Íþróttablaðið - 01.03.1944, Side 13
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
7
tími okkar varð ekki eins góður og við höfðum
náð heima, þar var liann betri, og hefði þá árang-
urinn orðið dágóður? Ég lel utanfarir ísl. íþrótta-
manna sjálfsagðar, vegna aukinnar reynslu og lær-
dóms, þótt ekki megi vænta stórsigra í fyrstu. Eftir
stríð verða flugsamgöngur vonandi komnar á milli
íslands og útlanda og mun þá hin langa sjóferð úr
sögunni. Með þvi að fara loftleiðis þurfa íþrótta-
menn vorir ekki að leggja af stað fyrr en 1—2 dög-
um fyrir keppni, og mun það tvímælalaust bæta
árangur þeirra að mun.
Aðstaða sundmanna fyrr og nú.
Til ársins 1934, fóru öll kappsund fraiii í sjó, og '
var oft kaldranalegt að þurfa að keppa i tveim og
jafnvel þrem sundum sama daginn. En það, sem
okkur sundmönnum þótti verst, var, hvað tímar
okkar voru lélegir, samanborið við þá tíma, sem
við náðum i sundlaugunum, en þar var ekki hægt
að halda löglegt sundmót, sökum þess hve liún var
stutt. Fyrsta sundmeistaramótið, sem fór fram í
volgu vatni, var haldið á Akureyri árið 1934. Það
var mjög áberandi hve árangurinn á því móti var
hetri en þegar keppt var í sjónum, enda hefir sund-
meistaramótið aldrei farið fram í sjó eftir það.
Næstu ár fóru þau fram að Álafossi, eða þar til
Sundhöll R.víkui- tók til starfa. Þá fyrst fór aðstaða
sundmanua vorra að verða eitthvað sambærileg við
það, sem hún er lijá öðrnm þjóðum.
Framfarir.
Eins og áður er sagt, hef ég sett 53 met, og fer
hér á eftir tafla, sem sýnir framfarir á einstökum
vegalengdum:
50 m. fr. aðferð, 0 met, fyrsta 1934 31.0 sek. í sjó,
síðasta 1939 á 27.6 sek. í laug.
100 m. fr. aðíerð, 12 met, fýrsta 1931 á 1,14,2 í
sjó, síðasta 1939 á 1,03,7 í laug.
200 m. fr. aðferð, 3 met, fyrsta 1932 á 2,36,2 í
laug, síðasta 1938 á 2,26,7 i iaug.
300 m. fr. aðíerð, 2 met, fyrra í maí 1939 á 4,04,8
i laug, síðara í júní 1939 á 3.51,9 í laug.
400 m. fr. aðíerð, 8 met, fyrsta 1931 á 6,39,4 i
sjó, síðasta 1938 á 5,10,7 í laug.
500 m. fr. aðferð, 4 met, fyrsta 1931 á 8,44,8 í
sjó, síðasta 1938 á 6,58,8 i laug.
800 m. fr. aðferð, 2 met, fyrra 1937 á 11,39,2 í
laug, síðara 1939 á 11,35,3 i laug.
ÍPRÓTTIR OG
FRÆÐSIA
Iþróttablaðið.
Iþróttablaðið hefur nú komið út í rúmt ár á vegum
liins nýja hlutafélags. Ef dæma má eftir hinum vaxandi
kaupendafjölda og ummæla sem blaðinu hefur horizt vtðs-
vegar að, nýtur það allmikilla vinsælda og hefur sýnt að
tilveruréttur þess er tryggður. Nú hefur bæði útgáfu-
stjórn og ritstjórn blaðsins séð fram á nauðsyn þess að
blaðið verði stækkað svo fljótt sem kostur er. En áður
en það getur orðið þarf kaupendum að fjölga til muna
svo að áskriftargjöldin fái borið uppi kostnaðinn. Þess-
vegna skorar blaðið á alla unnendur þess, að þeir geri
allt sem i þeirra valdi stendur til að afla því nýrra skil-
vísra kaupenda og senda nöfn þeirra og heimilisföng til
afgreiðslumanns íþróttablaðsins, Þórarins Magnússonar,
Haðarstíg 10.
Þá vitl íþróttablaðið brýna það ennþá einu sinni fyrir
íþróttaráðum einstakra byggðarlaga og kaupstaða að kjósa
sérstaka fréttaritara, sem sendi blaðinu helztu fréttir,
hver af sínu svæði.
A meðan þessu hefur ekki verið komið í lag, getur
íþróttablaðið heldur ekki uþpfyllt ])á sjálfsögðu skyldu
að birta fréttir úr öllum íþróttahéruðum landsins, og það
verður heldur ekki með neinum rétti ásakað um það, þó
að fréttaflutningur þess sé nokkuð af skornum skammti.
Að lokum vill íþróttablaðið beina þeirri ósk til lesenda
sinna og annarra unnenda, að þeir sendi þvi smápistla
eða lengri greinar um ýms mál er líkamsmennt varða.
Það yrði til þess að auka á fjölþættni blaðsins og gera
það skemmtilegra.
fíitstjórnin.
1000 m. fr. aðferÖ, 2 met, fyrra 1937 á 14,41,4 í
laug, síðara 1939 á 14, 39,8 í laug.
1500 m. fr. aðferð, 3 met, fyrsta 1934 á 23,10,0 í
laug, síðasta 1938 á 21. 30,2 í laug.
50 m. baksund, 1 met, 1938 á 35,0 sek.
100 m. baksund, 7 met, fyrsta 1930 á 1,40,3 í sjó,
síðasta 1939 á 1,16,2 í laug,
200 m. baksund, 2 met, fyrra 1935 á 3,03,8 I laug,
siðara 1939 á 2,55,7 í laug.
400 m. baksund, 1 met, 1939 á 6,21,2 í laug.
Ég vil að endingu heina þeirri hvatningu til is-
lenzkrar æsku, að hún leggi stund á íþróttir, því
að þær laka brátt hug hennar alian. íþróttir herða
menn og stæla og i þeim félagsskap verða þeir
fvrir mjög hollum áhrifum.