Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.04.2013, Síða 9
hvernig þau á skrifstofu sveitarstjórans voru að
taka í þetta án þess að ég hafi áttað mig á því.
Það voru náttúrulega alltaf einhverjir sem gáfu til
kynna að þetta væri bara frekja en þetta er svona
staðfesting á að fólk kunni virkilega að meta það
sem ég var að gera. Ég bjóst alls ekki við þessu."
Slóðin á viðtalið í heild er: www.obi.is/frettabref/
frett/nr/1291
í flokki fyrirtækja/stofnana
Gerpla fimleikafélag, fyrir að hafa, eitt íþróttafé-
laga, boðið upp á fimleikaþjálfun fyrir fólk með
þroskahamlaniralltfrá árinu 1997.
Jón Gnarr borgarstjóri afhendir Gerplu fimleikafélagi
Hvatningarverðlaunin
Hér er stutt brot úr viðtali sem tekið var við Auði
Ingu Þorsteinsdóttur, framkvæmdastjóra Gerplu
fyrir Vefrit ÖBÍ.
„Fyrstu árin sem þau voru að æfa þá voru rosalega
miklar breytingar fyrir starfsmenn og iðkendur
félagsins. Þarna komu inn börn með mismunandi
fatlanirog þetta bara breytti hugsunarhættinum
hjá fullt af fólki, sem er alveg frábært. Þau komu
með svo mikla gleði og ánægju inn í félagið. Þó
svo að þetta hafi verið hugsað í upphafi algjörlega
út frá þeirra forsendum þá gaf þetta svo mikið
til baka fyrir alla aðra líka. Það voru 5-6 iðkendur
fyrsta árið og svo rokkaði það í kringum þennan
fjölda fyrstu árin. En svo fór ásóknin að aukast svo
við urðum að skipta hópnum upp í grunnhóp og
framhaldshóp. í dag eru um 30 manns að æfa og
það er kominn biðlisti í grunnhópinn. Mér finnst
voðalega gaman að við höldum sömu krökkunum
í félaginu ár eftir ár. Einn iðkandinn er orðinn að-
stoðarþjálfari með yngri krakkana og hún er alveg
yfirburðar starfsmaður."
„Að fá þessi verðlaun er fyrst og fremst mikil við-
urkenning á ákveðnu frumkvöðlastarfi sem við
höfum verið í. Þetta eykur sýnileika okkar gífur-
lega mikið og það eru allir afskaplega ánægðir og
stoltir hér í húsi. Við erum ákaflega ánægð með
að það hafi einhverjir aðrir tekið eftir því sem við
höfum vitað lengi að er mjög vel gert."
Slóðin á viðtalið í heild er: www.obi.is/frettabref/
frett/nr/1295
í flokki umljöllunar/kynningar
Lára Kristín Brynjólfsdóttir, fyrir baráttu og hug-
rekki við að vekja umræðu um einhverfu og auka
skilning almennings og heilbrigðisyfirvalda á
stöðu fuilorðinna á einhverfurófi.
Hér er stutt brot úr viðtali sem tekið var við Láru
Kristínu fyrir Vefrit ÖBÍ.
„Þegar ég hlaut sjálf verðlaunin upplifði ég að þeir
einhverfu hefðu fengið ákveðna áheyrn. Ég upp-
lifði að samfélagið hefði virkilega heyrt til okkar
og sýnt málefnum okkar skilning. Enda hefur að-
koma varðandi þekkingu á einhverfu batnað
verulega á síðastliðnu ári. Ég verð þó að vera
raunsæ varðandi aðkomu og þekkingarleysi í
garð einhverfra á íslandi. Aðstoð við þá einhverfu
sem búa heima við er mjög slök, og þá meina ég
engin. Félagsleg einangrun fullorðinna á einhverf-
urófi er gríðarleg. Ekkert teymi tekur við þeim
sem bera þessa fötlun. Það er eins og algert svart-
hol sé í kerfinu varðandi fullorðna á einhverfurófi.
Eins og fagfólk hafi bara gert ráð fyrir því að ein-
hverfa myndi rjátlast af fólki. En einhverfa er ævi-
löng fötlun með gríðarlegar hömlur fyrir þann
einhverfa, félagslega og líkamlega. Fyrir þá sem
eru líkamlega veikir er hægt að leita eftir aðstoð
og meðferðum. Fyrir geðsjúka eru allskyns teymi
Jón Gnarr borgarstjóri afhendir Láru Kristínu Brynjólfsdóttur
Hvatningarverðlaunin
TIMARIT OBI