Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.04.2013, Qupperneq 21
Eftir að lífeyrisþegar hafa greitt 48.149 kr. í lyf, sem
falla undir greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga ís-
lands (Sí), getur læknir sótt um lyfjaskírteini, sem
á að veita fulla greiðsluþátttöku ríkisins í lyfinu
það sem eftir er af tólf mánaða tímabilinu. Eftir
það tímabil byrjar fólk aftur á byrjunarreit.Tíma-
bilið hefst um leið og fyrsta lyf er keypt.
Upphæðirnar fyrir sjúkratryggða almennt eru
aðrar en fram koma í töflunni hér að ofan, en upp-
lýsingar um þær má m.a. finna á heimasíðu SÍ,
www.sjukra.is. Á heimasíðu Lyfjavers, www.lyfja-
ver.is er einnig að finna ítarlegar upplýsingar um
breytingarnar og reiknivél, sem fólk getur nýtt sér
við að reikna út lyfjakostnað sinn í nýju greiðslu-
þátttökukerfi.
Lyfjaskírteini
Lyfjaskírteini, sem tryggðu sjúkiingum lyf end-
urgjaldslaust munu ekki gera það frá og með 4.
maí. Þetta á meðal annars við um lyf vegna floga-
veiki, sykursýki, parkinson, skjaldkirtils og ígrætts
líffæris. Umrædd iyfjaskírteini munu eftir breyt-
inguna eingöngu tryggja að lyfin séu innan
greiðsluþátttökukerfisins. Þó verður hægt að fá
sérstök lyfjaskírteini sem veita fulla greiðsluþátt-
töku sjúkratrygginga allt árið þegar um er að
ræða sjúklinga í líknandi meðferð í heimahúsi
og með nýrnarbilun á lokastigi. Auk þess munu
sjúklingar með ákveðnar geðklofagreiningar fá
lyfjaskírteini með fullri greiðsluþátttöku tengd
ákveðnum lyfjum.
Breytingar sem tengjast börnum og ungmennum
eru að öll börn yngri en 18 ára í sömu fjölskyldu
greiða sem eitt barn og að ungmenni yngri en
22 ára greiða sama verð fyrir lyf og lífeyrisþegar.
Sýklalyf fyrir börn undir 18 ára aldri verða sjálf-
krafa innan greiðsluþátttökukerfisins en aðrir
þurfa áfram að greiða þessi lyf að fullu, að undan-
skildum þeim sem fá lyfjaskírteini.
Mikilvægt er að hafa í huga að einungis lyf sem SÍ
taka þátt í að greiða reiknast með í þrepin og er
alltaf miðað við viðmiðunarverð lyfja. Ef keypt er
dýrara lyf greiðir einstaklingur sjálfur mismuninn.
Sjúklingar munu áfram greiða að fullu fyrir lyf sem
ríkið tekur ekki þátt í að greiða. Kostnaður vegna
þessara lyfja bætist við útgjöld vegna lyfja innan
kerfisins ár hvert.
Mikill kostnaður í upphafi hvers tímabils
Fyrir öryrkja með mjög dýr lyf getur upphæðin
fyrir fyrstu lyfjakaup numið allt að 48.149 kr. en
þegar þeirri upphæð er náð er hægt að sækja um
lyfjaskírteini. Fyrir sjúkratryggða almennt er sam-
svarandi upphæð 69.415 kr. Þessar upphæðir eru
ansi háar fyrir fólk með lágar tekjur þar sem út-
gjöldin bætast við annan heilbrigðiskostnað þess.
Sá kostnaður hefur hækkað umtalsvert undan-
farin fimm ár en hlutfallslega mest hjá öryrkjum,
ellilífeyrisþegum og atvinnulausum eins og fram
kom ífréttum RÚV1 22. janúar síðastliðinn sam-
kvæmt upplýsingum frá SÍ. Dæmi er um allt að
75% hækkun á einstökum útgjaldaliðum. Þá
hafa breytingar á reglugerðum leitt til aukinnar
greiðsluþátttöku lífeyrisþega í heilbrigðiskerfinu.
Að auki hafa ýmis tekjuviðmið ekki fylgt hækkun
bóta sem hefur leitt til þess að margir lífeyris-
þegar geta ekki fengið uppbót vegna mikils lyfja-
og lækniskostnaðar þrátt fyrir að vera með lágar
tekjur.
Hvernig á fólk að standa straum af útgjöldum í
fyrsta þrepi?
Innan ÖBÍ hefur fólk miklar áhyggjur af því
hvernig sjúklingar munu fjármagna fyrstu lyfja-
kaup í nýju kerfi. ÖBÍ hefur ítrekað bent á að úr-
ræði og leiðir vantar til að mæta einstaklingum í
erfiðleikum með að greiða fyrir nauðsynleg lyf og
þá sérstaklega í 1. þrepi þegar fólk greiðir lyf sín
að fullu. Þegar lögin um greiðsluþátttöku í iyfja-
kostnaði voru í smíðum benti ríkisvaldið á fjórar
leiðir til að bregðast við greiðsluerfiðleikum fólks
í nýju kerfi. ÖBÍ teiur þessar leiðir óraunhæfar eins
og staðan er í dag.
Eins má vænta þess að að afslættir af niður-
greiddum lyfjum til viðskiptavina munu minnka
verulega og jafnvel falla niður á ákveðnum lyfjum.
Endurgreiðsla á kostnaði - eftirá
Ein leið sem tilgreind var í lagafrumvarpinu
byggir á reglugerð um endurgreiðslu á umtals-
verðum kostnaði við læknishjálp, lyf og þjálfun
(nr. 355/2005), sem felur í sér að sjúklingar með
lágar tekjur leggi út fyrir kostnaði en geta fengið
hluta kostnaðarins endurgreiddan hjáTrygginga-
stofnun ríkisins að uppfylltum ákveðnum skil-
yrðum.Tekinn er saman kostnaður fyrir hvern
ársfjórðung og borinn saman við tekjur m.v. skatt-
21
www.ruv.is/frett/komugjold-til-laekna-haekka-allt-ad-75
TÍMARIT ÖBÍ