Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2020, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2020, Blaðsíða 32
Við hvetjum lesendur til að senda spurningar og vangaveltur sínar til Kristínar í tölvupósti á: hjonabandssaela@gmail.com. Spurningunum verður svo svarað hér í Fjölskylduhorninu, að sjálf- sögðu nafnlaust og í fullum trúnaði. REYNI ALLTAF AÐ GERA ALLT 100% H æ, Kristín. Ég er alltaf að reyna að gera allt 100%, en mér líður eins og ég nái ekki að gera neitt vel. Mér finnst ég vera með þúsund bolta á lofti, vinnuna, börnin, hjónaband- ið, vinkonur, ræktina, stór- fjölskylduna og háskólanám í fjarnámi. Svo þurfa barna- herbergin að vera fullkomin, barnaafmælin flott og heim- ilið almennt í röð og reglu. Stundum er ég örmagna þegar ég loksins leggst á koddann og þá bitnar það á hjónalífinu. Þegar ég lít í kringum mig þá virðast allir á sama stað, en mig langar ekki til þess að vera á þessu hamstrahjóli. Áttu einhver ráð til þess að lifa og njóta, en samt þannig að þessir helstu póstar séu í lagi? Sæl, ofurkona Það væri svo auðvelt að segja þér að hætta að reyna að vera fullkomin og slaka bara á, en það er hægara sagt en gert. Börnin þurfa samt að læra heima, þau eiga afmæli einu sinni á ári, hreyfing er góð fyrir sál og líkama og tengsl við maka, stórfjölskyldu og vinkonur auka hamingju. Og hvað, á ég svo bara að segja þér að slaka á og hætta að vera ofurkona? Það er mótsögn sem bitnar veru­ lega á ofurkonum. Þær eru margar hverjar farnar að bera skömm í ofanálag yfir að standa sig svona vel og vera uppfullar af streitu. Mikið ertu að standa þig vel Heldur væri hjálplegt að hrósa þér, vinkona. Mikið ertu að standa þig vel, þetta er hörkupúl og því miður hefur engin enn fundið leyni­ trix sem leysir vandann þinn. Ef svo væri, væri sú hin sama moldrík. En ég get tínt til nokkur atriði sem vonandi geta hægt aðeins á hamstra­ hjólinu og gefið þér aukið svigrúm til þess að anda, vera til og knúsa makann þinn. Í fyrsta lagi er auðvelt að setja fókusinn á aðstæður sín­ ar og reyna að breyta þeim, í staðinn fyrir að horfa á við­ horf sitt gagnvart aðstæðun­ um. Þú nefnir barnaafmælin og háskólanámið og eru það vissulega krefjandi breytur, en fyrst þú stendur frammi fyrir þeim á annað borð þá gæti verið streitulosandi að skoða hvers vegna afmælin þurfa að vera flott. Hver dæmir um það hvort þau séu nægilega flott? Hversu háar einkunnir þarftu að fá? Get­ urðu dreift náminu á lengri tíma? Þetta eru viðmið sem þú stýrir sjálf og auðveldara er að stýra þeim heldur en að hafa áhrif á námsvísi Há­ skólans eða skoðanir sam­ félagsmiðlastjarna á barna­ afmælum. Æfðu þig í að gera mistök Það sem ég er að reyna að segja er að þú getur dregið úr streitu og vanlíðan með því að leiðrétta hugsana­ skekkjur, til dæmis breyta hugsuninni „barnaafmælið verður að vera flott“ í „það verður barnaafmæli og það verður eins flott og ég ræð við þá stundina“. Ef það er fullkomnunar­ árátta sem þú ert að mestu að glíma við, þá gætirðu þurft að æfa þig í að gera mistök. Það er gert með því að mæta einni mínútu of seint, sleppa því að þurrka blett úr bux­ unum þínum, eða kaupa köku í staðinn fyrir að baka hana óaðfinnanlega sjálf. Og nú er ég aldeilis ekki að halda því fram að aðkeypt kaka sé mistök, síður en svo. Ég er einungis að benda þér á að þú þarft að horfast í augu við ótta þinn, hugsa hugsunina til enda og æfa þig í því sem þú vilt helst ekki þurfa að díla við. Ef það er aðkeypt kaka, nú þá er númerið hjá Myll­ unni 510­2300. Íhugaðu að biðja um aðstoð Nú þekki ég þig ekki en mér finnst spurningin hljóma eins og þú eigir ekki auðvelt með að biðja um aðstoð, eða að tengslanet þitt bjóði ekki upp á slíkt. Sennilega hefur þú leitt hugann að því sjálf, en er einhver möguleiki að þú getir hagrætt verkefnum með aðstoð? Hvað hafið þið hjónin rætt í tengslum við þetta? Getið þið skipt álag­ inu á heimilinu meira niður? Býður fjárhagurinn upp á þrifþjónustu? Kann makinn þinn að baka? Með öðrum orðum: Að útdeila öllum þeim verkefnum sem þú mögulega getur. Stundum er hægt að leysa vanda af þínu tagi með Excel, skipulagi og forgangsröðun. Það er samt eitthvað sem segir mér að þú sért búin að hámarka slíka nýtingu, en ef ekki þá gæti verið ráð að skoða hvort hægt sé að nýta slíkt til hagræðingar. Sum pör gera lista yfir allt það sem liggur fyrir, það þarf að setja í þvottavél, skutla og sækja, mæta á foreldra­ fund, bjóða tengdó í mat, ryksuga og skúra. Öll verk­ efnin eru sett upp í lista og svo er þeim skipt jafnt á milli og öllu smellt inn í Calendar. Svona skipulag hefur í alvör­ unni bjargað mörgum hjóna­ böndum, einfaldað mörgum ofurkonum lífið og dregið úr streitu á heimilum. Þetta verður ekki alltaf svona Ofurkonan er tímabundið ástand. Það stendur yfir á meðan börnin eru lítil og hús­ næðislánin eru í botni. Þó það lagi ekki pressuna í dag, þá finnst sumum gott að hugsa þetta sem tímabil í lífi sínu, erfitt en gefandi tímabil. Eft­ ir því sem börnin verða eldri og sjálfstæðari, háskólanám­ ið klárast og barnaherbergj­ unum fækkar á heimilinu, þá hægist á. Þetta verður ekki alltaf svona og þá munt þú líta til baka og vonandi hugsa: „Mikið var ég dugleg, hvernig fór ég að þessu?“ n Svona skipulag hefur í alvörunni bjargað mörgum hjónaböndum. MYND/GETTY 32 FÓKUS 5. JÚNÍ 2020 DV Fjölskylduhornið Sérfræðingur svarar Kristín Tómasdóttir, hjónabandsráðgjafi með meiru, hefur gengið til liðs við DV og mun svara spurningum lesenda um málefni er varða fjölskylduna, börnin og ástina í nýju Fjölskylduhorni. Að þessu sinni svarar Kristín lesanda sem er að bugast undan kröfum samtímans um fullkomnum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.