Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.04.2013, Page 19
Hlutverk Þekkingarmiðstöðvarinnar er að safna upplýsingum á einn stað um þau réttindi
og þjónustu sem hreyfihamlaðir einstaklingar geta þurft á að halda, hvort sem hreyfi-
hömlunin er tímabundin eða varanleg.
Þeir sem ieita til miðstöðvarinnar eru fatlað fólk,
aðstandendur þeirra, fagfólk, stofnanir og fyrir-
tæki sem þurfa upplýsingar, fræðslu eða nám-
skeið er tengjast hreyfihömluðu fólki. Með opnun
miðstöðvarinnar var stigið stórt skref í að auka að-
gengi fatlaðs fólks að upplýsingum.
Vefur Þekkingarmiðstöðvarinnar
Á heimasíðu Þekkingarmiðstöðvarinnar er að
finna hagnýtar upplýsingar um flest allt sem
gagnast fötluðu fólki í daglegu lífi s.s. um að-
gengi, reynslu fólks af gistingu innanlands og er-
lendis, þjónustu sveitarfélaganna og hjálpartæki.
Fólk er hvatt til að miðla af reynslu sinni t.d. af
ferðalögum innanlands, þannig nýtist reynsla eins
aðila öllum fjöldanum. Á vefnum má einnig finna
þau námskeið sem eru framundan og tengjast á
einn eða annan hátt daglegu lífi hreyfihamlaðs
fólks. Þeir sem hafa góðar hugmyndir um áhuga-
verð námskeið eru hvattirtil að hafa samband.
Hjálpartækjasýning í júní
Á eins árs afmæli Þekkingarmiðstöðvarinnar
verður haldin hjálpartækjasýning þar sem inn-
flutningsaðilar hjálpartækja sýna það nýjasta sem
er í boði fyrir hreyfihamlað fólk. Allir geta haft
gagn og gaman af sýningunni því flestir þurfa
á hjálpartækjum eða sér lausnum að halda ein-
hvern tímann á ævinni vegna tímabundinna að-
stæðna t.d. handleggsbrots eða skertrar hreyfi-
getu vegna aldurs.
Á sýningunni, sem haldin verður í íþróttahúsinu
í Hátúni dagana 7. - 8. júní, gefst fólki kostur á
að kynna sér á einum stað ýmsar tækninýjungar
og hagnýtar lausnir sem henta hreyfihömluðu
fólki. Sýning sem þessi skapar vettvang þar sem
hægt er að sjá hvaða hjálpartæki eru til og jafn-
vel er hægt að prófa þau. Greiður aðgangur
verður að innflutningsaðilum og hægt er að fá
ítarlegar upplýsingar um hjálpartækin. Með sýn-
ingunni ætti fólk að verða meðvitaðra um þær
leiðir sem hægt er að fara og hvert það á að leita
upplýsinga, þannig að það hafi betri forsendur til
að velja og hafna þeim möguleikum sem í boði
eru. Með sýningu sem þessari gegnir Þekkingar-
miðstöð Sjálfsbjargar því hlutverki sínu að miðla
upplýsingum til fólks á hlutlausan hátt. Aðgangs-
eyrir er enginn.
Þjónusta
Þjónusta Þekkingarmiðstöðvarinnar er gjaldfrjáls
og námskeiðsgjöldum er haldið í lágmarki þegar
það á við. Opnunartími miðstöðvarinnar er frá
kl. 10-16 alla virka daga. Allir eru velkomnir í Há-
tún 12 og er alltaf heitt á könnunni. Ef fólká ekki
heimangengt er einnig hægt að hafa samband í
gegnum netspjallið á heimasíðunni www.thekk-
ingarmidstod.is eða hringja í síma 5 500 118. Mið-
stöðin er einnig á Facebook og Twitter.
Við hvetjum alla til að koma við og kynna sér
þjónustu Þekkingarmiðstöðvar Sjálfsbjargar.
Hlökkum til að sjá ykkur.