tekjur. Með breytingunni er stefnt að því að ein-
ungis 45% tekna hafi áhrif á útreikning fram-
færsluuppbótar.
Mikilvægt er að tryggja örorkulífeyrisþegum sam-
bærilegar kjarabætur og stefnt er að gagnvart elli-
1. maíganga 2012
Ljósmynd: Margrét Rósa Jochumsdóttir