Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.04.2013, Qupperneq 16
TÍMARIT ÖBÍ
Viðtal: Elísabet Eggertsdóttir
Mjög
skemmtilegt
og fjölbreytt starf
Samkvæmt hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf ákveður fatlað fólk sjálft hvernig þjónustu
það fær. Með NPA (notendastýrðri persónulegri aðstoð) getur þjónustuþeginn ráðið sér það
aðstoðarfólk sem hann kýs, hann er verkstjórnandinn og hefur því stjórn á eigin lífi. Þannig
öðlast hann frelsi sem gerir honum kleift að uppfylla hlutverk sín í samfélaginu eins og
aðrir borgarar. Markmið NPA er að fatlað fólk hafi frelsi til athafna og stjórn á eigin lífi með
persónulegri aðstoð til að geta uppfyllt hlutverk sín og ábyrgð eins og aðrir borgarar.
Auður Finnbogadóttir hefur starfað sem aðstoð-
armaður hjá ungum manni í rúmlega tvö ár, en
hann rekur sína eigin þjónustu með beingreiðslu-
samningi. Auður svarar hér nokkrum spurningum
um NPA og hennar upplifun af aðstoðarmanna-
starfinu.
Hvað varð til þess að þú fékkst áhuga á að
starfa sem aðstoðarmaður?
Áður en ég byrjaði að vinna sem aðstoðarmaður
vann ég á ýmsum stöðum eins og sambýlum,
þjónustukjarna, vinnustöðum fatlaðs fólks, heima-
þjónustu og frekari liðveislu. Ég hef upplifað á
öllum þessum stöðum að umfang þjónustunnar
er ekki bundið við þarfir einstaklinganna heldur
vinnustaðina sjálfa. Það þýðir að einhverjir sem
þurfa þjónustu fá hana ekki, eða að einhverjir
þurfa meiri eða öðruvísi þjónustu en þeir eru að
fá. Mig langaði að fara að vinna hjá einstaklingi
en ekki hjá stofnun, að stíga út úr því að vera yfir-
maður þess sem ég er að aðstoða í að vinna fyrir
einhvern sem undirmaður.
í hverju felst starf aðstoðarfólks?
Aðstoðarfólk í NPA gengur í öll þau störf sem við-
komandi notandi myndi gera ef hann væri ófatl-
aður. Það er ekki skilgreint nákvæmlega hvað á
að gera, eins og oft er í almenna þjónustukerf-
inu„þú mátt elda mat en ekki vaska upp", eða
„þú mátt þrífa upp að slökkvara". Þú bara gengur
í allt og það skiptir í raun engu máli hvað það er.
Það er auðvitað misjafnt hvað fólk vill og hvernig
það vill haga lífi sínu. Aðstoðarfólk upplifir allt
frá því að aðstoða viðkomandi við að fara með
ömmu sinni í Bónus, í að fara í jarðarför og ganga
í gegnum erfið tímabil eins og að missa ættingja
sína eða gleðilega hluti eins og að fara í frí eða
fagna því að hvolpar fæðast í fjölskyldunni. Sumt
aðstoðarfólk vinnur fyrir fólk sem stundar nám.
Aðstoðarmaðurinn aðstoðar þá ekki í öllum til-
fellum við námið sjálft heldur aðra hluti sem fylgja
því að vera í námi, eins og til dæmis að borða á
milli tíma, komast á salernið, láta halda á töskunni
sinni eða jafnvel að láta glósa fyrir sig. Svo eru það
bara þessir hversdagslegu hlutir sem allir gera
dags daglega.
Hvernig er starf aðstoðarfólks ólíkt öðrum
þjónustustörfum fyrir fatlað fólk?
Það er öðruvísi á þann hátt að ég er til dæmis ekki
forstöðukonan. Hlutverk aðstoðarfólks er ekki að
annast eða vinna með fatlað fólk eins og oft hefur
verið heldur sér fatlað fólk um sig sjálft með að-
stoð sem það kýs sér sjálft.