Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.04.2013, Side 20
U)
c
UJ
c
:°
cT
"ö
c
£
Lilja Þorgeirsdóttir framkvæmdastjóri ÖBÍ
Sigríður Hanna Ingólfsdóttir félagsráðgjafi ÖBÍ
-Tekur gildi 4. maí næstkomandi
Greiðsluþátttaka sjúklinga við kaup á lyfjum tekur miklum breytingum viku eftir kosningar
þ.e. laugardaginn 4. maí næstkomandi. í kjölfar breytinganna mun lyfjakostnaður lækka
hjá sumum en hækka hjá öðrum.
Nýtt greiðsluþátttökukerfi verður innleitt í kjöl-
far breytinga á lögum um sjúkratryggingar og
lyfjalögum sem samþykkt voru á Alþingi 1. júní
2012. Meginmarkmið með nýju kerfi er bæði
nauðsynlegt og löngu tímabært, en það er að
koma til móts við þá einstaklinga sem greiða
verulega háar upphæðir fyrir lyf ásamt því að
auka jafnræði milli einstaklinga með ólíka sjúk-
dóma hvað varðar lyfjakostnað. Markmiðinu á að
ná án þess að leggja aukið fjármagn í málaflokk-
inn. ífjárlagafrumvarpinu fyrir árið 2013 kemur
fram að nýja greiðsluþátttökukerfið eigi að spara
ríkinu 250 m.kr. og að gert sé ráð fyrir að stilla
viðmiðunarfjárhæðum í greiðsluþátttökukerf-
inu þannig upp að markmiði um aðhald í lyfja-
útgjöldum verði náð.
Velferðarráðherra hefur lýst því yfir að til að ná
þessu markmiði þurfa þeir sem nota sjaldan lyf
að greiða meira en áður. Sannleikurinn er sá að
fjölmargir sem nota lyfað staðaldri munu einnig
þurfa að greiða meira en áður þrátt fyrir að vera
með lífsógnandi sjúkdóma sem munu fylgja þeim
út lífið. Það eru þeir einstaklingar sem hafa notið
góðs af því að óheimilt hefur verið að taka gjald
fyrir lyf sem sjúkratryggðum er lífsnauðsynlegt að
nota að staðaldri.
Þrepaskipt greiðsluþátttaka í lyfjakostnaði
Helsta breyting með nýju greiðsluþátttökukerfi
er innleiðing þriggja þrepa kerfis, sbr. töfluna hér
fyrir neðan.
Aldraðir 67 ára og eldri, örorkulífeyrisþegar, börn og ungmenni yngri en 22 ára
Lyfjakostnaður á 1 2 mánaða tímabili Greiðsluhlutfall af heildarverði lyfja
M Einstaklingar Sjúkratryggingar Einstaklingar Sjúkratryqqinqar
1 16.050 kr Okr 100% 0%
2 7.223 kr 40.927 kr 15% 85%
3 24.876 kr 306.823 kr 7,5% 92,5%
Samtals 48.149 kr* 347.750 kr
*Ef einstaklingur greiðir 48.7 49 kr. innan 7 2 mánaða getur læknir sótt um að SÍgreiði lyfað fullu (100%) það sem eftir er af tíma-
bilinu að uppfylltum skilyrðum vinnureglna SÍ. Einungis lyfsem Sl taka þátt íað greiða falla hér undir. Tafla tekin afvefSÍ.