Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.04.2013, Side 23
Sitja allir við
sama
borð?
Öryrkjabandalag íslands (Ö6Í) boðaði til opins fundar þann 20. febrúar síðastliðinn með
fulltrúum þeirra framboða sem bjóða fram til Alþingis 2013. Rætt var hvernig fram-
bjóðendur sjá fyrir sér framtíð mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna (SÞ) um rétt-
indi fatlaðs fólks á íslandi. Fundurinn var vel sóttur og almennt voru f ulltrúar framboðanna
sammála um að nauðsynlegt væri að fullgilda eða lögfesta sáttmálann sem fyrst.
Á fundinn mættu fulltrúar 11 framboða, fulltrúar
aðildarfélaga ÖBÍ, fatlað fólk og öryrkjar, fólk
sem vinnur að málefnum fatlaðs fólks, fjölmiðlar
og fleiri. Rannveig Traustadóttir, prófessor í fötl-
unarfræðum við HÍ, hóf fundinn á því að segja
frá sögu, samhengi og hugmyndafræði að baki
sáttmála SÞ um réttindi fatlaðs fólks. Þá hélt
Bryndís Flóvenz, dósent við lagadeild Hí, erindi
um skyldur íslenska ríkisins samkvæmt sáttmál-
anum. Fulltrúar stjórnmálaflokkanna 11 tjáðu sig
því næst um afstöðu sinna flokka um framtíð sátt-
málans.
Allir voru fulltrúarnir sammála um að innleiða
þurfi sáttmálann sem fyrst í íslenskt samfélag en
skiptar skoðanir voru á því hvort farsælla væri að
gera það með fullgildingu eða lögfestingu. Full-
trúarnir lýstu yfir ánægju með erindi þeirra Rann-
veigar og Brynhildar og almennt voru menn sam-
mála um að skoða yrði vel hvora leiðina væri betra
að fara sem allra fyrst svo ísland sitji ekki eftir sem
eitt af fáum löndum í heiminum sem ekki er búið
að innleiða sáttmálann.
Að lokum voru pallborðsumræður þar sem Guð-
mundur Magnússon, formaður ÖBÍ, Gerður A.
Árnadóttir, formaður Landssamtakanna Þroska-
hjálpar og Margrét Steinarsdóttir, framkvæmda-
stjóri Mannréttindaskrifstofu íslands lögðu
spurningar fyrir fulltrúar stjórnmálaflokkanna.
Fundarstjóri var Ragnar Gunnar Þórhallsson.
Nokkrar spurningar voru lagðar fyrir framboðin
og þau beðin um að svara þeim á fundinum en
einnig skriflega til Öryrkjabandalagsins. Átta af
framboðunum svöruðu spurningunum skriflega.
Svör þeirra við einni af spurningunum eru hér á
eftir.
Þrjú framboð sendu ekki inn svör við spurning-
unum en þau eru Framsóknarflokkurinn, Sjálf-
stæðisflokkurinn og Vinstri grænir.