Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2020, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2020, Blaðsíða 20
Í tíð ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur og Stein-gríms J. Sigfússonar árin 2009–2013, urðu mestu skatta- hækkanir í manna minnum, sem drógu úr framkvæmda- vilja og frumkvæði fólks og fyrirtækja, enda finnast þess engin dæmi að ríkjum hafi tekist að skattleggja sig út úr kreppum. Þrátt fyrir það hversu illa tókst til í efnahagsmálum í tíð þeirrar stjórnar, eru ýms- ir þingmenn enn við sama heygarðshornið. Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, lagði meðal annars til í þætti Heimis Más Péturssonar, Víglínunni á Stöð 2, 24. maí síðastliðinn að svo- kallaður auðlegðarskattur yrði tekinn upp á nýjan leik. Skerðing mannréttinda Flest nágrannaríkjanna hafa fyrir löngu horfið frá eignasköttum þar sem þeir taka venjulega ekki mið af greiðslugetu eða afkomu. Þau fáu ríki Vesturlanda sem enn búa við skatta af þessu tagi takmarka þá jafnan við heildartekjur og skattbyrði viðkomandi. Engir slíkir varnaglar voru slegnir hér þegar skatturinn var lagður á í tíð ríkisstjórnar Jóhönnu og Steingríms og þess voru mörg dæmi að fólk með lágar tekjur yrði að selja íbúðir sín- ar til að eiga fyrir skattinum, ÓMÖGULEGT AÐ SKATT- LEGGJA SIG ÚT ÚR KREPPU Á ÞINGPÖLLUM Björn Jón Bragason eyjan@eyjan.is Í tíð ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur voru fjölmargir skattar hækkaðir. MYND/VILHELM fasteignir sem það hafði unnið fyrir hörðum höndum alla sína starfsævi. Lítið fór fyrir stuðnings- mönnum almennra mann- réttinda í umræðu um auð- legðarskattinn, en eðlilegt er að spyrja hvar mörk skatt- heimtu og friðhelgi eignar- réttar liggi. Í fyrirhuguðum stjórnarskrárbreytingum er brýnt að tryggja betri vernd eignarréttar með því að tak- marka skattlagningarvald. Erfðafjárskattur Tilefni ummæla Rósu Bjark- ar um upptöku auðlegðar- skatts voru fréttir um fyrir- framgreiddan arf nokkurra erfingja sjávarútvegsfyrir- tækisins Samherja. Í kjölfarið hafa ýmsir talað fyrir hækkun erfðafjárskatts, en í Banda- ríkjunum þar sem erfðafjár- skattar eru háir, hafa ríkustu fjölskyldurnar ýmis ráð til að komast hjá skattgreiðslum, til að mynda með því að færa eignir í félög. Helgi Tómasson, prófessor í hagrannsóknum og tölfræði, var gestur minn í fréttaþætt- inum 21 á Hringbraut í fyrra þar sem erfðafjárskatt bar á góma. Þar benti hann á að Svíþjóð hefði aflagt erfðafjár- skatt einfaldlega vegna þess að skatturinn kemur illa við lágtekjufólk sem hefur lítil færi á að skipuleggja sig. Það yrði að selja eignir í miklum flýti til að eiga fyrir skatt- inum. Norðmenn hafa sömu- leiðis afnumið skattinn, en í Danmörku er hægt að fresta greiðslu erfðafjárskatts, til dæmis ef erfingjar telja tím- ann óhagstæðan til að selja eignir. Helgi Tómasson komst svo að orði í viðtalinu: „Meðan HEIMILD: HAGSTOFA ESB OG ÚTREIKNINGAR SAMTAKA ATVINNULÍFSINS. HÉR ER LEIÐRÉTT FYRIR SKATTHEIMTU VEGNA TRYGGINGAGJALDS TIL AÐ GERA RÍKI MEÐ SJÓÐSÖFNUNARKERFI OG GEGNUMSTREYMISKERFI SAMANBURÐARHÆF. GÖGN FYRIR DANMÖRKU BJÓÐA EKKI UPP Á SLÍKA LEIÐRÉTTINGU OG ER ÞVÍ SLEPPT HÉR. Skattlagning í Vestur-Evrópu Skatttekjur hins opinbera á árinu 2018. % af VLF, leiðrétt fyrir greiðslu tryggingagjalds. 