Íþróttablaðið - 01.06.1950, Blaðsíða 17
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
101
Heima og erlendis
Sundgarparnir
Furuhasi og Marshall.
Japanski sundgarpurinn Furu-
hashi setti í aprílmánuði sl. nýtt
heimsmet í 400 m. skriðsundi á
4:32,6 mín. Þetta var á sundmóti í
borginni Manila. Gamla metið átti
Furuhashi á 4:34,6 mín., sett í Jap-
an í júlí 1949. Annar í þessu sundi
var Hashizume landi hans á 4:47,8
mín., og 3. Okamota á 4:53,1 mín.,
einnig Japani. — En met Furuhasi
stóð skamma hríð, því að ástralski
sundgarpurinn John Marshall synti
þessa vegalengd litlu síðar á 4:29,5
mín. Hefur Furuhasi fengið þarna
óvæntan og skæðan keppinaut og
má ætla, að John Marshall vinni
fleiri sigra innan skamms í íþrótt
sinni. Þess má geta, að tími Furu-
hashi í umgetnu sundi var þessi:
100 m. á 1:05,9 mín, 200 m. á 2:13,5
mín. og 300 m. á 3:22,6 mín.
Þýzkir knattspyrnumenn í
U. S. A.
I fyrsta skipti eftir styrjöldina
eru nú þýzkir knattspyrnumenn á
ferðalagi í Bandaríkjunum og
keppa þar. Þetta er flokkur frá
Hamborg og keppir í sex borgum
þ. á. m. New York.
Rússneskt heimsmet í sundi.
Á sundmóti, sem fram fór í
Moskvu setti einn af frægustu sund
köppum Sovétríkjanna, Leonid Me-
schkof, nýtt heimsmet í 100 m.
bringusundi á 1:06,8 mín. Þjóðverj-
inn Walther Klinge átti gamla
metið.
Nýr risamikill leikvangur í
París.
I undirbúningi er nú bygging nýs
leikvangs í París, sem áætlað er að
kosti 1500 milljónir franka. Verkið
á að hefjast í júlí í sumar, en leik-
vangurinn verða fullbúinn í maí
1952 og rúma 130 þúsund áhorf-
endur.
Fórn styrjaldarinnar.
Þjóðverjinn Lutz Long, sem á
Ólympíuleikunum 1936 varð ann-
ar í langstökki (7,87 m.) og ári
síðar setti Evrópumetið 7,90 m.
í langstökki, sem stendur óhaggað,
var einn af frægustu íþróttamönn-
um álfunnar áratuginn 1930—’40.
Hann var hermaður í heimsstyrj-
öldinni en hvarf undir styrjaldar-
lokin og spurðist ekkert til hans.
Nú að fimm árum liðnum, hefur
Rauða krossinum tekizt að fá vitn-
eskju um afdrif hans. Lutz Long
var í varnarhernum á Sikiley, þeg-
ar Bandamenn gerðu þar innrás.
Þar féll Lutz Long. Gröf hans hefur
fundizt í hermannagrafreit í hérað-
inu Caltanizetta. Hann var fyrir
styrjöldina lögfræðingur í Leipzig.
Frá Alþjóðaólympíunefndinni.
Alþjóðaólympíunefndin hefur nú
setið á þingi í Kaupmannahöfn und-
anfarið og fjallað um undirbúning
leikanna í Finnlandi 1952. Er á-
kveðið, að þeir fari fram frá 19.
júlí til 3. ágúst, en vetrarleikarnir
verði um miðjan febrúar. Fram
höf ðu komið raddir um að taka upp
nýjar íþróttagreinar s. s. bogfimi,
handknattleik og róður í kanadisk-
um húðkeipum fyrir konur, en það
var fellt. 100 m. flugsund verður
ekki tekið sem sérsund á leikunum.
— Benedikt G. Wáge, forseti ÍSÍ,
hefur setið þingið fyrir hönd ís-
lands. Mun hann væntanlega segja
lesendum íþróttablaðsins síðar frá
ýmsum undirbúningi leikanna, en
Benedikt var ókominn til landsins,
þegar blaðið fór í prentun.
Stangarstökkið.
Torfi Bryngeirsson setti nýlega
nýtt met í stangarstökki á 4,21 m.
Er það jafnframt bezti árangur í
álfunni á þessu ári. Svíinn Ragnar
Lundberg, sem náði beztum árangri
í fyrra, hefur stokkið 4,15 m. í ár,
og Daninn Rudy Stjernild 4,10 m.
Stjernild keppir sennilega hér í
sumar.
Nýtt met í þrístökki
án atrennu.
Torfi Bryngeirsson setti nýlega
nýtt met í þrístökki án atrennu,
stökk 9,76 m. Eldra metið, sem
Torfi átti sjálfur var 9,56 m.
Skíðasamband íslands
hefur fyrir nokkru sent frá sér
fróðlega skýrslu um starfsemi inn-
an sambandsins á starfsárinu 1949
—’50. Innan Skíðasambandsins eru
8 héraðasambönd með 1231 virkum
skíðamanni. Heiðursfélagi SKÍ var
á árinu kjörinn L. H. Möller kaupm.
í Reykjavík. L. H. M. varð sjötug-
ur 7. júlí 1949. Hann er Norðmaður
og fluttist hingað til lands 1906.
Hann var stofnandi Skíðafélags
Reykjavíkur og formaður þess í 26
ár. Hefur hann unnið ómetanlegt
gagn fyrir skíðaíþróttina hér á
landi. Geta má þess hér, að 29. marz