Íþróttablaðið - 01.06.1950, Síða 12
96
IÞRÓTTABLAÐIÐ
Framháld, af bls. 93.
hittir vel, síðan fylgir hægri á eftir.
Þegar Jón vill svara í sömu mynt
er Björn kominn burtu, kemur svo
samstundis aftur og högg hans
liggja inni hvert af öðru.
Jón fer að lamast, en þolið er
undravert, hann svarar alltaf, en
höggin eru ekki markviss. — Þá
hringir bjallan, að lotan sé úti. Þó
verður Jóni það sama á og í keppn-
inni á móti Dananum Frede Han-
sen í vetur, hann heldur áfram að
slá eftir að bjallan hringir, en Björn
ver sig vel, svo að það verður ekki
að skaða, og bjallan hringir aftur.
Jón fékk þá aðra áminningu. Þriðja
lotan var ójöfnust. Jón féll oft
fram í fangið á Birni og varði sig
þannig falli. Jón sló einu sinni í
hnakkann á Birni í þessari lotu og
létu áhorfendur óspart óánægju
sína í ljósi yfir því, að hann hlaut
ekki áminningu fyrir. Björn var
farinn að þreytast síðast, enda var
þetta mjög erfiður kappleikur fyr-
ir báða. Björn sigraði glæslega,
eftir að hafa sýnt hreina tekniska
yfirburði, ásamt drengilegri fram-
komu. Hann var borinn á gullstól
af leikpalli og óspart hylltur.
I millivigt kepptu Birgir Þor-
valdsson KR og Kristján Pálsson
KR. Þetta var að mörgu leyti lík-
ara góðum sýningarleik en keppni,
þar sem Birgir hafði mikla yfir-
burði og átti allskostar við and
stæðing sinn. Hann notaði yfir-
burði sína til þess að sýna góðan
lei'k, enda tókst honum það vel. 1
annarri lotu skapar hann sér mögu
leika til að slá út, en notar sér þá
ekki. Birgir herðir sóknina í þriðju
lotu og slær Kristján í gólfið þeg-
ar í byrjun. Kristján stendur þó
upp aftur, er talið hafði verið upp
að 9. Kristján reynir nú að sækja
sig, en má sín lítils og sigraði Birg-
ir eftir stílfallegan leik.
I léttþungavigt kepptu Alfons
Guðmundsson Á og Grétar Árnason
IR. Byrjunin var heldur hæg og
sótti Grétar heldur meira, lotan
var samt í alla staði jöfn. Alfons
lagði meira upp úr sveifluhöggum,
þó að hann notaði einnig bein högg.
Grétar notaði aftur á móti mest
bein högg og var það skynsamlegra
svona til að byrja með. Aðra lotuna
byrjar Alfons vel, hann kemur
strax inn beinni vinstri hátt, síðan
djúpt, svo fylgir hægra sveifluhögg
hátt á eftir, sem situr vel. Grétar
svimar auðsjáanlega, en þá er eins
og Alfons skorti úthald til þess að
fylgja á eftir. Grétar fær nú tíma
til að jafna sig og vinnur þetta upp
aftur með rólegri og markvissri
sókn. Þessi lota var einnig mjög
jöfn, þó Grétar hafi átt öllu meira
í henni. I þriðju lotu hefur Alfons
einnig sókn, er tekst vel, en þegar
á skal herða er úthaldið gersamlega
búið. Grétar notar sér vel úthald
sitt, en hann var sem óþreyttur.
Hann vann ekki á neinni sérstakri
snerpu, en sókn hans var markviss
og stílhrein. Yfirburðir Grétars í
síðustu lotunni stöfuðu ekki af því,
að hann hefði mikla tæknilega yfir-
burði, heldur fyrst og fremst af
góðu úthaldi. Leikur þeirra var í
alla staði drengilegur og var Grét-
ar vel að sigrinum kominn.
I þungavigt fór engin keppni
fram, þar er aðeins Jens Þórðarson
Á einn var skráður þátttakandi. •—
Tilraun var gerð til þess að fá
danskan þungavigtarhnefaleikara á
móti honum, en svar kom um hæl,
að enginn yrði sendur.
Mótið fór í alla staði vel fram.
Leikstjóri var Þorkell Magnússon.
Hringdómari Þorsteinn Gíslason.
Frétt írá Í.S.Í.
Iþróttabandalag Akureyrar
hélt ársþing sitt 1. til 15. marz sl.
Var þar rædd starfsemi bandalags-
ins sl. ár. Þá var rædd og samþykkt
mótaskrá fyrir yfirstandandi ár.
Eitt af helztu málum, sem þingið
fjallaði um, var læknisskoðun í-
þróttamanna. I stjórn IBA eru nú
Ármann Ðalmannsson form., Jó-
hann Þorkelsson varaform., Kári
Sigurjónsson ritari, Halldór Helga-
son gjaldkeri, Haraldur M. Sigurðs-
son spjaldskrárritari, og meðstjórn-
endur Axel Kvaran og Jón D. Ár-
mannsson.
Utanhringsdómarar: Har. Gunn-
laugsson, Thor R. Thors og Jón D.
Jónsson.
Þátttaka í mótinu var heldur í
minna lagi, og er sérstaklega baga-
legt, hve fáir góðir þungavigtarleik-
arar eru fyrir hendi, þar sem vitað
er, að næg efni eru til, ef menn
einungis fást til að æfa. Sama er að
segja um léttari flokkana, þar erum
við illa staddir, allt frá fluguvigt
að f jaðurvigt. Orsakast það mest af
því, að piltarnir vaxa svo fljótt upp
úr léttustu flokkunum.
Við gætum ekki háð landskeppni
við aðrar þjóðir nema frá léttvigt
og uppúr, það er í fimm flokkum af
átta, væri hægt að hugsa sér nið-
urröðunina þannig: Léttvigt, Jón
Norðf jörð, KR, veltivigt, Björn Ey-
þórsson, Á, millivigt, Birgir Þor-
valdsson, KR, léttþungavigt, Þor-
kell Magnússon, Á og þungavigt,
Jens Þórðarson Á. Væri athugandi
að fá hingað útlendinga á móti
þessum mönnum næsta vetur, það
yrði vafalaust skemmtilegt mót.