Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2020, Síða 20
Í tíð ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur og Stein-gríms J. Sigfússonar árin
2009–2013, urðu mestu skatta-
hækkanir í manna minnum,
sem drógu úr framkvæmda-
vilja og frumkvæði fólks og
fyrirtækja, enda finnast þess
engin dæmi að ríkjum hafi
tekist að skattleggja sig út úr
kreppum.
Þrátt fyrir það hversu illa
tókst til í efnahagsmálum í
tíð þeirrar stjórnar, eru ýms-
ir þingmenn enn við sama
heygarðshornið. Rósa Björk
Brynjólfsdóttir, þingmaður
Vinstri grænna, lagði meðal
annars til í þætti Heimis Más
Péturssonar, Víglínunni á Stöð
2, 24. maí síðastliðinn að svo-
kallaður auðlegðarskattur
yrði tekinn upp á nýjan leik.
Skerðing mannréttinda
Flest nágrannaríkjanna
hafa fyrir löngu horfið frá
eignasköttum þar sem þeir
taka venjulega ekki mið af
greiðslugetu eða afkomu.
Þau fáu ríki Vesturlanda sem
enn búa við skatta af þessu
tagi takmarka þá jafnan við
heildartekjur og skattbyrði
viðkomandi. Engir slíkir
varnaglar voru slegnir hér
þegar skatturinn var lagður
á í tíð ríkisstjórnar Jóhönnu
og Steingríms og þess voru
mörg dæmi að fólk með lágar
tekjur yrði að selja íbúðir sín-
ar til að eiga fyrir skattinum,
ÓMÖGULEGT
AÐ SKATT-
LEGGJA
SIG ÚT ÚR
KREPPU
Á ÞINGPÖLLUM
Björn Jón
Bragason
eyjan@eyjan.is
Í tíð ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur voru fjölmargir skattar hækkaðir. MYND/VILHELM
fasteignir sem það hafði unnið
fyrir hörðum höndum alla
sína starfsævi.
Lítið fór fyrir stuðnings-
mönnum almennra mann-
réttinda í umræðu um auð-
legðarskattinn, en eðlilegt er
að spyrja hvar mörk skatt-
heimtu og friðhelgi eignar-
réttar liggi. Í fyrirhuguðum
stjórnarskrárbreytingum er
brýnt að tryggja betri vernd
eignarréttar með því að tak-
marka skattlagningarvald.
Erfðafjárskattur
Tilefni ummæla Rósu Bjark-
ar um upptöku auðlegðar-
skatts voru fréttir um fyrir-
framgreiddan arf nokkurra
erfingja sjávarútvegsfyrir-
tækisins Samherja. Í kjölfarið
hafa ýmsir talað fyrir hækkun
erfðafjárskatts, en í Banda-
ríkjunum þar sem erfðafjár-
skattar eru háir, hafa ríkustu
fjölskyldurnar ýmis ráð til að
komast hjá skattgreiðslum,
til að mynda með því að færa
eignir í félög.
Helgi Tómasson, prófessor
í hagrannsóknum og tölfræði,
var gestur minn í fréttaþætt-
inum 21 á Hringbraut í fyrra
þar sem erfðafjárskatt bar
á góma. Þar benti hann á að
Svíþjóð hefði aflagt erfðafjár-
skatt einfaldlega vegna þess
að skatturinn kemur illa við
lágtekjufólk sem hefur lítil
færi á að skipuleggja sig. Það
yrði að selja eignir í miklum
flýti til að eiga fyrir skatt-
inum. Norðmenn hafa sömu-
leiðis afnumið skattinn, en í
Danmörku er hægt að fresta
greiðslu erfðafjárskatts, til
dæmis ef erfingjar telja tím-
ann óhagstæðan til að selja
eignir. Helgi Tómasson komst
svo að orði í viðtalinu: „Meðan
HEIMILD: HAGSTOFA ESB OG ÚTREIKNINGAR SAMTAKA ATVINNULÍFSINS. HÉR ER
LEIÐRÉTT FYRIR SKATTHEIMTU VEGNA TRYGGINGAGJALDS TIL AÐ GERA RÍKI MEÐ
SJÓÐSÖFNUNARKERFI OG GEGNUMSTREYMISKERFI SAMANBURÐARHÆF. GÖGN
FYRIR DANMÖRKU BJÓÐA EKKI UPP Á SLÍKA LEIÐRÉTTINGU OG ER ÞVÍ SLEPPT HÉR.
Skattlagning í Vestur-Evrópu
Skatttekjur hins opinbera á árinu 2018. % af VLF,
leiðrétt fyrir greiðslu tryggingagjalds.
