Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.04.2013, Page 17
Sá sem ég vinn við að aðstoða er vinnuveitandi
minn og það er hans að ákveða í hverju starf mitt
er fólgið. Ég tek ekki ákvarðanir varðandi hans líf,
ég er starfmaður á hans vegum. Þetta er ákveðin
valdatilfærsla, valdið færist til fatlaðs fólks sem
ræður sér þá aðstoð sem það þarf hverju sinni.
Hvað er skemmtilegast við að vera
aðstoðarmaður?
Að vita aldrei frá degi til dags hvað þú gerir í
vinnunni. Hver dagur er þannig að þú mætir í
vinnuna og fylgir bara dagsplani notandans og
oft kemur dagurinn á óvart. Mérfinnst það mjög
áhugavert, að það sé í rauninni ekki í mínum
höndum hvað gerist. Þetta er ekki rétta starfið
fyrir fólk sem á erfitt með breytingar og þarf að
hafa allt fyrirfram skipulagt.
Auður Finnbogadóttir
Hvað er erfiðast við að vera aðstoðarmaður?
Hingað til hefur enginn traustur rammi verið í
kringum NPA og fólk hefur ekki fengið nægilega
fjárveitingu til þess að reka þá þjónustu sem það
þarf. Þá þarf fólk að reiða sig á ættingja sína, for-
eldra og systkini, umfram það sem eðlilegt er.
Þetta breytist þegar tilraunaverkefnið um NPA fer
af stað og fólk fær það fjármagn sem þarf til að
þetta gangi upp.
Hvaða þróun hefur orðið á starfsumhverfi
aðstoðarfólks á undanförnum árum?
Áður fyrr var mismunandi hvaða réttinda aðstoð-
armenn nutu og hversu há laun þeirra voru eftir
því fyrir hvern þeir unnu. Núna hefur NPA mið-
stöðin gert kjarasamning um réttindi aðstoðar-
fólks og það er mjög gott að geta haft sín rétt-
indi á hreinu. Þetta gat verið til vandræða til að
byrja með en mikil vinna hefur verið lögð í að
breyta þessu. Nú er búið að tryggja að ramminn
í kringum starfið er miklu skýrari og mikill hugur
er í eigendum NPA miðstöðvarinnar að gera hlut-
ina vel.
Geta allir fengið NPA?
Auðvitað er forsendan að fólk vilji vera með NPA.
Sumt fólk þarf aðstoð við að halda utan um og
skipuleggja sína aðstoð. Til dæmis sumt fólk með
þroskahömlun, geðraskanir og börn.
Það treysta sér ekki allir til að sjá um þætti eins
og vaktaplan eða bera ábyrgð á fjármálum. Fólk
getur þá ráðið sér aðstoðarverkstjórnanda sem
heldur utan um slíka þætti en notandinn er alltaf
verkstjórnandi. Með möguleika á aðstoðarverk-
stjórnanda eiga allir að geta nýtt sér NPA, enda er
slík þjónusta alltaf sniðin að þörfum notandans.
Hvað viltu ráðleggja öðrum sem langar að
starfa sem aðstoðarmenn?
Þú þarft alltaf að setja þig í ákveðið hlutverk og
þér er gert það Ijóst þegar þú byrjar að vinna sem
aðstoðarmaður hvert þitt hlutverk er. Það er mjög
mikilvægt að fara ekki úr sínu hlutverki. Þú þarft
að geta tekið þátt í gleði og sorgum, vita hvenær
þín er þörf, hvenær þú átt að draga þig í hlé og
hvenær þú þarft ekki að aðstoða. Þetta er mjög
mikið ábyrgðarstarf og er í rauninni ekki fyrir
hvern sem er. Aftur á móti fyrir þá sem treysta sér
í þetta hlutverk þá er þetta mjög skemmtilegt og
rosalega fjölbreytt starf. Hjá þeim sem ég þekki
sem eru með NPA þá er starfsmannavelta mjög
lítil. Aðstoðarfólkinu finnst mjög jákvætt að vita
ekki hvernig dagurinn verður fyrirfram og takast á
við ný verkefni. Það er mjög misjafnt hvað þú fæst
við eftir því hjá hverjum þú vinnur. Sumir þurfa
aðstoð við til dæmis að tjá sig, á meðan aðrir að-
stoðarmenn eru ráðnir til að segja aldrei neitt.
Þegar vel gengur er þetta mjög skemmtilegt starf.
Fatlað fólk, sem ég þekki, sem er með aðstoðar-
fólk hefur mikinn metnað í að samstarfið gangi
vel enda er það allra hagur.
Á heimasíðu NPA miðstöðvarinnar auglýsa eig-
endur eftir starfsfólki. Eins er hægt að senda inn
umsókn á npa@npa.is og verður þeim komið
áfram til eigenda miðstöðvarinnar.
190 imVIAIIl
* •• *