Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.04.2013, Side 12
TÍMARIT ÖBÍ
Viðtal: Elísabet Eggertsdóttir
fyrst er hægt að
afgreiða
umsóknir
í bráðabirgðaákvæði IV í lögum um málefni fatlaðs fólks nr. 59/1992 er kveðið á um inn-
leiðingu notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar (NPA). í framtíðarsýn Reykjavíkurborgar
um þjónustu við fatlað fólk sem samþykkt var í borgarstjórn í janúar 2011 kom fram að
unnið yrði að þróun NPA aðstoðar.
Auglýst eftir þátttakendum í ágúst 2012
Þegar velferðarráðuneytið gaf út leiðbeinandi
reglur sumarið 2012, auglýsti Reykjavíkurborg
í ágúst 2012 eftir þátttakendum í tilraunaverk-
efni um NPA sem fyrirhugað er að muni standa til
ársloka 2014.1 Að loknu tilraunaverkefni borgar-
innar og annarra sveitarfélaga er gert ráð fyrir að
ákveðin reynsla og þekking hafi skapast og þá er
áætlað að NPA þjónusta verði bundin í íslensk lög.
Engir samningar hafa verið gerðir enn
Þrátt fyrir að um sjö mánuðir séu liðnir frá því
að auglýst var eftir umsóknum í NPA verkefnið í
Reykjavík hafa enn engir samningar verið gerðir.
Umsækjendur eru margir hverjir orðnir óþreyju-
fullir og upplifa stöðnun í málaflokknum. Ákveðin
óvissa ríkir um framhaldið og biðin tekur á.
Haft var samband við Björk Vilhelmsdóttur, borg-
arfulltrúa og formann velferðarráðs Reykjavíkur
og Stellu Kristínu Víðisdóttur, sviðsstjóra velferð-
arsviðs Reykjavíkurborgar, og þær beðnar um að
útskýra hvar skórinn kreppir.
Björk Vilhelmsdóttir,
borgarfulltrúi og formaður
velferðarráðs Reykjavíkur-
borgar
Hvers vegna hafa umsóknir um NPA enn ekki
verið afgreiddar í Reykjavík?
Ekki hefur verið hægt að afgreiða umsóknir á
meðan ekki hafa verið settar reglur, svo einfalt er
'Velferðarsvið Reykjavíkurborgar - Starfsáætlun velferðarsviðs
2013
það. Reglurnar hafa verið í undirbúningi allt frá
því í lok júní 2012 og voru loks samþykktar í vel-
ferðarráði nú í lok mars og í borgarráði strax eftir
páska 2013. Að lokum hefur náðst góð sátt um til-
rauna- og þróunarverkefnið og það er að fara af
stað.
Nú fyrst er hægt að afgreiða umsóknir, bæði út
frá settum reglum og þvífjármagni sem ákveðið
hefur verið í tilraunaverkefnið. Ekki verður hægt
að mæta þörfum allra sem sóttu um.
Ég skil vel óþreyju fatlaðs fólks sem hefur lengi
beðið eftir að sjá breytta hugmyndafræði koma
til framkvæmdar, m.a. með tilkomu NPA. Not-
endur, starfsmenn kerfisins og kjörnir fulltrúar
væntu mikils við yfirfærsluna til sveitarfélaga, en
það hefur tekið lengri tíma að þróa þjónustuna
í takt við þarfir notenda en við öll hefðum viljað.
Ástæðan er mikil vöntun á þjónustu til langs tíma
og fjármagnsskortur.
Við auglýstum eftir umsóknum í verkefnið í ágúst
2012 til að átta okkur á umfanginu og hverjar
þarfirnar eru sem þarf að mæta. Þarfirnar voru
mun meiri en við gerðum ráð fyrir og ekki stóð-
ust áætlanir Alþingis og verkefnisstjórnar um NPA
sem byggðu á því að verkefnið yrði fjármagnað
með þjónustu sem félli niður auk framlags frá
Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Ástæðurnar voru m.a.
ósvaraðar væntingar og þarfir fólksins fyrir þjón-
ustu sem hafði m.a. verið mætt af aðstandendum
þeirra. í Ijós kom í október þegar búið var að hitta
alla umsækjendur að ekki var hægt að spara á
móti útgjöldum. Þá þurfti að endurskoða fjár-
hagsáætlun verkefnisins og breyta reglum þannig