Íþróttablaðið - 01.03.1944, Page 18
12
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
ÆHh jj'Xa éfMöa
LCH\y
Fréttir frá Í.S.Í.
Samþykkt hefur verið að leggja kr.
500.00 í væntanlegan minningarsjóð
urn Pál heitinn Erlingsson suntlkenn-
ara.
Sambandið hefur staðfest met er
Sundfélagið Ægir setti 9. febr. s.l. í
boðsundi 8x50 m. skriðsundi karla
á 3. mín. 58.2 sek.
29. þ. m. staðfesti stjórn Í.S.Í. met
á 4x50 m. bringuboðsundi kvenna
sett af KR. Tími 3,07,5. Keppendur
Unnur Ágústsdóttir, Eria Gísladóttir,
Sigríður Jónsdóttir og Jakobína Finn-
bogadóttir.
Samkvæmt bréfi frá íþróttalækni
Í.S.Í., Óskari Þórðarsyni, gilda lækn-
isvottorð iþróttamanna í 3 mánuði.
Áður hefur verið gefin út tilskipun
um að allir senr keppa í íþróttum
verði að hafa læknisvottorð.
Knattspyrnuráð Reykjavíkur hefur
verið skiirað til tveggja ára þessum
mönnum: Frá Fram: Ólafi ffalldórs-
syni, frá K.R.: Þorsteini' Einarssyni,
frá ÍR.: Guðmundi S. Hofdal, frá
Val: Ólafi Sigurðssyni og frá Víking:
Gísla Sigurbjörnssyni. Formaður ráðs-
ins var kjörinn Ólafur Sigurðsson til
eins árs.
I marz hal'a tvö félög gengið i sam-
bandiði þau: U.M.F. Kári, Dyrhóla-
hreppi, Mýrdal. Form. Erlingur Sig-
urðsson. Félagatala 11 og U.M.F.
Reykjavíkur, Reykjavík. Fornr. Stefán
Runólfsson. Félagatala 220.
Eitt félag hefur sagt sig úr sam-
bandinu, en það er íþróttafélag Kjós-
arsýslu, en starfsemi þess fellur undir
væntanlegt héraðssamband.
Ákveðið hefur verið að halda Árs-
þing Í.S.Í. 20.—22. júní n.k.
Æfifélagar Í.S.Í. eru nú orðnir 279
að töhi.
Óskar Ágústsson hefur haldið nám-
skeið hjá Ungmennasambandi Eyja-
fjarðar hjá þesáum félögum: U.M.F.
Æskan, Svalbarðsströnd frá 13. jan.
til 27. jan. Kennt: fimleikar, glíma og
frjálsar íþróttir. Nemendur 51. U.M.F.
Reynir, Árskógarstrandarhreppi frá
27. jan. til 11. febr. Kennt: fimleikar
og frjálsar íþróttir. Þátttakendur 57.
U.M.F. Svarfdæla, Dalvík frá 11. febr.
til 23. febr. Kennt: fimleikar. Þarna
voru eingöngu konur, því karlar voru
farnir til sjóróðra. Þátttakendur 25.
U.M.F. Þorsteinn Svörfuður frá 14.
febr. til 23. febr. Kennt: fimleikar og
frjálsar íþróttir. Þátttakendur 45.
Þarna hélt Óskar tvö nánrskeið sam-
timis, með Jrví að ganga ])riggja tíma
göngu á dag milli félaganna gat liann
komið ])essu í verk. Úr Eyjafirði liélt
Óskar norður i Þingeyjarsýslu.
Kjartan Bergmann hefur að undan-
förnu verið á Vestfjörðum á Núps-
skóla í janúar og kenndi J)ar nær 50
manns. fór hann J)aðan til ísafjarðar
og hélt tvö námskeið þar og í Rol-
ungarvík. Frá ísafirði fór hann norð-
ur í Þingeyjarsýslu og kenndi á veg-
um Þingeyings.
Axel Andrésson kom aftur til
Reykjavíkur 1. marz frá Austurlandi.
Hafði hann haldið þar fjögur nám-
skeið: Að Eiðum, Eskifirði, Seyð-
isfirði og Neskaupstað. Alls tóku þátt
í Jressum námskeiðum 407 manns. Á
Austurlaudi er ríkjandi mikill íþrótta-
áhugi. Axel hefur og haldið uppi
kennslu i Reykholti.
Sambandsstjórnin hefur sent áskor-
un til flestra skiðafélaga sinna og
ráða, að beita sér fyrir skíðadegi,
J)ar sem seld verði merki íil ágóða
fyrir skíðakaup barnaskólanna. Gerir
hún sér vonir um, að ef ekki takist
að koma honum á núna í vetur, verði
málið fullundirbúið fyrir næsta vetur.
Væntir sambandið sér stuðnings kenn-
ara og skóla í þessu máli.
í marz hefur Í.S.Í. staðfest eftir-
taldar reglugerðir: Fyrir bikar í svig-
keppni A-fl. Reykjavíkurmótsins, gef-
inn at' Almenna byggingarfélaginu,
bikar í C-fl. gefinn af Chemia h/f og
um Geirfinnsbikarinn, gefinn af Guð-
mundi S. Hofdal til glímukeppni i
Mývatnssveit.
Gisli Ólafsson hefur nýlega verið
viðurkenndur af Í.S.Í. sem „skiðadóm-
ari.
Tvö Hnefaleikamót.
Hnefaleikamót hafa Glímufélagið
Ármann og Í.R. haldið i Rvík í vetur.
Mót Ármanns var haldið laugardag-
inn 5. febr. og var keppt í 0 þyngd-
arflokkum.
Sigurvegarar urðu þessir:
Fluguvigt: Marteinn Guðmundsson.
Fjaðurvigt: Stefán Magnússon.
Léttvigt: Arnkell Guðmundsson.
Veltivigt: Geir Einarsson.
Millivigt: Bragi Jónsson.
Þungavigt: Gunnar Jónsson.
Mót Í.R. var haldið sunnud. 20. marz
sl. og var keppt í 5 þyngdarflokkum.
Þessir sigruðu:
í léttvigt: Ragnar Þorsteinsson.
- léttnrillivigt: Haraldur Halldórsson.
- millivigt: Jóhann Eyfells.
- léttþungavigt: Lúðvík Jónsson.
- þungavigt: Kristinn Bergþórsson.
i----------------------------------—
ÍÞRÓTTABL AÐIÐ.
Útgefandi: íþróttablaðið h/f.
Ritstjóri: Þorsteinn Jósepsson.
Ritnefnd: Benedikt Jakobsson,
Þorsteinn Einarsson.
Blaðstjórn: Ben. G. Waage, Kristján
L. Gestsson, Jens Guð-
björnsson, Sigurjón Pét-
ursson, Þorst. Einarsson.
Afgreiðslum.: Þórarinn Magnússon,
Haðarstíg 10.
Utanáskrift: íþróttablaðið, Póst-
hólf 367, Reykjavik.
Verð: Kr. 20.00 pr. árg.
Kr. 2.50 pr. tbl.
Herbertsprent