50%
40%
30%
20%
10%
0%
Sv
íþ
jó
ð
Ís
la
nd
Be
lg
ía
Fi
nn
la
nd
Fr
ak
kl
an
d
N
or
eg
ur
Lú
xe
m
bo
rg
A
us
tu
rr
ík
i
Br
et
la
nd
Ho
lla
nd
Þý
sk
al
an
d
Sv
is
s
Ír
la
nd
41
%
33
%
32
%
31
%
30
%
30
%
29
%
28
%
27
%
25
%
24
%
21
%
19
%
Skattkerfisbreytingar
Fjöldi skattahækkana og -lækkana. Lækkanir sýndar með rauðum lit.
HEIMILD: VIÐSKIPTARÁÐ ÍSLANDS
20
08
20
09
20
10
20
11
20
12
20
13
20
14
20
15
20
16
20
17
20
18
13
8
5 7 2 3 4 3
18
5
8 9
3
19
29 28
21
16
19
8
14
19
19
26
31 31
25
19
37
13
22
28
22
uppgjör var þvingað innan
árs, var skapað tækifæri fyrir
hrægammafyrirtæki sem eltu
uppi lágtekjufólk sem hafði
erft eitthvað, og vissu að það
væri þvingað til að selja.“
Miklar skattahækkanir
Fjölmargir skattar hafa
verið hækkaðir undanfarin
ár, má þar nefna trygginga-
gjald, tekjuskatt fyrirtækja,
tekjuskatt einstaklinga, fjár-
magnstekjuskatt, bankaskatt,
sérstakan fjársýsluskatt,
almennan fjársýsluskatt,
veiðigjald, gistináttaskatt og
kolefnisgjald. Sveitarfélögin
hafa sömuleiðis flest fullnýtt
heimildir sínar til álagningar
útsvars og fasteignaskatta.
Milli áranna 2012 og 2018
hækkuðu skatttekjur Reykja-
víkurborgar um 48% umfram
verðlag, en á sama tíma juk-
ust skuldirnar um 63%, þrátt
fyrir uppgang í þjóðfélaginu.
Flækjustig skattheimtu
hefur líka aukist síðustu árin.
Samkvæmt úttekt Viðskipta-
ráðs voru gerðar 267 skatta-
breytingar milli áranna 2007
og 2018. Um 200 þeirra voru
til hækkunar en aðeins 67 til
lækkunar. Helgi Tómasson
sagði í áðurnefndu viðtali að
fyrirkomulag skattheimtu
ætti ekki að snúast um vinstri-
eða hægripólitík og gagnrýndi
þar sérstaklega innheimtu
fasteignagjalda: „Þetta er
bara spurning um skilvirka
skattastefnu. Best er að hafa
skattana sem skilvirkasta, svo
þeir komi inn í ríkissjóð með
sem ódýrustum hætti á sama
hátt og við viljum keyra um á
sparneytnum bíl: Við viljum
ekki eyða óþarfa bensíni í
aksturinn og það á ekki að
þurfa að eyða of miklu um-
stangi í skattheimtuna.“
Ráðdeild ekki í tísku?
Þrátt fyrir stóraukna skatt-
píningu hefur afgangur af
opin berum rekstri verið frem-
ur takmarkaður. Lítið sem
ekkert fer fyrir hagræðingar-
tillögum í stjórnmálaumræð-
unni. Það er eins og ráðdeild
og sparnaður séu ekki lengur
í tísku. Þvert á móti er helsta
Óvíða í heiminum eru skattar
jafnháir og hér á landi. Mikillar
hagræðingar er þörf í opinberum
rekstri. Ráðdeild er ekki í tísku.
gagnrýni sem fram kemur á
fjárlög hverju sinni, að ekki sé
nægilega miklum fjármunum
veitt í hinn eða þennan mála-
flokkinn. Og þó svo að aldr-
ei hafi jafnmiklir fjármunir
verið til í þjóðfélaginu, hefur
aldrei jafnhástöfum verið
kvartað undan skorti á pen-
ingum. Við blasir að hið opin-
bera hefur fyrir löngu færst
miklu meira í fang en því er
nokkurn tímann fært að sinna.
Nauðsynlegt að
lækka skatta
Í tíð ríkisstjórnar Jóhönnu Sig-
urðardóttur voru framkvæmd
dýrkeypt hagstjórnarmistök.
Þau fólust í stóraukinni skatt-
lagningu á sama tíma og hag-
kerfið gekk í gegnum dýpstu
kreppu í áratugi. Samdráttar-
skeiðið var þannig framlengt
að ófyrirsynju. Þetta má ekki
endurtaka sig. Engin leið er
að viðhalda og auka velmegun
hér á landi nema atvinnulíf fái
að dafna. Nauðsynleg forsenda
þess er bætt rekstrarum-
hverfi fólks og fyrirtækja í
formi lægri skatta og einfald-
ara regluverks. Á sama tíma
verður ekki hjá því komist
að hagræða í rekstri ríkis og
sveitarfélaga. n
20 EYJAN 5. JÚNÍ 2020 DV