50% 40% 30% 20% 10% 0% Sv íþ jó ð Ís la nd Be lg ía Fi nn la nd Fr ak kl an d N or eg ur Lú xe m bo rg A us tu rr ík i Br et la nd Ho lla nd Þý sk al an d Sv is s Ír la nd 41 % 33 % 32 % 31 % 30 % 30 % 29 % 28 % 27 % 25 % 24 % 21 % 19 % Skattkerfisbreytingar Fjöldi skattahækkana og -lækkana. Lækkanir sýndar með rauðum lit. HEIMILD: VIÐSKIPTARÁÐ ÍSLANDS 20 08 20 09 20 10 20 11 20 12 20 13 20 14 20 15 20 16 20 17 20 18 13 8 5 7 2 3 4 3 18 5 8 9 3 19 29 28 21 16 19 8 14 19 19 26 31 31 25 19 37 13 22 28 22 uppgjör var þvingað innan árs, var skapað tækifæri fyrir hrægammafyrirtæki sem eltu uppi lágtekjufólk sem hafði erft eitthvað, og vissu að það væri þvingað til að selja.“ Miklar skattahækkanir Fjölmargir skattar hafa verið hækkaðir undanfarin ár, má þar nefna trygginga- gjald, tekjuskatt fyrirtækja, tekjuskatt einstaklinga, fjár- magnstekjuskatt, bankaskatt, sérstakan fjársýsluskatt, almennan fjársýsluskatt, veiðigjald, gistináttaskatt og kolefnisgjald. Sveitarfélögin hafa sömuleiðis flest fullnýtt heimildir sínar til álagningar útsvars og fasteignaskatta. Milli áranna 2012 og 2018 hækkuðu skatttekjur Reykja- víkurborgar um 48% umfram verðlag, en á sama tíma juk- ust skuldirnar um 63%, þrátt fyrir uppgang í þjóðfélaginu. Flækjustig skattheimtu hefur líka aukist síðustu árin. Samkvæmt úttekt Viðskipta- ráðs voru gerðar 267 skatta- breytingar milli áranna 2007 og 2018. Um 200 þeirra voru til hækkunar en aðeins 67 til lækkunar. Helgi Tómasson sagði í áðurnefndu viðtali að fyrirkomulag skattheimtu ætti ekki að snúast um vinstri- eða hægripólitík og gagnrýndi þar sérstaklega innheimtu fasteignagjalda: „Þetta er bara spurning um skilvirka skattastefnu. Best er að hafa skattana sem skilvirkasta, svo þeir komi inn í ríkissjóð með sem ódýrustum hætti á sama hátt og við viljum keyra um á sparneytnum bíl: Við viljum ekki eyða óþarfa bensíni í aksturinn og það á ekki að þurfa að eyða of miklu um- stangi í skattheimtuna.“ Ráðdeild ekki í tísku? Þrátt fyrir stóraukna skatt- píningu hefur afgangur af opin berum rekstri verið frem- ur takmarkaður. Lítið sem ekkert fer fyrir hagræðingar- tillögum í stjórnmálaumræð- unni. Það er eins og ráðdeild og sparnaður séu ekki lengur í tísku. Þvert á móti er helsta Óvíða í heiminum eru skattar jafnháir og hér á landi. Mikillar hagræðingar er þörf í opinberum rekstri. Ráðdeild er ekki í tísku. gagnrýni sem fram kemur á fjárlög hverju sinni, að ekki sé nægilega miklum fjármunum veitt í hinn eða þennan mála- flokkinn. Og þó svo að aldr- ei hafi jafnmiklir fjármunir verið til í þjóðfélaginu, hefur aldrei jafnhástöfum verið kvartað undan skorti á pen- ingum. Við blasir að hið opin- bera hefur fyrir löngu færst miklu meira í fang en því er nokkurn tímann fært að sinna. Nauðsynlegt að lækka skatta Í tíð ríkisstjórnar Jóhönnu Sig- urðardóttur voru framkvæmd dýrkeypt hagstjórnarmistök. Þau fólust í stóraukinni skatt- lagningu á sama tíma og hag- kerfið gekk í gegnum dýpstu kreppu í áratugi. Samdráttar- skeiðið var þannig framlengt að ófyrirsynju. Þetta má ekki endurtaka sig. Engin leið er að viðhalda og auka velmegun hér á landi nema atvinnulíf fái að dafna. Nauðsynleg forsenda þess er bætt rekstrarum- hverfi fólks og fyrirtækja í formi lægri skatta og einfald- ara regluverks. Á sama tíma verður ekki hjá því komist að hagræða í rekstri ríkis og sveitarfélaga. n 20 EYJAN 5. JÚNÍ 2020 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.