Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2020, Blaðsíða 33
Á ferð um landið HVERAGERÐI
Hveragerði er dásamlegur staður
og tilvalið fyrir þá sem vilja
komast út fyrir höfuðborgina og
njóta smábæjarstemmingarinnar
án þess að keyra langt að kíkja
þangað. Aðalgatan, Breiðamörk,
er skemmtileg gata og þar er að
finna ýmsa áhugaverða veitinga-
staði og kaffihús.
HEILSUSTOFNUNIN HVERAGERÐI
Heilsustofnunin er dásamlegur staður sem allir verða að prófa að heim-
sækja. Hádegismaturinn þar er stórkostlegur og þá sérstaklega á sunnu-
dögum. Salatbarinn er sá besti hérlendis og hnetusósan algjört dúndur.
Hver sem er getur komið og keypt sér mat í matstofunni. Hægt er að sjá
matseðilinn á hnlf.is. Oft er hægt að kaupa fiskibollur og annað hollmeti
til að taka með heim. Einnig er sundlaug á staðnum og hægt að bóka sig í
leirbað sem er einstaklega afslappandi og gott fyrir húðina. Lokað er fyrir
almenning um sinn, bæði í Matstofu Jónasar og í Baðhúsið en hægt er að
fylgjast með á heilsustofnun.is hvenær aftur verður opnað fyrir almenning.
MATKRÁIN
Smurbrauðsstaðurinn Matkráin er staðsettur við aðal-
götuna í Hveragerði. Eigendur staðarins eru engir aðrir
en Jakob Jakobsson og eiginmaður hans Guðmundur
Guðjónsson sem stofnuðu og ráku lengi Jómfrúna.
Staðurinn er ákaflega vinsæll en nú þegar er gjarnan
röð út á götu um helgar. Matkráin er smekklega inn-
réttuð að skandinavískum hætti og matseðillinn virki-
lega girnilegur auk þess sem þar fæst gott úrval af
kökum. Kjúklingasalatssmurbrauðið og djúpsteikti
camembertinn þykja áberandi góðir réttir, að ógleymdri
purusteikinni.
ÖLVERK
Pitsustaðurinn Ölverk hefur verið ákaflega vinsæll
allt frá því að hann var opnaður fyrir þremur árum.
Staðurinn er ákaflega frumlegur og hefur meðal ann-
ars boðið upp á kívípitsu og pretsel með bjórídýfu. Á
Ölverki er að finna sérbruggaðan bjór en misjafnt er
hvaða tegundir eru í boði hverju sinni. Hægt er að bóka
skoðunar- og smakkferð um brugghúsið og jafnvel
enda á pitsuveislu fyrir litlar 5.200 krónur. Lágmarks-
fjöldi til að bóka slíka smakkferð er 10 manns.
REYKJADALUR OG DALAKAFFI
Rétt ofan við Hveragerði er Reykjadalur. Fallegur dalur
með náttúrulaug og er það vel þess virði að leggja á
sig göngu til þess að smella sér ofan í heita laugina
og njóta guðsgrænnar náttúrunnar. Best er að keyra
inn að Dalakaffi og leggja þar og ganga upp Rjúpna-
brekkur og áfram upp í Reykjadalinn. Tilvalið er að
stoppa svo á kaffihúsinu í bakaleiðinni og njóta góðra
veitinga.
RÓSAKAFFI
Kaffihús, ísbúð og
blómabúð eru í
g r ó ð ur hús i v i ð
Breiðamörk. Þar má
gjarnan finna falleg
og framandi potta-
blóm á góðu verði. Á
Rósakaffi fæst einnig
sykurlaus ís úr vél.
FLÓRA
Gróðrarstöðin Flóra, sem hét áður Garðyrkjustöð Ingibjargar, er ákaflega
ánægjulegur viðkomustaður. Þar má kaupa bæði sumarblóm, stofublóm og
fjölærar plöntur auk trjáa. Verðið er yfirleitt nokkuð lægra en í verslunum í
höfuðborginni og starfsfólkið er einstaklega liðlegt.
HÓTEL ÖRK
Hótel Örk opnaði nýja 78 herbergja
álmu árið 2018. Hótelið hefur gengist
undir afbragðs yfirhalningu og býður
meðal annars upp á pakkaferðir með
fjórhjólaferð innifalinni. Einnig er sund-
laug á hótelinu og veitingastaðurinn Hver.
GRÆNAMÖRK
Gróðrarstöðin Grænamörk selur ekki beint til gesta
og gangandi en hefur sett upp lítinn bás fyrir utan
gróðurhúsið þar sem viðskiptavinir geta nálgast
sumarblóm og frægu jarðarberjaplönturnar þeirra og
nýtínd jarðarber. Einnig hafa fengist þar svört tóbaks-
horn sem eru engu lík!
MYND/ERNIR
M
YN
D/F
ACEBOOK HÓTEL ÖRK
MYND/FACEBOOK RÓ
S
A
K
A
F
F
I
MYND/FACEBOOK HEILSTUSTOFNUNINN HVERAGERÐI
MYND/FACEBOOK FLÓRA GARÐYRKJUSTÖÐ
MYND/FACEBOOK ÖLVERK
MYND/TM
MYND/EYÞÓR
MYND/FACEBOOK MATKRÁIN
FÓKUS 33DV 5. JÚNÍ 2020