Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2020, Page 32
Við hvetjum lesendur til að senda
spurningar og vangaveltur sínar til
Kristínar í tölvupósti á:
hjonabandssaela@gmail.com.
Spurningunum verður svo svarað
hér í Fjölskylduhorninu, að sjálf-
sögðu nafnlaust og í fullum trúnaði.
REYNI ALLTAF AÐ GERA ALLT 100%
H æ, Kristín. Ég er alltaf að reyna að gera allt 100%, en mér líður
eins og ég nái ekki að gera
neitt vel. Mér finnst ég vera
með þúsund bolta á lofti,
vinnuna, börnin, hjónaband-
ið, vinkonur, ræktina, stór-
fjölskylduna og háskólanám
í fjarnámi. Svo þurfa barna-
herbergin að vera fullkomin,
barnaafmælin flott og heim-
ilið almennt í röð og reglu.
Stundum er ég örmagna
þegar ég loksins leggst á
koddann og þá bitnar það
á hjónalífinu. Þegar ég lít í
kringum mig þá virðast allir
á sama stað, en mig langar
ekki til þess að vera á þessu
hamstrahjóli. Áttu einhver
ráð til þess að lifa og njóta,
en samt þannig að þessir
helstu póstar séu í lagi?
Sæl, ofurkona
Það væri svo auðvelt að segja
þér að hætta að reyna að vera
fullkomin og slaka bara á, en
það er hægara sagt en gert.
Börnin þurfa samt að læra
heima, þau eiga afmæli einu
sinni á ári, hreyfing er góð
fyrir sál og líkama og tengsl
við maka, stórfjölskyldu og
vinkonur auka hamingju.
Og hvað, á ég svo bara að
segja þér að slaka á og hætta
að vera ofurkona? Það er
mótsögn sem bitnar veru
lega á ofurkonum. Þær eru
margar hverjar farnar að
bera skömm í ofanálag yfir
að standa sig svona vel og
vera uppfullar af streitu.
Mikið ertu að
standa þig vel
Heldur væri hjálplegt að
hrósa þér, vinkona. Mikið
ertu að standa þig vel, þetta
er hörkupúl og því miður
hefur engin enn fundið leyni
trix sem leysir vandann þinn.
Ef svo væri, væri sú hin
sama moldrík. En ég get tínt
til nokkur atriði sem vonandi
geta hægt aðeins á hamstra
hjólinu og gefið þér aukið
svigrúm til þess að anda, vera
til og knúsa makann þinn.
Í fyrsta lagi er auðvelt að
setja fókusinn á aðstæður sín
ar og reyna að breyta þeim, í
staðinn fyrir að horfa á við
horf sitt gagnvart aðstæðun
um. Þú nefnir barnaafmælin
og háskólanámið og eru það
vissulega krefjandi breytur,
en fyrst þú stendur frammi
fyrir þeim á annað borð þá
gæti verið streitulosandi að
skoða hvers vegna afmælin
þurfa að vera flott. Hver
dæmir um það hvort þau séu
nægilega flott? Hversu háar
einkunnir þarftu að fá? Get
urðu dreift náminu á lengri
tíma? Þetta eru viðmið sem
þú stýrir sjálf og auðveldara
er að stýra þeim heldur en
að hafa áhrif á námsvísi Há
skólans eða skoðanir sam
félagsmiðlastjarna á barna
afmælum.
Æfðu þig í að gera mistök
Það sem ég er að reyna að
segja er að þú getur dregið
úr streitu og vanlíðan með
því að leiðrétta hugsana
skekkjur, til dæmis breyta
hugsuninni „barnaafmælið
verður að vera flott“ í „það
verður barnaafmæli og það
verður eins flott og ég ræð
við þá stundina“.
Ef það er fullkomnunar
árátta sem þú ert að mestu að
glíma við, þá gætirðu þurft
að æfa þig í að gera mistök.
Það er gert með því að mæta
einni mínútu of seint, sleppa
því að þurrka blett úr bux
unum þínum, eða kaupa köku
í staðinn fyrir að baka hana
óaðfinnanlega sjálf. Og nú
er ég aldeilis ekki að halda
því fram að aðkeypt kaka sé
mistök, síður en svo. Ég er
einungis að benda þér á að
þú þarft að horfast í augu við
ótta þinn, hugsa hugsunina til
enda og æfa þig í því sem þú
vilt helst ekki þurfa að díla
við. Ef það er aðkeypt kaka,
nú þá er númerið hjá Myll
unni 5102300.
Íhugaðu að biðja
um aðstoð
Nú þekki ég þig ekki en mér
finnst spurningin hljóma
eins og þú eigir ekki auðvelt
með að biðja um aðstoð, eða
að tengslanet þitt bjóði ekki
upp á slíkt. Sennilega hefur
þú leitt hugann að því sjálf,
en er einhver möguleiki að
þú getir hagrætt verkefnum
með aðstoð? Hvað hafið þið
hjónin rætt í tengslum við
þetta? Getið þið skipt álag
inu á heimilinu meira niður?
Býður fjárhagurinn upp á
þrifþjónustu? Kann makinn
þinn að baka? Með öðrum
orðum: Að útdeila öllum þeim
verkefnum sem þú mögulega
getur.
Stundum er hægt að leysa
vanda af þínu tagi með Excel,
skipulagi og forgangsröðun.
Það er samt eitthvað sem
segir mér að þú sért búin að
hámarka slíka nýtingu, en
ef ekki þá gæti verið ráð að
skoða hvort hægt sé að nýta
slíkt til hagræðingar. Sum
pör gera lista yfir allt það
sem liggur fyrir, það þarf
að setja í þvottavél, skutla
og sækja, mæta á foreldra
fund, bjóða tengdó í mat,
ryksuga og skúra. Öll verk
efnin eru sett upp í lista og
svo er þeim skipt jafnt á milli
og öllu smellt inn í Calendar.
Svona skipulag hefur í alvör
unni bjargað mörgum hjóna
böndum, einfaldað mörgum
ofurkonum lífið og dregið úr
streitu á heimilum.
Þetta verður ekki
alltaf svona
Ofurkonan er tímabundið
ástand. Það stendur yfir á
meðan börnin eru lítil og hús
næðislánin eru í botni. Þó það
lagi ekki pressuna í dag, þá
finnst sumum gott að hugsa
þetta sem tímabil í lífi sínu,
erfitt en gefandi tímabil. Eft
ir því sem börnin verða eldri
og sjálfstæðari, háskólanám
ið klárast og barnaherbergj
unum fækkar á heimilinu,
þá hægist á. Þetta verður
ekki alltaf svona og þá munt
þú líta til baka og vonandi
hugsa: „Mikið var ég dugleg,
hvernig fór ég að þessu?“ n
Svona skipulag
hefur í alvörunni
bjargað mörgum
hjónaböndum.
MYND/GETTY
32 FÓKUS 5. JÚNÍ 2020 DV
Fjölskylduhornið
Sérfræðingur svarar
Kristín Tómasdóttir, hjónabandsráðgjafi með meiru,
hefur gengið til liðs við DV og mun svara spurningum
lesenda um málefni er varða fjölskylduna, börnin og
ástina í nýju Fjölskylduhorni. Að þessu sinni svarar
Kristín lesanda sem er að bugast undan kröfum
samtímans um fullkomnum.